154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:33]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég bara fagna því að við göngum hér til atkvæðagreiðslu um þetta mál. Við höfum verið samstiga í nánast öllu sem varðar Grindavík. Ég vil vekja athygli á því sem varðar ekki bara Grindavík heldur varðar okkur öll, tvo þriðju þjóðarinnar sem búa hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu: Við finnum öll fyrir þessu gosi. Loftmengunin hér í gær var slík að það fundu allir fyrir því og það sáu það allir. Þetta er heilsufarsógnun og það er allt í molum hvað varðar mælingar á þessum þáttum. Umhverfisstofnun er með eitthvert bilerí. Hér þarf að fjölga mælum úti um allt svæðið þannig að þeir sem eru viðkvæmir fyrir, með öndunarfærasýkingar og annað slíkt, séu sæmilega óhultir og geti þá leitað skjóls. Ég vildi alla vega vekja athygli á þessum þætti málsins af því að það er fyrir neðan allar hellur að þegar öll met eru slegin í loftmengun á höfuðborgarsvæðinu skuli mælingar vera bilaðar. En ég fagna atkvæðagreiðslunni. Við erum samstiga í því og það er fagnaðarefni.