154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:32]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil fagna því að þetta mikilvæga mál er komið hér inn til atkvæðagreiðslu. Það hefur nefnilega verið mikið eftir því kallað af því að þetta er grundvöllur að því að stærri fyrirtækin geti starfað við framleiðslu þarna sem skaffar þá rekstrargrundvöll fyrir önnur fyrirtæki sem eru að þjónusta þessa framleiðslu. Þetta er stór liður í því að geta lifað með náttúrunni og því sem hún er að gera, að taka þá áhættu að starfa á svæðinu sem er vel starfhæft á meðan varnargarðarnir halda. Það þarf engan að undra að þetta sé komið úr nefndinni og hingað inn á undan hinu málinu þar sem það mál er mun víðfeðmara og tekur á fleiri málum og mun hjálpa fleirum og þarf vitanlega lengri tíma. En það mál er á leiðinni og vonandi bara mjög fljótt og er ekki síður mikilvægt en þetta. Þessu ber því að fagna af því að lausnirnar til að takast á við þessar náttúruhamfarir eru margar og þetta er einn liður í því.