154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[16:09]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil aðeins klára það sem ég ætlaði að segja áðan í annarri ræðu. Höfum það alveg á hreinu: Með breytingartillögu sinni um að fella burtu úr reglugerðarheimild Seðlabankans að setja mörk á hámark greiðslu sem hann getur sett til greiðsluþjónustuveitenda þá er meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar að ganga erinda SFF, Samtaka fjármálafyrirtækja, það er algjörlega klárt mál. Seðlabankinn tekur þessa vitleysu upp í umsögn sinni og gerir að sinni með sama hætti og er þá raunverulega að vísa til kafla sem heitir Óvenjulegt inngrip í rekstur fyrirtækja á samkeppnismarkaði. Það er svolítið gaman að því að í lokin segir SFF, með leyfi forseta:

„Þá virðist takmarkað mat hafa farið fram á því hvort að fyrirhuguð lagasetning kunni að brjóta gegn samkeppnislögum og reglum EES-réttar um ríkisaðstoð, staðfesturétt og frjálst flæði þjónustu.“

Lögin um greiðsluþjónustu, sem ég fór yfir hér áðan, ákvæði sem er 35. gr., 36. gr. og 62. gr. laga um greiðsluþjónustu, byggjast á því að notandi greiðsluþjónustu — það segir hér í 2. mgr. 62. gr.:

„Notandi greiðsluþjónustu og greiðsluþjónustuveitandinn skulu semja sín í milli um þessi gjöld og skulu þau vera viðeigandi og í samræmi við raunverulegan kostnað greiðsluþjónustuveitandans.“

Svo kemur líka fram að viðtakandi greiðslu skuli greiða fyrir þjónustuna. Það er klárt mál, ef þetta gjald verður það hátt, að þá mun viðtakandi greiðslu ekki vilja taka á móti þessum greiðsluöppum sem greiðslumiðlun, kæmi ekki til mála, af því að það er of dýrt fyrir hann, kostar of mikið, og líka að reglurnar ganga út á það að efla samkeppni. Það segir í innganginum að PSD2. Svo er SFF að þusa um samkeppnisrétt fram og til baka í sinni umsögn sem er einfaldlega rangt. Það er klárt mál að með því að Seðlabankinn hefur heimild til að setja mörk á gjaldið þá er raunverulega — hvað er þá að gera? Jú, þá er það bara þannig að Seðlabankinn er að framfylgja lögunum, segja að þetta séu þau mörk sem hann telji vera viðeigandi og í samræmi við raunverulegan kostnað. Svo einfalt er það.

Þetta er líka í samræmi við 37. gr. þar sem segir að lánastofnanir og viðskiptabankar skuli veita greiðsluþjónustu aðgang að greiðslureikningaþjónustu þeirra á hlutlægan hátt án mismununar og í samræmi við það lögmæta markmið sem greiðslustofnunin stefnir að. Það er algjörlega klárt mál að ef Seðlabankinn hefur þessa heimild þá væri þessi heimild í samræmi við gildandi lög og ef hann myndi setja mörk um greiðslu fyrir þjónustuna þá væri það líka í samræmi við gildandi lög. Það er meira að segja gildandi samræmi við EES-réttinn ef þú horfir á greiðsluþjónustutilskipunina á innri markaði ESB, svo það liggur algjörlega klárt fyrir að þetta væri í samræmi við gildandi lög.

Það sem er líka hérna undir er það, og Flokkur fólksins er með breytingartillögu hvað þetta varðar, að það liggur í augum uppi að það er önnur hætta sem stafar að óháðri greiðslumiðlun. Það eru hinar tæknilegu viðskiptahindranir. Það er ef einhver einstaklingur eða aðili eða fyrirtæki kemur með greiðsluapp þar sem einstaklingur þarf að gefa aðgang að reikningi sínum og ef bankarnir fara að krefjast þess að í hvert sinn sem einstaklingur ætlar að greiða með þessu appi, með því að láta skanna strikakóða eða QR-kóða, þá þurfi hann að fara inn í heimabanka og veita heimild þar, þá er verið að eyðileggja þessa nýju tækninýjung. Að sjálfsögðu eiga að vera sömu reglur varðandi þessi greiðsluöpp og eru í dag í svokölluðum rafrænum skilríkjum varðandi debetkort, þá þarf einstaklingur ekki að fara inn í bankann og veita heimild í banka þegar hann lætur skanna greiðslukortið sitt, rafræna greiðslukortið sitt, í símanum sem er í svokölluðu „wallet“, rafræna seðlaveskinu. Það er grundvallaratriði að önnur greiðslumiðlun en varðandi greiðslukort búi við sömu skilyrði og greiðslukortin hafa þegar. Það er algjört grundvallaratriði, þ.e. að einstaklingur geti tekið út af reikningi sínum í versluninni með því að láta skanna strikakóða eða QR-kóða með einföldum og auðveldum hætti, (Forseti hringir.) alveg eins og þegar hann notar greiðslukortið. Það er grundvallaratriði. Á því byggist breytingartillaga Flokks fólksins sem verður lögð fram við 3. umræðu.