154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[16:32]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Ágúst Bjarni Garðarsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu og ég get tekið undir margt sem fram kom í máli hans. Ég held að það væri hægt að standa hér mjög lengi og ræða bara húsnæðismarkaðinn almennt. En ef við reynum að afmarka umræðuna og fara í þetta tiltekna frumvarp þá er kannski tvennt sem ég vildi spyrja hv. þingmann að. Ég held að það sé ágætt að hafa í huga í þessu sambandi að það er búið að gera ýmislegt. Nú erum við til að mynda komin með tölulegar staðreyndir. Öllum sveitarfélögum er gert að skila húsnæðisáætlunum. Það er komin ágætisyfirsýn yfir það hvað við þurfum að byggja og hver þörfin er inn í nánustu framtíð á nærsvæðunum hjá bæjarstjórnunum sem hafa auðvitað mjög góða yfirsýn yfir það hvernig markaðurinn í tilteknum sveitarfélögum er að þróast. Það er eitt.

Mig langar að spyrja: Ég get alveg tekið undir það með þessi 5%, ég lít samt svo á að það sé mjög gott fyrsta skref. En ég held að við þurfum líka að hafa í huga að lífeyrissjóðirnir eru inni á þessum markaði. Þeir eru inni á lánamarkaðnum, eru að lána til fasteignakaupa o.s.frv., þannig að þeir eru auðvitað að gera ýmislegt nú þegar. Það er þá fyrri spurningin hvar hv. þingmaður myndi vilja sjá þetta þak eða þetta gólf, í hvaða prósentu, hvernig hann myndi vilja sjá þetta þróast. Síðari spurning mín er: Ég er fyrrum sveitarstjórnarmaður og þekki þá pólitík sem þar er ágætlega. Við erum alltaf að kljást við þetta, að það er verið að tala um of hátt lóðaverð, of lágt o.s.frv. Hér er verið að tala um að gefa óhagnaðardrifnum félögum lóðir. Gott og vel. Auðvitað er hugurinn góður en ég velti fyrir mér hvar fjármunirnir eiga að koma til að byggja upp nauðsynlega innviði, gatnakerfi, gangstíga, skóla og leikskóla. Ég held að það liggi alveg ljóst fyrir að sveitarfélögin geti ekki verið að gefa þessi verðmæti, það þurfi alltaf að koma fjármagn til að byggja upp nauðsynlega innviði í samfélaginu.