skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Bjarna Garðarssyni fyrir hans andsvar. Jú, hvar sé ég þakið fyrir mér, ef við tökum bara fyrri spurninguna. Ég held að það sé alveg öruggt að fjárfesting lífeyrissjóðanna á húsnæðismarkaði á Íslandi getur ekki annað en verið hagkvæm. Það er það hagkvæmasta sem einstaklingur hefur gert á Íslandi. Undanfarna áratugi hefur það verið mun hagkvæmara að fjárfesta í húsnæði frekar en að vera með peninga í banka, á reikningi. Þegar lífeyrissjóðirnir eru að tala um að þeir þurfi að ná 3,5% ávöxtun þá held ég að það sé engin hætta á því að þeir nái því ekki á húsnæðismarkaðnum á Íslandi eins og hann hefur verið og þróast undanfarin ár. Síðan verðum við líka að horfa á það, t.d. með stærsta sveitarfélagið í Reykjavík, að þeir hafa einblínt á að byggja á þéttingarreitum sem er rándýrt. Það er ekkert fyrir venjulegt fólk að fjárfesta þegar þú ert kominn með tveggja herbergja íbúð upp í 70 milljónir. Þá segi ég: Það er ekki fyrir venjulegt fólk, hvorki þá sem eru á lægstu launum né þá sem eru í almannatryggingakerfinu, að fara þar inn. Síðan er það þetta með lóðir, gatnagerðargjöld, gangstíga og annað — það segir sig sjálft. Um leið og verður byrjað að byggja þá koma inn tekjur hjá sveitarfélögunum. Það þarf að vera eitthvert samræmi þarna á milli. Hingað til hefur það verið þannig að þú byggir upp hverfið og leggur allar leiðslur og gangstíga og annað og síðan kemur fólk inn og byrjar að borga til samfélagsins. Þannig hefur þetta gengið. Og ég efast ekkert um að það er hægt að gera það þannig að lóðirnar séu hagkvæmar, að þetta sé allt tryggt inni í því, en þarna sé ekki um gróðastarfsemi að ræða (Forseti hringir.) heldur sé bara nákvæmlega sá kostnaður reiknaður þar inn sem verður að vera.