skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða, frá efnahags- og viðskiptanefnd.
Ég ætla að fara aðeins yfir nefndarálitið. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund ýmsa aðila, m.a. frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Hagsmunasamtökum heimilanna, Landssamtökum lífeyrissjóða, Gildi lífeyrissjóði, Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins.
Nefndinni bárust sex umsagnir og minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem eru aðgengileg á síðu málsins á vef Alþingis.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða. Annars vegar er lagt til að heimila lífeyrissjóðum að fjárfesta hluta eignasafns síns í ákveðnum óskráðum fjármálagerningum útgefnum af félögum sem hafa það að meginstarfsemi að leigja út íbúðarhúsnæði til einstaklinga. Hins vegar er lagt til að lífeyrissjóðum verði heimilað að eiga stærri hlut en 20% í hverju leigufélagi sem hefur þá meginstarfsemi að leigja út íbúðarhúsnæði til langs tíma til einstaklinga. Þetta er þó með því skilyrði að hlutur hvers lífeyrissjóðs í slíku félagi megi ekki vera stærri en 50%.
Ég ætla að leyfa mér að fara aðeins yfir umfjöllun nefndarinnar í þessu máli. Í þeim umsögnum sem nefndinni bárust kom fram að frumvarpinu væri fagnað og var lýst yfir stuðningi við að það yrði að lögum. Markmið frumvarpsins er að auðvelda lífeyrissjóðum að koma að fjárfestingum í leigufélögum. Ég held að það sé rétt að hafa það í huga að þetta er í samræmi við markmið stjórnvalda þegar kemur að húsnæðismarkaðnum, að treysta umgjörð leigumarkaðar og koma honum í betra stand, ef svo má segja, að hann verði heilbrigðari og það verði meiri fyrirsjáanleiki þegar kemur að leigumarkaði en verið hefur hér á landi, vil ég leyfa mér að segja. Ég ætla líka að leyfa mér að segja að þetta sé svona viðbragð við því sem verið hefur.
Í sameiginlegri umsögn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sagði að aukið framboð fjölbreyttra búsetukosta væri til þess fallið að stuðla að heilbrigðari húsnæðismarkaði og draga raunverulega úr kostnaði heimila án þess að opinber stuðningur þyrfti að koma til.
Í umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða var minnt á mikilvægi þess að hefja vinnu sem fyrst við að yfirfara með heildstæðum hætti fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða. Nefndin tók undir þetta sjónarmið og bendir á að vorið 2023 var skipaður starfshópur um grænbók um lífeyriskerfið sem mun skila drögum síðar á þessu ári eða árið 2024.
Í umsögn ÖBÍ var lögð áhersla á samfélagslega ábyrgð lífeyrissjóða með virkan eignarhluta í félögum sem leigja íbúðarhúsnæði til einstaklinga í langtímaleigu. Lögðu samtökin til að ráðherra kvæði á um slíkt í reglugerð sem og um algilda hönnun og aðgengi, eitthvað sem ég held að við hljótum flestöll að geta tekið undir og verið sammála um. Nefndin vísar til minnisblaðs ráðuneytisins þar sem fram kom að samfélagsleg ábyrgð hefur undanfarin ár verið til umræðu innan lífeyriskerfisins. Jafnframt nefndi ráðuneytið að fyrirhugað væri að innleiða svokallaða CSRD-tilskipun, sem innleiðir sjálfbærni við reikningsskil ársreikninga félaga og kann að leiða til breytinga á ákvæðum laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, m.a. varðandi upplýsingagjöf stjórnar sjóða um umhverfis- og samfélagsmál.
Þá lagði Gildi lífeyrissjóður til orðalagsbreytingu á 1. gr. frumvarpsins í umsögn sinni til áréttingar því að um væri að ræða viðbótarheimild til fjárfestinga en ekki takmörkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða. Nefndin tók undir það með ráðuneytinu að orðalag frumvarpsins kveði skýrt á um að því hlutfalli heildareigna lífeyrissjóðs sem frumvarpið mælir fyrir um sé ætlað að koma til viðbótar við heimild lífeyrissjóðs skv. 1. mgr. í 3. mgr. 36. gr. b.
Frú forseti. Ef við förum yfir þær breytingartillögur sem nefndin leggur til þá kom fram í umsögn Gildis lífeyrissjóðs tillaga um orðalagsbreytingu á 2. gr. frumvarpsins. Bent var á að svo virtist sem farist hefði fyrir að tiltaka í ákvæðinu að fjárfesting lífeyrissjóðs í félögum þar sem meginstarfsemin er langtímaleiga íbúðarhúsnæðis til einstaklinga kunni að vera óbein í gegnum hluti eða hlutdeildarskírteini sjóða um sameiginlega fjárfestingu, til samræmis við 1. gr. frumvarpsins. Að höfðu samráði við ráðuneytið fellst nefndin á þessa tillögu og leggur til breytingu þess efnis.
Nefndin leggur jafnframt til tvær orðalagsbreytingar sem ekki er ætlað að hafa áhrif á efni frumvarpsins.
Að þessu og framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
1. Í stað orðsins „verðbréfamarkað“ í 1. málslið 1. gr. kemur: markað.
2. Við 2. gr.
a. Í stað orðsins „hlut“ í 1. málslið kemur: hluta.
b. Við 1. málslið bætist: eða í hlutum eða hlutdeildarskírteinum sjóða um sameiginlega fjárfestingu, sem fjárfesta eingöngu í hlutabréfum og skuldabréfum útgefnum af slíkum félögum.
c. Við 2. málslið bætist: eða sjóði um sameiginlega fjárfestingu.
Hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir nefndarálitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Undir álitið rita, auk þess sem hér stendur, Teitur Björn Einarsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Elín Íris Fanndal, Guðbrandur Einarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Oddný G. Harðardóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.
Ég ætla að leyfa mér að segja, frú forseti, að það er ánægjulegt að það hafi verið mikil samstaða um þetta brýna mál í nefndinni og ég endurtek og ítreka það sem ég sagði, að ég held að þetta sé skref í rétta átt til að tryggja og búa þannig um hnútana að hér byggist upp heilbrigður leigumarkaður með fyrirsjáanleika fyrir þá sem inn á hann stíga og vilja stíga og vera þar. Ég held að það sé brýn þörf á meiri og meira afgerandi innkomu lífeyrissjóða inn á þennan markað, enda held ég að þessi fjárfesting sé skynsamleg fyrir langtímafjárfestingu og -fjárfesta eins og lífeyrissjóðir eru.