154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[16:24]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, þ.e. fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða. Þetta er hið besta mál og verður að segjast alveg eins og er að það er löngu tímabært að veita lífeyrissjóðum aukna heimild til fjárfestinga í húsnæði, leiguhúsnæði og leigufélögum. En þrátt fyrir vel meintar tillögur er ég á þeirri skoðun að frumvarp það sem hér liggur fyrir muni ekki nægja til að mæta uppsafnaðri íbúðaþörf og koma jafnvægi á húsnæðismarkaðinn. Í fyrsta lagi eru þær fjárfestingarheimildir sem frumvarpið veitir lífeyrissjóðum allt of takmarkaðar til að hafa vel áhrif. Að binda aðeins 5% heildareigna í leigufélögum er dropi í hafið miðað við þá miklu þörf sem er fyrir nýtt íbúðarhúsnæði. Fjárfestingarnar þyrftu að vera margfalt meiri til að skila raunverulegum árangri. Í öðru lagi er ekki tryggt að þessar fjárfestingar skili sér í auknu framboði á hagkvæmu leiguhúsnæði fyrir almenning. Eins og frumvarpið er sett upp er ekkert sem tryggir að leiguverð verði viðráðanlegt eða að raunveruleg félagsleg blöndun náist í þessum íbúðum. Hætt er við að þetta verði bara lúxusíbúðir á okurverði eins og við þekkjum til, því miður. Í þriðja lagi vantar heildstæða húsnæðisstefnu og aðgerðir til að vinna á öðrum rótum vandans, svo sem skorti á byggingarlandi, löngu skipulagsferli og háum byggingarkostnaði. Lífeyrissjóðir einir og sér geta ekki leyst þetta flókna samspil margra þátta. Hér þarf samstillt átak ríkis, sveitarfélaga, verkalýðshreyfinga og fleiri aðila. Það fer ekki á milli mála. Að lokum er ljóst að þrátt fyrir ágætar hækkanir á heimild lífeyrissjóða til fjárfestinga í óskráðum félögum þá dugar það skammt ef félögin sjálf eru ekki til staðar og tilbúin í verkefnið. Mikilvægt er því að skapa hvata og umgjörð sem laðar fram öflug leigufélög á húsnæðismarkaði.

Því miður held ég að þessar tillögur, þótt góðar séu, muni aðeins skila takmörkuðum árangri. Vandinn er stór og margþættur og það þarf mun víðtækari og markvissari aðgerðir. Við verðum að horfast í augu við það að hér þarf róttækar breytingar og stórátak allra helstu aðila samfélagsins. Þrátt fyrir að frumvarpið sé ágætisskref þá þurfum við stærri stökk. Við þurfum að berjast gegn viðvarandi lóðaskorti, svimandi háum vöxtum, húsnæðislið í vísitölu neysluverðs, umtalsverðri gróðastarfsemi, hagnaðardrifnum leigufélögum og svo mætti lengi áfram telja. Þetta frumvarp er eflaust til bóta en við megum ekki staldra við og halda það að íbúðavandinn muni leysast úr þessu. Við þurfum að taka stærri skref og helst sem fyrst.

Ég held að það sé engin spurning að það er hreinlega krafa að við eigum að sjá til þess að það séu og verðum eiginlega að gera kröfu á sveitarfélögin að þau skaffi óhagnaðardrifnum leigufélögum lóðir á hagstæðu verði sem þau geta fengið hreinlega sem fyrst, vegna þess að öðru leyti náum við ekki niður þessu hrikalega leiguverði sem er í dag. Við verðum að segja alveg eins og er að við erum að leika okkur í dag að æsku þessa lands. Stór hópur fólks var hreinlega plataður til að halda að við byggjum í lágvaxtalandi. Yfirlýsingar voru um það að við værum komin á sama stað og hin Norðurlöndin, værum bara í fínum málum og gætum þar af leiðandi borgað af óverðtryggðum lánum og átt gott líf. En annað kom nú á daginn. Við verðum og okkur ber skylda til þess að passa upp á að svona hlutir séu gerðir þannig að við séum ekki að leika okkur að unga fólkinu okkar sem er kannski þegar byrjað að kaupa. Það fer af stað og kaupir sér íbúð og á að borga einhverjar 200.000 kr. á mánuði sem er allt í einu, á einni nóttu liggur við, komið í 400.000 kr. Þessi 200.000 kr. hækkun er bara vextir. Vextir eru orðnir af 400.000 kr. afborgun á mánuði 370, 380 eða 390.000 kr. Þetta er auðvitað galið og þekkist hvergi í heiminum. Ég segi eins og ég hef oft sagt að ég hef reynt að útskýra þetta fyrir kollegum mínum í Norðurlandaráði þegar þetta hefur komið til umræðu og það er vonlaust að fá fólk til að skilja svona ósköp. Þetta bara gengur ekki upp.

Síðan eru leigufélögin auðvitað grafalvarlegt mál. Leigumarkaðurinn getur tekið stökkbreytingu bara einn, tveir og þrír. Ég fæ upplýsingar frá fólki sem er á örorku og er með 320.000 kr. útborgað og leigan fer í 360.000 kr. á einni nóttu úr 270, 280.000 kr. Þá segir sig sjálft að það gengur engan veginn upp að hægt sé að koma svona fram við fólk, fyrir utan það að leigufélög sem eru sérstaklega að leigja fólki sem er í almannatryggingakerfinu eru löngu sprungin vegna biðlista. Því þarf að taka á og þar þurfa sveitarfélögin líka að hjálpa til. Þar þurfa lífeyrissjóðirnir líka að koma inn. Það þarf að sjá til þess að þeir sem eru í þeirri aðstöðu að vera á lægstu launum eða í almannatryggingakerfinu eigi möguleika á að kaupa sér íbúð. Það hlýtur að vera eitthvert undarlegt kerfi ef við segjum við einstakling: Þú getur leigt á 320.000 kr. en þú getur ekki keypt og borgað kannski 200, 250.000 kr. í afborganir af láninu. Það bara gengur ekki upp. Við verðum að breyta þessum hugsanagangi.

Ég vona svo heitt og innilega að þetta frumvarp verði til þess að sveitarfélögin spýti í lófana, að ríkið taki sig á og að Seðlabankinn fari að sjá eitthvað annað en að halda stýrivöxtum í hæstu hæðum og mergsjúga fólk. Það hefur bæði áhrif á fólk sem er að kaupa og líka fólk sem er á leigumarkaði vegna þess að þetta fylgist allt að. Það þarf að sjá til þess og tryggja, helst strax, að ekki sé verið að ganga þannig fram af fólki, hvort sem það er í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði, að það eigi ekki fyrir neinu öðru en bara leigunni og hafi ekkert til að framfleyta sér eða börnum sínum. Það bara gengur ekki upp.