154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

847. mál
[15:33]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég tel rétt að koma hér upp í aðra ræðu til að ræða þetta skrýtna mál og þá breytingartillögu sem er enn þá skrýtnari. Þegar maður skoðar lögin um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna þá er alveg klárt mál hvert hlutverk Verðlagsstofu skiptaverðs er. Það er að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjómanna eins og nánar er kveðið á um í lögunum. Það segir beinlínis líka í 2. mgr. 1. gr., með leyfi forseta:

„Hafi samtök útvegsmanna og sjómanna gert með sér samkomulag um tiltekin markmið um viðmið varðandi verðlagningu á fiski við uppgjör á aflahlut sjómanna á gildistíma kjarasamnings eða ákvarðanir um slíkt hafa verið teknar með öðrum skuldbindandi hætti skulu Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, sbr. II. kafla, stuðla að því með störfum sínum og úrskurðum að þau markmið nái fram að ganga.“

Tilgangurinn með stofnuninni Verðlagsstofu skiptaverðs er að markmið kjarasamninga sjómanna og útvegsmanna nái tilgangi sínum. Það var nákvæmlega það sem var lagt upp með þegar frumvarpið var lagt fram á Alþingi og þáverandi sjávarútvegsráðherra, Þorsteinn Pálsson, mælti fyrir frumvarpi um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna. Nánast allar athugasemdir við það frumvarp fjalla um kjarasamninga sjómanna og útvegsmanna. Þar kemur fram m.a. að sjómenn verði að geta treyst þessari stofnun. Hlutverk stofnunarinnar verði að stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjómanna. Stofnuninni verði skipaður sérstakur forstöðumaður en honum verði falið að ráða aðra starfsmenn o.s.frv.

Það kemur líka fram, með leyfi forseta:

„Óánægjan hefur fyrst og fremst beinst að því að fáum málum er skotið til nefndarinnar. Kenna forustumenn sjómanna því um að aðstaða áhafna sé oft örðug og návígið valdi því að skipverjar leggi ekki í að efna til ágreinings við útgerðina. Þá hefur verið á það bent að aðstaða áhafna til að afla upplýsinga um verð á fiski í hliðstæðum tilvikum sé örðug. Á þessu má ráða bót með tiltölulega einföldum hætti. Af öðrum sviðum eru fordæmi um að opinberum aðilum er falið að hafa yfirsýn yfir hvort fylgt sé almennt orðuðum leikreglum á viðkomandi sviði og eiga frumkvæði um að afla gagna og leita úrskurðar um réttmæti aðgerða ef út af er brugðið að mati eftirlitsaðilans.“

Það kemur líka fram, með leyfi forseta, í greinargerð frumvarpsins:

„Telja sjómenn og samtök þeirra að ekki hafi tekist til sem skyldi með störf nefndarinnar“ — þ.e. úrskurðarnefndarinnar — „og að tilraun síðustu kjarasamninga til að leysa fiskverðsákvarðanir með samningum áhafna einstakra skipa og útgerðar hafi mistekist.“

Það er tilgangurinn. Upphaflegi tilgangurinn með frumvarpi til laga um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna er að tryggja það að sjómenn geti treyst Verðlagsstofu skiptaverðs. Þetta er beintengt við kjarasamningana. 1. mgr. í athugasemdum við lagafrumvarpið á sínum tíma hófst þannig, með leyfi forseta:

„Í kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna í júní 1995, er bundu enda á erfiðar kjaradeilur, var m.a. kveðið á um að útgerðarmaður og áhöfn skuli gera sín á milli samninga um fiskverð þegar útgerð selur afla til eigin vinnslu, þ.e. í viðskiptum skyldra aðila. Í samningunum eru jafnframt ákvæði um að sé afli seldur milli óskyldra aðila geti áhöfn krafist að gerður verði samningur um uppgjörsverð fyrir þann afla. Í kjarasamningunum eru loks ákvæði um að sett skuli á fót sérstök úrskurðarnefnd sem fjalla skuli um þau tilvik þegar ekki næst samkomulag um fiskverð milli áhafnar og útgerðar.“

Það er úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna sem er verið að fjalla um í kjarasamningum 1995. Að nú skuli ráðherra leggja fram frumvarp sem gengur í berhögg við umsagnir og vilja Félags skipstjórnarmanna, Félags vélstjóra og Sjómannasambands Íslands er með hreinum ólíkindum, svo ekki sé meira sagt. Þessum lögum, um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, er ætlað að tryggja rétta framkvæmd kjarasamninga sjómanna og útvegsmanna. Það er grundvallaratriði.

Í síðustu kjarasamningum, eins og kemur fram í umsögn Félags skipstjórnarmanna, Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómannasambands Íslands þá vísa félögin til bókana í nýgerðum kjarasamningum um nauðsyn þess að Verðlagsstofa skiptaverðs sé sjálfstæð stofnun. „… félögin hafa á fundum í ráðuneytinu ítrekað skoðun þeirra á málinu. VSS er öryggisventill um fiskverð sem settur var á með lögum, til að efla traust og gagnsæi.“

Núna á að minnka þetta traust með því að forstöðumaður annarrar ríkisstofnunar geti veitt forstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs. Það á að gera þetta aukastarfi raunverulega. Það mun draga úr sjálfstæði stofnunarinnar, draga úr trausti og minnka gagnsæi. Það er alveg kristaltært að Alþingi á ekki að samþykkja þetta frumvarp, með vísan til þess hver uppruni laganna er, sem er í kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna og til umsagna og vilja sjómannastéttarinnar í heild, skipstjórnarmanna, Sjómannasambands Íslands og vélstjóra. Þetta er grundvallartæki, grundvallaraðili til að ákveða framkvæmd kjarasamninganna, Verðlagsstofa skiptaverðs, vegna þess að hún ákveður verðlag á sjávarafla skyldra aðila m.a.

Annað atriði sem er líka hér til umræðu er svokölluð 2. gr. sem meiri hluti nefndarinnar ætlar með einhverjum furðulegum hætti að fella burtu. Þar segir, með leyfi forseta:

„Jafnframt ber þeim stofnunum sem safna upplýsingum um útflutning sjávarafurða, svo sem Skattinum og Hagstofu Íslands, að veita Verðlagsstofu skiptaverðs aðgang að þeim upplýsingum með rafrænum eða stafrænum hætti.“

Það virðist eins og hæstv. matvælaráðherra hafi samið þetta frumvarp án þess að tala við Skattinn og án þess að tala við Hagstofu Íslands. Heimavinnan var sem sagt engin og svo dúkkar það upp þegar frumvarpið er komið til Alþingis að nei heyrðu, það eru smá vandkvæði hér á, það gæti verið erfitt að veita Verðlagsstofu skiptaverðs aðgang að upplýsingum um útflutning sjávarafurða, svo sem frá Skattinum og Hagstofu Íslands, með rafrænum hætti. Það virðist vera að matvælaráðherra og matvælaráðuneytið hafi ekki talað við Skattinn og Hagstofu Íslands um það hvernig væri hægt að koma á rafrænum samskiptum milli Verðlagsstofu skiptaverðs og Hagstofu Íslands og Skattsins. Það er algjört grundvallaratriði ef þú ætlar að hafa löggjöf sem varðar þessi mikilvægu stofnanir í samfélaginu, Skattinn og Hagstofu Íslands, að tala við þær og spyrja þær: Er hægt að gera þetta sem ég er að hugsa um að setja í lög? Svo virðist vera einhver meinbugur á en það skiptir engu máli. Lagatextinn — það er hægt að veita frest á því að þetta atriði verði uppfyllt, þ.e. að Verðlagsstofa skiptaverðs geti fengið upplýsingar um útflutning sjávarafurða, hjá Skattinum og Hagstofu Íslands t.d., með rafrænum eða stafrænum hætti. Það þarf ekki að gerast í byrjun júlí eða lok mánaðarins, verði frumvarpið að lögum. Það þarf ekki að vera þannig, að sjálfsögðu ekki. Svo einfalt er það. Þetta er markmið í lögunum um að komið verði á fót rafrænum samskiptum milli Skattsins og Hagstofu Íslands innan ekki svo langs tíma, kannski í byrjun næsta árs, kannski á miðju næsta ári. Það hafa allir skilning á því hér í þinginu að það tekur tíma að koma þessum samskiptum á en vilji er allt sem þarf. Það er grundvallaratriði. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir sjómenn að þeir hafi aðgang að þessum upplýsingum í rauntíma og Verðlagsstofa skiptaverðs hafi aðgang að þessum upplýsingum í rauntíma og það nægum upplýsingum, sérstaklega upplýsingum um útflutning sjávarafurða, svo það sé hægt að ákveða verðlag á sjávarafla sem allra fyrst og svo að úrskurðarnefndin geti líka unnið með raunupplýsingar. Það er grundvallaratriði.

Ég tel að þetta sé frumvarp sem gengur algerlega gegn grunni og forsendum núverandi laga sem ég sagði hérna áðan, sem eru kjarasamningar við sjómenn og það á ekki að vera hægt að breyta þessum lögum með þessum tveimur ákvæðum, 1. gr. og 2. gr., (Forseti hringir.) án góðs samstarfs við sjómannastéttina og bókanir þeirra í ný gerðum kjarasamningum bera þess skýr merki.