Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Virðulegi forseti. Hér er til umræðu frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998, forstaða og stafrænt aðgengi. Þetta mál er mjög áhugavert og lýsandi um hina þinglegu meðferð. Frumvarp þetta kveður á um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs. Eins og fram kemur í greinargerð málsins er markmið frumvarpsins að styrkja heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs til aðgangs að gagnasöfnum Skattsins og Hagstofu Íslands og stuðla þannig að meira gagnsæi fiskverðs og afurðaverðs og styttri málsmeðferðartíma fyrir úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. Hin meginbreyting frumvarpsins er sú að sett er inn skýr heimild fyrir ráðherra að geta falið forstöðumanni annarrar ríkisstofnunar eða ríkisaðila að gegna einnig forstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs til ákveðins tíma í senn.
Aðeins um Verðlagsstofu skiptaverðs áður en lengra verður haldið, virðulegur forseti. Hlutverk stofnunarinnar er að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlutum eins og nánar er kveðið á um í lögunum. Lögin eru síðan 1998 en síðan þá hefur augljóslega átt sér stað ákveðin tæknibylting, sérstaklega í rafrænni og stafrænni þróun og starfsemi fyrirtækja. Tilefni þess er að í nýlegum viðræðum vegna kjarasamnings milli sjómanna og útvegsmanna var rætt um mikilvægi greiningar afurðaverðs og skilaverðs sem Skatturinn heldur utan um. Gott og vel. Hér eru skýr markmið lögð fram og frumvarpið fer yfir mikilvægi þessara breytinga. Það er þó áhugavert að skoða nefndarálit meiri hluta atvinnuveganefndar sem er í styttri kantinum. Það athugunarverða er að meiri hluti atvinnuveganefndar ákveður í ljósi athugasemda Skattsins og matvælaráðuneytisins að gera breytingu á 2. gr. frumvarpsins sem fjallar um aðgang stofnunarinnar að gagnasöfnum Skattsins og Hagstofu Íslands. Þetta gerir nefndin með þeirri einföldu skýringu að í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar um málið hafi komið fram að ráðuneytið teldi rétt að fram færi endurskoðun á ákvæðum 2. gr. Nefndin segir að nauðsynlegt sé að um ákvæðið ríki sátt og sameiginlegur skilningur milli stofnana og leggur til að þetta ákvæði falli brott. Hér er því nefndin einfaldlega að fella brott heimild Verðlagsstofu til að fá stafrænan aðgang að upplýsingum um útflutning sjávarafurða frá Skattinum og Hagstofunni, sem mætti nánast segja að sé forsenda frumvarpsins eða öllu heldur helmingur málsins.
Í umsögn Verðlagsstofu um málið tekur stofnunin undir röksemdir frumvarpsins er varðar skýrari aðgangsheimild að upplýsingum sem annað stjórnvald safnar um útflutningsverð og ráðstöfun fisks. Upphaflega var með frumvarpinu tekinn af sá vafi sem ríkir um heimild Verðlagsstofu um á hvaða formi veiting upplýsinga má vera. Ljóst er að síðan lögin tóku gildi árið 1998 hefur orðið mikil tækniþróun og stafræn þróun og mikilvægt að uppfæra lög í samræmi við þá þróun. Verðlagsstofa telur að breyting í 2. gr. muni gera stofnuninni kleift að sinna betur hlutverki sínu sem eftirlitsaðili með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna.
Í umsögn Skattsins kemur fram andstaða hans við þessa heimild frumvarpsins. Skatturinn telur að ekki séu fordæmi fyrir því, að upplýsingaöflunarheimildum Hagstofu frátöldum, að svo opin heimild til miðlunar tollagagna að hluta eða öllu leyti sé leidd í lög. Skatturinn telur vandséð að markmið 2. gr. frumvarpsins samrýmist þeirri kröfu að gætt sé að grundvallarsjónarmiðum um meðalhóf við vinnslu upplýsinga sem varða einstaka aðila. Auk þess telur Skatturinn að vegna öryggissjónarmiða við stafræna afhendingu gagna sé ekki bært að veita heimild 2. gr. frumvarpsins. Skatturinn hafnar því þessarar heimild og kastar boltanum til Hagstofu í umsögn sinni.
Eins og kemur fram í minnisblaði matvælaráðuneytisins ríkir skv. 10. gr. laga um Hagstofu Íslands þagnarskylda um allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hagskýrslugerðar og slíkar upplýsingar teljast trúnaðargögn sem óheimilt er að afhenda öðrum stjórnvöldum. Ráðuneytið telur því að Skatturinn þurfi að veita Verðlagsstofu þær upplýsingar sem stofnunin þarfnast til að sinna eftirliti sínu, greint niður á einstaklinga og lögaðila. Ráðuneytið virði röksemdir Skattsins varðandi öryggissjónarmið að vettugi. Jafnframt bendir ráðuneytið á að það þurfi að fara endurskoðun fram á ákvæðum 2. gr. frumvarpsins er varðar skilvirkari aðgang Verðlagsstofu að upplýsingum um fiskverð og afurðaverð. Ráðuneytið leggur til að það fari fram frekari undirbúningur að þeim markmiðum sem koma fram í 2. gr. frumvarpsins og að málið mögulega verði lagt fram á ný síðar eftir frekari vinnslu með Verðlagsstofu, Skattinum og Hagstofu Íslands.
Hér sjáum við skemmtilega birtingarmynd lagasetningarinnar þar sem umsagnaraðilar vísa hver á annan vegna þess að breyting á fyrirkomulagi hugnast þeim ekki og endanlega tekur nefnd af skarið og fellir brott heimild sem er beinlínis ein af forsendum málsins. Málið heitir enda Forstaða og stafrænt aðgengi. Það væri í raun nærtækara að endurskíra þetta frumvarp Forstaða.
En tölum nú um þessa forstöðu og hvað felst í henni. Já, þetta er síðari breytingin sem ég minntist hér á áðan í upphafi ræðu minnar en um hana er fjallað í 1. gr. Greinin fjallar um hagræðingu. Þetta er grein sem Félag skipstjórnarmanna, Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómannasamband Íslands koma með athugasemdir um í sameiginlegri umsögn sinni. Félögin gera alvarlega athugasemd um 1. gr. frumvarpsins þar sem ráðherra geti falið öðrum forstöðumanni ríkisstofnunar að veita jafnframt forstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs. Félögin vísa m.a. til þess að stofnun eigi að vera sjálfstæð stofnun, enda er Verðlagsstofa skiptaverðs öryggisventill um fiskverð sem settur var á með lögum um að efla traust og gagnsæi.
Ég sé ekki hvernig hægt er að túlka minnisblað ráðuneytisins á annan hátt en að málið hefði átt að fá meðferð til að 2. gr. frumvarpsins hefði fengið betri umfjöllun í staðinn fyrir að ýta þessu í gegnum nefndina, bara svo að stjórnarflokkarnir geti bætt við einu máli í viðbót á afrekslistann sinn. Þetta eru harla kynleg vinnubrögð, hæstv. forseti, svo ekki sé fastar að orði kveðið, en nóg um það að sinni.