Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Við erum að ræða hér mjög svo mikilvægt mál. Eins og aðrir hv. þingmenn bentu á í ræðum sínum í síðustu viku þegar málið var til umfjöllunar er hér afar mikilvægt mál með afar varhugaverðri breytingartillögu. Þessi breytingartillaga meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar er í rauninni algerlega síðasta sort. Ég á við breytingartillögu meiri hlutans þar sem felldar eru brott heimildir Seðlabankans til reglusetningar um afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Rök nefndarinnar fyrir breytingum eru þau að það sé nú þegar heimild í lögum um Seðlabanka Íslands sem nær til gjaldtöku vegna greiðslumiðlunar. Röksemdir þessar eru að einhverju leyti skiljanlegar. Maður furðar sig þó á því að sú breyting sé lögð til, enda væru lögin ekki verri fyrir vikið þótt fjallað væri um gjaldtökuheimildina á tveimur stöðum, er það? En látum þetta liggja á milli hluta.
Rök nefndarinnar fyrir síðari breytingunni, um að fella niður heimild Seðlabankans til þess að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda, að verið sé að koma til móts við athugasemdir um inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði, gefa tilefni til að staldra við. Þessar breytingar eru mun alvarlegri, en þar er verið að fella brott heimild Seðlabankans til að setja reglur um hámarksgjaldtöku greiðsluþjónustuveitenda fyrir notkun viðkomandi greiðsluinnviða. Þannig var í frumvarpinu upprunalega gert ráð fyrir því að með reglum gæti Seðlabankinn takmarkað kostnað sem lagður yrði á viðskiptavini bankanna vegna millifærslna. Meiri hluti nefndarinnar telur að með heimildinni væri um inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkað að ræða. Þetta er vafasöm breyting, svo vægt sé til orða tekið. Að fella brott heimild Seðlabankans til að mæla fyrir um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda gæti haft veigamikil áhrif á neytendur. Þessi breytingartillaga gæti leitt til minni verndar fyrir neytendur, því að án heimildar til að takmarka gjaldtöku gætu greiðsluþjónustuveitendur hugsanlega innheimt hærri gjöld fyrir þjónustu sína. Þetta gæti leitt til aukins kostnaðar fyrir hinn almenna borgara.
Nýlega barst þinginu umsögn Neytendasamtakanna um þetta mál. Samtökin höfðu sent umsagnir um málið á fyrri stigum en það var áður en nefndin gerði þessar stórtæku breytingar og hafa samtökin væntanlega ekki haft tíma til að bregðast við, enda ekki langt síðan málið kom úr nefndinni. Breytingartillagan er í raun afgreidd í algjöru hasti, eiginlega án allrar umræðu hér, nema stjórnarandstaðan er að reyna að verja neytendur og berst í bökkum við að reyna að leiða þessum meiri hluta nefndarinnar fyrir sjónir að hann sé í rauninni með hreina og klára aðför að íslenskum neytendum. Í umsögn Neytendasamtakanna kemur fram að ekki einungis leiði breytingartillaga meiri hlutans til þess að bankarnir hafi sjálfsvald um hversu háa arðsemi þeir ætli sér af þjónustuveitingunni, heldur gætu þeir með ofurverðlagningu í raun komið í veg fyrir aðrar lausnir en þær sem þeim eru þóknanlegar, að slíkar lausnir verði að veruleika. Neytendasamtökin benda á að augljóslega hafi bankarnir mikla hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlun þróast á Íslandi og þær lausnir sem hugnast bönkunum þurfa ekki endilega að vera þær sem gagnast hagsmunum almennings. Neytendasamtökin leggjast því alfarið gegn breytingartillögu meiri hlutans og telja engin almannahagsmunarök hníga að því að fella brott heimild Seðlabankans eins og hún birtist í frumvarpinu. Samtökin telja afar mikilvægt að Seðlabankanum verði heimilað að setja bönkunum gjaldtökumörk, eins og kom fram upprunalega í frumvarpinu, og að hann hafi heimild til að geta stigið inn sé það nauðsynlegt. Tryggja þarf að innlend smágreiðslumiðlun sé ódýr og öllum aðgengileg. Hér er breytingartillagan harðlega gagnrýnd á mjög skýran og greinargóðan hátt. Ég tek undir þessi sjónarmið og er ég viss um að margir hv. þingmenn sem tóku til máls þegar málið var hér til umræðu eru mér sammála.
Auk neytendasjónarmiða eru aðrar neikvæðar afleiðingar af breytingartillögu meiri hlutans ef hún nær fram að ganga. Það getur verið aukinn kostnaður fyrir fyrirtæki. Hærri gjöld geta haft áhrif á kostnað fyrirtækja, sérstaklega lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem reiða sig á greiðsluþjónustu. Þessi breyting getur einnig leitt til minni samkeppni. Stærri aðilar gætu notað markaðsráðandi stöðu sína til að krefjast hærri gjalda. Breytingartillagan getur greinilega skert getu Seðlabankans til þess að tryggja sanngirni og án heimildar til að mæla fyrir um mörk á gjaldtöku getur Seðlabankinn ekki gripið inn í ef gjaldtakan er talin ósanngjörn eða ef hún hindrar virka samkeppni. Jú, vissulega eru önnur ákvæði laganna og auðvitað almenn ákvæði samkeppnislaga um bann við ólögmætu samráði eða misnotkun á markaðsráðandi stöðu, en eins og við þekkjum er Samkeppniseftirlitið fjársvelt og málsmeðferð getur tekið mörg ár, jafnvel áratugi eins og við sáum í haust þegar Samkeppniseftirlitið sektaði Samskip og Eimskip vegna ólögmæts samráðs, en rekja má upphaf rannsóknarinnar meira en tíu ár aftur í tímann. Það er gömul kennisetning í lögfræðinni sem á einmitt vel við í þessu samhengi. Hún hljómar svo, með leyfi forseta: „Justice delayed is justice denied.“ Ég er hér ekki að gagnrýna málshraða Samkeppniseftirlitsins, enda er um mjög mikilvæga eftirlitsaðila í stjórnsýslunni að ræða. Ég er einfaldlega að benda á að málin eru mikil og þung og það er nærtækara fyrir löggjafann að bæta úr annmörkum sem þessum áður en slæmu afleiðingarnar birtast í samfélaginu.
Svipuð sjónarmið eru rakin í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu. Samtökin benda á að breytingartillaga meiri hlutans sé samhljóma einni tillögu sem kom fram í minnisblaði Seðlabankans til nefndarinnar. Næst benda samtökin á að upprunalegu skýringarnar að baki heimildinni til að setja gjaldtöku greiðsluþjónustuveitanda mörk séu þau að takmarka kostnað sem lagður verði á viðskiptavini banka vegna millifærslna. Samtökin eru einmitt að benda á sömu niðurstöður og margir þingmenn og Neytendasamtökin hafa teflt fram, þ.e. að bönkum verði í raun í sjálfsvald sett hve hátt þeir stilla slíkri gjaldtöku. Enn fremur, þegar haft er í huga að bankar kunna að hafa talsverða hagsmuni af því hvernig greiðslumiðlunarstarfsemi þróast hér á landi, má í einhverjum mæli halda því fram að breytingartillagan muni tryggja þeim möguleika á að hagnast ótakmarkað á gjaldtöku fyrir millifærslu, t.d. við notkun skammtímareikninga og í rauninni notkun á kortunum okkar og þeim færslum sem við innum af hendi, sbr. að gefa símanum okkar app sem við greiðum með beint í búðinni, í versluninni. Við notum bara appið, eigum að borga 2.500 kr. og þá er skannaður síminn og takk fyrir, beinustu leið inn á reikninginn okkar og fjármunirnir eru færðir þar burt. Það er það sem er verið að tala um, þetta verður algjörlega óheft sem þeir geta lagt á færslugjöld. Færslugjöldin geta verið eins há og þeim sýnist í bönkunum.
Það er réttilega gerð grein fyrir því í umsögninni að Seðlabankinn hafi um nokkra hríð vakið athygli á því hve hár greiðslumiðlunarkostnaður er hér á landi, m.a. vegna notkunar greiðslukorta, í samanburði við kostnað í nágrannaríkjunum. Það er ljóst að bankar hafa beinna hagsmuna að gæta af því að halda aftur af nýsköpun og framþróun á þessu sviði. Samtök verslunar og þjónustu telja tillögu efnahags- og viðskiptanefndar um að afnema heimild Seðlabankans til þess að kveða á í reglum um rekstraröryggi greiðslumiðlunar um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda ekki aðeins óskynsamlega heldur til þess gerða að gera bönkunum fært að leggja stein í götu annars vegar þeirra sem vinna að þróun nýrra greiðslumiðlunarlausna og hins vegar verslunar- og þjónustufyrirtækja og neytenda sem ætti að geta hlotnast töluvert kostnaðarhagræði af þróun og útbreiðslu nýrra greiðslulausna. Hér er í rauninni unnið algerlega gegn því. Hér er í rauninni verið að reyna að þjappa saman. Hér er í rauninni verið að reyna að koma á ákveðinni markaðseinokun hvað lýtur að bönkunum. Þeir eru ekki að græða nóg. Það er ekki nóg að við greiðum í þjónustugjöld a.m.k. um 13,3 milljarða á ári. Þeir vilja meira, þeir fá aldrei nóg. Samtökin leggjast gegn þessari breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar og ég tek heils hugar undir þessi sjónarmið samtakanna.
Á heildina litið tel ég að breytingartillagan geti frekar haft neikvæð áhrif en jákvæð þar sem hún dregur úr neytendavernd og getu Seðlabankans til að tryggja virka samkeppni. Þótt slík heimild yrði sjaldan notuð getur hún verið mikilvæg til að koma í veg fyrir misnotkun. Ég segi bara þetta: Er ekki nóg um samþjöppun? Er ekki nóg um nánast einokun hér á ýmsum markaði? Einn og sami aðilinn er búinn að kaupa öll gluggafyrirtækin í landinu, allir þurfa nú glugga í íbúðirnar sínar. Við sjáum hvernig samþjöppunin er í rauninni á öllum sviðum í atvinnulífinu. Við erum tæplega 400.000 manna samfélag og í stað þess að taka fagnandi svona lausnum sem ættu að geta auðveldað okkur lífið og ættu ekki að kosta okkur krónu er í rauninni bönkunum gefin heimild til þess að setja hvaða krónutölu sem þeim sýnist á hverja einustu færslu. Gerir meiri hluti hæstv. efnahags- og viðskiptanefndar sér ekki grein fyrir því? Þær eru í rauninni algerlega galnar, þær tillögur sem hér hafa verið að koma fram. Þetta er svona í svipuðum anda og tillaga hv. efnahags- og viðskiptanefndar fyrir jólin þegar ráðist var á aldraða og öryrkja sem hafa flúið land vegna fátæktar. Þá átti að fella niður persónuafslátt þeirra. Maður á eiginlega ekkert einasta orð. Og ef við erum að tala um samkeppnismarkaðinn þá er hann nánast enginn. Það er í krafti þessarar einokunar og fákeppni sem í rauninni vöruverð hér fer upp úr öllu valdi, upp úr öllum hæðum, er bara algerlega sturlað. Það er í rauninni ekki á færi nema efnameira fólks að geta lifað sómasamlegu lífi í landi þar sem sagt er að drjúpi smjör af hverju strái, í landi sem verið er að montast af því með hæstv. forsætisráðherra að sé eitt ríkasta land í heimi, kaupmáttur hvað mestur og geta til að lifa góðu lífi bara aldrei verið betri — Ísland, besta land í heimi. En hér erum við að ræða frumvarp sem er enn eitt dæmi um það hvernig á að verja vígi auðvaldsins, hvernig á að stíga inn og verja bankana sem t.d. mátti ekki einu sinni að hækka skatta á, banka sem greiða sér tugi milljarða í arð á hverju einasta ári. Og meira að segja á frekar að reyna að losa okkur við bankana okkar heldur en að leggja það ok á íslenskan almenning að fá að njóta ávaxtanna sem þessar óbeðnu fjárfestingar eru að gefa okkur í dag. Við erum nógu góð til að fjárfesta í öllu sem er á hausnum. Við erum nógu góð til að stíga inn og bjarga bönkunum en þegar þeir eru raunverulega farnir að mala gull með því að pína okkur og gjörsamlega vaxtaokra svoleiðis á okkur að verið er að sjúga nánast hvern einasta blóðdropa úr millistéttinni og litlum og meðalstórum fyrirtækjum og fjölskyldum í landinu sem eru með skuldir, þegar kemur að því að við eigum að fá að njóta ávaxtanna, þá skal einkavæða gróðann. Hver þekkir ekki það? Hver þekkir ekki nákvæmlega flotta máltækið: Hér á alltaf að ríkisvæða tapið en þegar það er farið að skila arði þá skal einkavæða það og koma því til vina og vandamanna.