154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

847. mál
[15:23]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Það vekur athygli mína að meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til að fella brott 2. gr. frumvarpsins en hún er í raun meginþáttur þess, það ákvæði sem átti að skila raunverulegu gagni og tryggja að við gætum fengið áreiðanlegar upplýsingar um markaðsverð á fiski og þannig lagt grunn að auknu gagnsæi fiskverðs og afurðaverðs. Þetta er sem sagt gjörsamlega fótumtroðið hér af meiri hluta nefndarinnar. Samkvæmt nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar er ástæða þess að meiri hlutinn leggur til brottfall 2. gr. sú að í umsögn Skattsins hafi komið fram gagnrýni á orðalag 2. gr. og að því þætti rétt að fram fari endurskoðun á greininni. Ég vil af þessu tilefni lesa aðeins upp úr umræddri umsögn Skattsins, með leyfi forseta:

„Almennt hefur verið hafður sá háttur á að þegar sérstakri þagnarskyldu tollyfirvalda og skattyfirvalda er vikið til hliðar með lögum, í því skyni að gera öðrum stjórnvöldum kleift að nýta við framkvæmd verkefna sinna þær trúnaðarupplýsingar sem aflað er í álagningartilgangi, þá er skýrt afmarkað um hvaða fyrirliggjandi upplýsingar ræðir hverju sinni. Er það gert til að gæta meðalhófs við öflun og meðferð stjórnvalda á upplýsingum sem snerta fjármál og viðskiptahagsmuni einstaklinga og einstakra lögaðila, og tryggja að miðlun gagna sé ekki umfram það sem í raun telst lögmætt.

Ekki eru fordæmi fyrir því, að upplýsingaöflunarheimildum Hagstofu frátöldum, að svo opin heimild til miðlunar tollagagna að hluta eða öllu leyti sé leidd í lög. Hvað Hagstofuna varðar þá tekur lagaumgjörðin um starfsemi hennar, og innviðir stofnunarinnar, mið af þeim verkfærum sem henni er ætlað að beita við öflun og úrvinnslu upplýsinga. Erfitt er að sjá hvernig 2. gr. frumvarps þessa samrýmist þeirri kröfu að gætt sé að grundvallarsjónarmiðum um meðalhóf við vinnslu upplýsinga sem varða einstaka aðila. Við rafræna eða stafræna afhendingu gagna þá er í þessu samhengi sömuleiðis um upplýsingaöryggissjónarmið að ræða og mikilvægt að lágmarka hættu á öryggisbresti sem haft gæti alvarlegar afleiðingar fyrir hagsmuni þeirra aðila sem gögnin varða og orðspor hinna opinberu stofnana sömuleiðis. Ríkisskattstjóri leggur áherslu á mikilvægi þess að afmarka betur þær upplýsingar sem Verðlagsstofu er ætlað að vinna með samkvæmt 3. gr. laga nr. 13/1998 svo unnt sé að viðhafa þann hátt á framkvæmd upplýsingamiðlunar sem almennt telst við hæfi.

Vert er að nefna að við miðlun gagna með þeirri tækni sem almennt er nú notast við af hálfu Skattsins, þ.e. með vefþjónustum, þá eru þau gögn sem um ræðir nákvæmlega skilgreind og þar skiptir miklu leiðsögn lagatextans og lögskýringargagna. Ekki er um að ræða opið aðgengi eða tengingu á milli gagnagrunna Skattsins annars vegar og Verðlagsstofu eða annarra stofnana hins vegar, heldur fyrirfram skilgreinda afhendingu gagna eftir öruggum farvegi. Ríkisskattstjóri leyfir sér að benda á að eftir atvikum getur smíði vefþjónustu og breytingar á henni kostað talsverða fjármuni sem gert er ráð fyrir að sú stofnun greiði sem þjónustuna nýtir við framkvæmd sinna verkefna. Með vísan til gildistökuákvæða 6. gr. frumvarpsins er vert að geta þess að smíði eða breytingar á vefþjónustu getur eftir atvikum tekið nokkurn tíma. Tilfallandi afhending einstakra tegunda upplýsinga vegna annarra þarfa er þannig hvorki einföld aðgerð né verður framkvæmd án viðeigandi ráðstafana og umstangs.“

Ég verð að segja, forseti, að ég hélt að það væri ekki svona mikið mál að senda upplýsingar milli stjórnvalda með öruggum hætti en það er greinilega svo flókið að samkvæmt Skattinum þyrfti að smíða tæknilausnir fyrir fleiri milljónir króna. Æ, grey við sem þurfum að reiða okkur á heimabankann ef það á að vera svona auðvelt að geta bara gengið inn í það öryggi sem okkur er talin trú um að við séum umvafin þegar kemur að því að vera með okkar einkaprívat inni á okkar heimabanka. Ég veit ekki betur en að þegar slíkar tæknilegar lausnir eru tiltækar eins og hér um ræðir, sem fjölmargar stofnanir nýta til þess að senda sín á milli gögn með öruggum hætti — ég veit ekki betur en að það sé bara talið vera ansi öruggt. Við erum meira að segja farin að heimila að dómsgögn séu send með rafrænum hætti. Ég veit ekki hvort það var endilega skynsamlegt en ríkisstjórnin hefur heimilað einkaaðilum að sjá um þær sendingar. Þessi umsögn Skattsins hljómar að mínu mati hreinlega eins og fyrirsláttur. Ég tel að það væri leikur einn að hlutast svo til um þetta mál að öryggi gagna sem á að flytja milli stofnana verði tryggt. Ég tel að ef ríkisstjórnarflokkarnir hefðu raunverulegan áhuga á því að tryggja sjómönnum sanngjarnt skiptaverð þá hefði verið gengið frá þeim breytingum á nokkrum dögum og aðstoð fengin innan úr ráðuneytinu eða frá Skattinum ef þess hefði talist þörf.

Ástæðan fyrir því að meiri hlutinn leggur til að 2. gr. frumvarpsins falli brott er einfaldlega sú að þau vilja ekki reita útgerðarkóngana til reiði. Útgerðarkóngarnir vilja halda áfram með brask milli sín og erlendra dótturfélaga sem leiðir af sér mun lægra skiptaverð og sparar þeim pening vegna þess að hluturinn er beintengdur fiskverðinu. Fórnarlömbin? Sjómennirnir sjálfir. Ef Verðlagsstofa skiptaverðs getur sannreynt hvort um slíkar fléttur er að ræða þá komast útgerðirnar ekki lengur upp með þetta ævarandi plott sitt með fisk í sölu til erlendra dótturfélaga og ríkisstjórnarflokkarnir þora einfaldlega ekki að stíga þetta skref í átt að sanngjarnara sjávarútvegskerfi.

Svo er það 1. gr. frumvarpsins. Ég hefði öllu heldur talið að efni stæðu til að fella hana brott frekar en að fella brott 2. gr. frumvarpsins. 1. gr. mælir fyrir um mjög svo sérstaka heimild til að setja forstöðumann annarrar ríkisstofnunar yfir Verðlagsstofu skiptaverðs. Ég man ekki eftir öðru eins. Hér er beinlínis verið að útrýma öllu sem tryggir sjálfstæði Verðlagsstofu og það afsakað með þeim skýringum að í því kunni að felast eitthvert hagræði, að það megi hugsanlega spara einhverjar krónur. En í hverju felst sá sparnaður? Ja, ef við erum í raun að vega gegn grundvelli allra kjarasamninga milli sjómannastéttarinnar og útgerðarmanna þá liggur það hér á borðinu. Það er bókað í þessum kjarasamningum að Verðlagsstofa skiptaverðs skuli vera sjálfstæður aðili sem leysi úr ákveðnum atriðum sem tengjast í raun þeim kjörum sem sjómenn eiga að njóta. Sjómannastéttin lagði undirstöðurnar að því samfélagi sem við búum í í dag. Þeir sköffuðu þjóðinni gjaldeyri á tímum hafta og spiluðu stóran þátt í því að þjóðin fluttist úr moldarkofunum í nútímann á mettíma. Þjóðin taldi rétt að þeir fengju sanngjarnt endurgjald fyrir sitt framlag og vert er að minnast þess að engin atvinnustétt á Íslandi hefur upplifað jafn mikinn mannskaða og jafn miklar hörmungar og fært jafn miklar fórnir og sjómenn. Það er lítilsvirðing gagnvart sjómönnum að láta lagabreytingu sem á að tryggja sanngjarnt skiptaverð mæta afgangi. Og það er enn þá meiri lítilsvirðing í þeirra garð að afnema sjálfstæði Verðlagsstofu skiptaverðs til að spara nokkrar krónur á þeirra kostnað.