154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[16:05]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég verð nú að taka undir með síðasta ræðumanni og benda á að ein af þeim ógnum sem að okkur stafa, m.a. í ferðaþjónustunni, er okrið, verðið á öllum sköpuðum hlutum. Það gildir um þetta sem hér er um rætt líka. Ég verð því að mótmæla harðlega þeirri framkomnu breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar að ætla sér að fella brott heimild Seðlabanka Íslands til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda úr þessu frumvarpi.

Markmiðið með frumvarpinu er að efla öryggi, hagkvæmni og samkeppni í greiðslumiðlun hér á landi. Þetta eru brýn og mikilvæg markmið sem ég styð heils hugar. En til þess að ná þeim markmiðum er nauðsynlegt að Seðlabankinn hafi sterkar heimildir, þar á meðal heimildir til að takmarka óhóflega gjaldtöku af neytendum og kaupmönnum af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Ef Seðlabankanum eru ekki veittar slíkar heimildir er stórhætta á að hagsmunir neytenda verði fyrir borð bornir. Greiðsluþjónustuveitendur hafa sterka markaðsstöðu og án aðhalds geta þeir innheimt ósanngjörn gjöld sem hækka verð á vöru og þjónustu og bitna harðast á efnaminna fólki. Þetta blasir við. Tilkoma nýrrar innlendrar greiðslumiðlunar á ekki bara að snúast um öryggi eða hagræðingu heldur líka sanngirni gagnvart almenningi. Ef heimildir Seðlabanka Íslands á þessu sviði eru of veikburða er hætt við að við munum ekki ná því markmiði sem við stefnum að. Þá myndum við sleppa mikilvægu tækifæri til að efla samkeppni á fjármálamarkaði og þrýsta verðlagi greiðsluþjónustu niður. Traust kerfi rauntímagreiðslna í krónum myndi ógna núverandi einokun alþjóðlegra kortakerfa og auka möguleika minni greiðsluþjónustuveitenda en þeim árangri náum við ekki ef þeim verður eftirlátið of mikið svigrúm til verðlagningar eða okurs.

Að lokum myndi skortur á heimildum veikja getu Seðlabankans til að stuðla að fjármálastöðugleika, en hann er eitt af því mikilvægasta sem frumvarpinu er ætlað að tryggja. Þetta skiptir okkur miklu máli nú þegar við stöndum frammi fyrir ýmsum áskorunum og óvissu í efnahagsmálum. Burt með okrið.

Ágætu alþingismenn. Við hljótum öll að vera sammála um þau markmið sem þetta frumvarp á að ná til en til að við náum þeim verðum við að standa saman og tryggja að Seðlabankinn hafi allar nauðsynlegar heimildir, þar á meðal til að vernda hagsmuni neytenda. Þó það nú væri. Þar á meðal til að vernda hagsmuni allra þeirra í landinu sem eru að kikna undan öllum vöxtunum, vaxtavöxtunum, verðtryggingunum og okinu sem hér hefur hlaðist upp. Ég skora á ykkur að hafna þessari tillögu og tryggja að heimildin verði áfram hluti af frumvarpinu. Þetta er ekki aðeins spurning um tæknilega útfærslu heldur grundvallaratriði um að haga málum af sanngirni og hafa þarfir almennings í fyrirrúmi.