154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[15:45]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég tel mig knúinn til að fara í aðra ræðu um þetta mikilvæga málefni, ekki síst í ljósi nýrra upplýsinga, ég skoðaði þetta mál nánar. Eins og kemur fram í nefndarálitinu þá er þessi furðulega breyting um að fella út textann í 2. gr., í lok 2. gr., um það að gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda verði felld niður. Það er rökstutt með því varðandi fyrri hluta setningarinnar að það byggist á því að það sé fyrir hendi heimild í 43. gr. laga um Seðlabanka Íslands um að það sé hægt að taka gjald fyrir afnot af innviðum. Ég sé bara nákvæmlega ekkert að því að það sé líka heimilt í þessari grein þarna í reglugerðarákvæðinu um rekstraröryggi greiðslumiðlunar, það er ekkert sem er hundrað í hættunni hvað það varðar.

Varðandi seinni hlutann þá rökstyður meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar það að fella burtu heimild Seðlabankans til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda með því að það byggist á því að það sé varðandi samkeppnisatriði hjá Seðlabankanum. Það tel ég vera — vissulega stendur ein setning hjá Seðlabankanum hvað það varðar. Það segir, með leyfi forseta, í umsögn Seðlabankans:

„Samhliða er lagt til að heimild til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda falli niður til þess að koma til móts við athugasemdir varðandi inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.“

Hvaða athugasemdir eru þetta? Jú, þetta eru athugasemdir hjá Samtökum fjármálafyrirtækja, SFF. Það er kafli þar í umsögn sem heitir Óvenjulegt inngrip í rekstur fyrirtækja á samkeppnismarkaði. Þeir fara reyndar í kringum þetta eins og köttur í kringum heitan graut, þeir segja aldrei nákvæmlega að þetta verði að fara út en þeir tala um að frumvarpið geri ráð fyrir óvenjulegu inngripi í rekstur fyrirtækja á samkeppnismarkaði. Þeir tala síðan um að jú, þú getur meira að segja notað — það eru þegar millifærslur í gangi í símum og tölvum, milli bankareikninga og svo er að sjálfsögðu hægt að nota reiðufé. Guði sé lof að við fáum a.m.k. enn þá að nota reiðufé, séum ekki algerlega á bankana sett þar. Svo fjalla þeir líka áfram um það, áfram um samkeppnisreksturinn og það er vísað til þess að fyrirhuguð lagasetning kunni að brjóta gegn samkeppnislögum og reglum EES-réttar um ríkisaðstoð, staðfesturétt og frjálst flæði þjónustu.

Þegar ég las þetta hjá Samtökum fjármálafyrirtækja, SFF, þá hugsaði ég með mér: Þeir hafa greinilega ekki lesið innganginn að greiðslutilskipun nr. 2 hjá Evrópusambandinu, PSD2. Hún fjallar um samkeppni og samkeppni aftur. Út á það gengur tilskipun Evrópusambandsins um greiðslumiðlun, gengur út á að tryggja samkeppni og það að óháðir aðilar geti komið inn á greiðslumiðlunarmarkaðinn, að það verði ekki undir oki bankanna hvað það varðar eins og allt annað sem lýtur að fjármálaþjónustu í landinu. Þetta er svo rangt og vitlaust sem frekast er unnt og ég get tekið dæmi. Innleiðing á PSD2, greiðsluþjónustutilskipuninni, tilskipun um greiðsluþjónustu á innri markaði, nr. 2, hún er frá 2015, fyrri kom 2019. Í lögum um greiðsluþjónustu er fjallað um það, um þátttöku í greiðslukerfum, og þar segir, með leyfi forseta, að reglur um þátttöku í greiðslukerfum skuli vera „hlutlægar, án mismununar og gætt sé meðalhófs“. Þær mega ekki hamla aðgangi „meira en nauðsynlegt er til verndar gegn tiltekinni áhættu, s.s. uppgjörsáhættu, rekstraráhættu eða viðskiptaáhættu“ og vernda rekstrarlegan stöðugleika greiðsluþjónustukerfisins. Þetta er í 35. gr. Í 36. gr. er líka „Aðgangur að reikningum hjá lánastofnun“. Það skal veita aðganginn á hlutlægan hátt í samræmi við lögmæt markmið sem greiðslustofnunin stefnir að. Síðan kemur í 62. gr. sérstakt ákvæði um gjaldtöku. Þar segir að greiðsluþjónustuveitanda sé óheimilt að innheimta gjald af notanda vegna upplýsinga sem skylt er að veita samkvæmt köflum í lögunum og vegna leiðréttingarráðstafana o.s.frv. og „skulu þau vera viðeigandi og í samræmi við raunverulegan kostnað greiðsluþjónustuveitandans“.

Gjöldin þurfa að vera viðeigandi og í samræmi við raunverulegan kostnað. Hérna er verið að setja takmörk á gjaldið sem bankarnir, greiðsluþjónustuveitandi getur sett. (Forseti hringir.) Það er verið að setja mörk á þau nákvæmlega eins og stendur í upphaflega frumvarpinu. (Forseti hringir.) Ákvæði laganna um greiðsluþjónustu byggjast á því að setja mörk á bankana að heimta gjald. (Forseti hringir.) Svo kemur SFF og segir: Nei, þetta er brot á samkeppnisreglum. (Forseti hringir.) Lesið lögin um greiðsluþjónustu, SFF, grein 35, 36 og 62. (Forseti hringir.) Þetta er eins vitlaust og frekast er unnt.

(Forseti (ÁsF): Nú hefur þingmaðurinn tekið sér tíma sem er langt umfram það sem þingsköp gera ráð fyrir. Ég hvet hann til að fara að þeim fyrirmælum sem þar eru.)