Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Forseti. Verðlagsstofa skiptaverðs er mjög merkilegt fyrirbæri, verður maður að segja, og er í rauninni forveri þess að setja allan fisk á markað sem er eitthvað sem við ættum öll að stefna að. Í staðinn fyrir að fara fram með svona léttvægt frumvarp — eða þetta er það svo sem ekki, þetta er viss hagræðing því að fyrirkomulagið er þannig að það er forstöðumaður Fiskistofu sem er að stússast í þessu núna og þetta í raun og veru festir það fyrirkomulag í sessi. Til að þurfa ekki einhvern aukaforstöðumann yfir einhverjum þremur starfsmönnum eða eitthvað því um líkt, sem mér finnst líka vera allt of mikið, þá ættum við í raun og veru bara að leggja þessa Verðlagsstofu niður. En það er kannski ekki alveg hægt á svo einfaldan hátt að afnema lögin og leggja til að verðið ákvarðist bara af markaðsverði, það þarf svona smáatriði til þess að útfæra hvernig það ætti að vera. Við erum þess vegna ekki með breytingartillögu um að leggja þessa Verðlagsstofu skiptaverðs niður eins og er en það er tvímælalaust það sem við stefnum að því að gera.
Vandinn er einmitt sá að það er svokölluð lóðrétt samþætting innan útgerðarinnar og milli útgerðar og vinnslu þar sem útgerð og vinnsla er á hendi sama aðila. Þá er þar mögulegur tilflutningur á verðmætum og ágóða á milli vinnslu og útgerðar sem er hægt að gera t.d. með svona ísprósentudóti og ýmsu svoleiðis en líka bara með því að vinnslan greiði lægra verð fyrir fiskinn samkvæmt upphæðum frá Verðlagsstofu skiptaverðs heldur en viðkomandi vinnsla myndu fá fyrir sama magn á markaði, þ.e. að vinnslan geti keypt kvótann eða aflann fyrir minna verð beint frá útgerðaraðila sem á síðan vinnsluna líka. Þar með verður til ákveðinn tilflutningur á kostnaði og ágóða frá útgerðinni til vinnslunnar. Það er alvarlegt af því að veiðigjöldin eru tekin af gróða útgerðarinnar. Með þessu fær útgerðin, fá sjómenn minna í vasann fyrir þann afla sem þeir veiða heldur en ef þeir hefðu sett viðkomandi afla á markað. Þar af leiðandi verður gróðinn minni, launin verða minni o.s.frv. og minna veiðigjald þegar allt kemur til alls því að það er ekki vinnslan sem greiðir svo veiðigjaldið heldur er það útgerðin.
Það er rosalega mikilvægt að laga þennan halla. Þetta er í rauninni ákveðinn samkeppnishalli þegar það er aðili sem er með þessa samþættingu þarna í gangi miðað við aðila sem eru annaðhvort bara með vinnslu eða bara með útgerð. Það verður þá skekkt samkeppnisstaða milli þessara aðila. Ég legg því einfaldlega til að það verði farið í það að afnema þetta fyrirkomulag sem fyrst, að það verði sett upp fyrirkomulag þar sem er bara notað markaðsverð og miðað við þá markaði sem við erum almennt í viðskiptum við, sem eru mjög vel þekktir. Það sé einfaldlega horft í heimsmarkaðsverð eða svæðisbundið markaðsverð þess vegna á þeim afurðum sem er síðan sýslað með innan þessarar lóðréttu samþættingar, sem sagt innan þessara aðila sem eru með lóðrétta samvinnu — þessi tæknilegu orð eru afskaplega óþægileg — þ.e. að það verði einfaldlega borgað markaðsverð. Þar með er í rauninni allur afli farinn á markað á vissan hátt, verðmyndunin verður þá á markaði þó að ekki allur afli fari beint í gegnum markaðinn. Þá verður sá afli sem fer til sama aðila, nema bara á milli útgerðar og vinnslu, verðmerktur á sama hátt og allur annar afli sem ótengdir aðilar þurfa að kaupa.
Þetta er ekki fullkomið, sérstaklega ef aðstæður verða þannig að það verður þá enn þá meiri samþjöppun, samþjöppun á þann hátt að það færi í rauninni miklu miklu minna af afla á markað. Það gæti myndað ákveðna toppa og botna og óstöðugan markað með verð sem gæti einmitt ruglað — það væri þá hægt að stjórna betur hvaða innra verð tengdir aðilar gætu notað, sem er ástæðan fyrir því einmitt að það þarf að rjúfa þessi tengsl og koma því framtíðarfyrirkomulagi á að allur afli fari á markað. Punktur. Það er lokatillagan í rauninni; það þarf annars vegar að leggja þetta niður en þegar allur afli er kominn á markað þá verður þetta fyrirbæri óþarft. Það er það sem ég legg til inn í þessa umræðu.
Já, já, þessar breytingar sem eru gerðar eru svo sem — það hefur verið talað um að það sé eitthvað verið að vega að sjálfstæði stofnunarinnar o.s.frv. sem getur alveg verið rétt en er í rauninni ekki rétt ef það er forstöðumaður Fiskistofu sem sér um þetta og sem á að vera eftirlitsaðili gagnvart þessu. Viðkomandi er þá kannski kominn í smá bobba með að fylgjast með því hvort það sé rétt staðið að en á áfram að hafa hvatann til þess að þetta sé allt rétt gert. Ef eitthvað er þá þarf einmitt að efla eftirlit Fiskistofu því að ábendingarnar sem við höfum fengið þegar við förum í heimsókn til Fiskistofu eða þegar Fiskistofa kemur hérna fyrir nefndir, þær frásagnir eru vægast sagt skrautlegar. Umfang eftirlitsins og þær vísbendingar sem Fiskistofa sér um svindl eru rosalegar og bolmagn þeirra til að fylgja eftir þeim vísbendingum er því miður allt of lítið. Það er þannig að þegar fólk kemst upp með að svindla þá er að sjálfsögðu verið að brjóta af sér gagnvart öðrum. Og ef það er einhver einn sem svindlar og kemst upp með það og allir aðrir sjá að viðkomandi kemst upp með það, hvað annað eiga þeir þá að gera en að svindla líka? Auðvitað eiga þeir ekki að svindla en sanngirnin er þar til staðar. Ef einhver fær að komast upp með svindl en aðrir ekki, hvar er þá sanngirnin í kerfinu? Það er mjög eðlilegt að fólk fari smá í borgaralega óhlýðnisgírinn og hugsi bara: Fyrst þessi fær að svindla, þá hlýt ég að mega svindla líka.
Það eru ekki aðstæður sem við eigum að sætta okkur við. Við erum að setja lög og reglur til að tryggja sanngjarnan markað, til að tryggja það að samkeppnin sé sanngjörn, þannig að þegar einhver svindlar á þeirri sanngirni þá verða að vera afleiðingar. Annars vindur þetta upp á sig og skemmir allt.