skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er alveg sammála þingmanninum. Hagkvæmar lóðir er annað en að gefa lóðir. Ég held að það sé algerlega óumdeilt að útsvar og fasteignagjöld, sem við íbúar í sveitarfélögunum greiðum, duga einungis fyrir rekstrinum, duga fyrir því að manna skólana okkar, leikskóla og velferðarþjónustuna í sveitarfélögunum. En þau duga ekki fyrir innviðafjárfestingu og þess vegna þarf alltaf eitthvert endurgjald að koma til þegar verðmætum eins og lóðum er úthlutað. Ég spyr hvort þingmaðurinn sé ekki sammála mér um að það þurfi að finna einhverja leið í þessu, og þá held ég að það sé vel hægt að verða við því að fleiri lóðum sé ráðstafað í það fyrirkomulag sem þingmaðurinn nefnir, til þeirra leigufélaga sem eru að reka sig á óhagnaðardrifnum sjónarmiðum. Það væri áhugavert að heyra það aðeins betur frá þingmanninum hvort hann sé ekki sammála þessari nálgun.
Í öðru lagi, það er kannski ekki bein spurning, tek ég algjörlega undir það og hef margoft sagt það, að það er ekkert sérstaklega gott að við séum að fara með lóðir sem einhver gríðarleg verðmæti, að það sé jafnvel betra að fjárfesta í lóðum en að geyma peninga. Þetta býr til braskmarkað, sem ég held að sé ekki mjög skynsamlegt til lengri tíma, auk þess sem verið er að koma í veg fyrir — við höfum því miður verið að gera það og þingmaðurinn nefndi Reykjavík, ég get tekið undir það — að við getum byggt nægilega mikið. Það hefur auðvitað þær afleiðingar að við sjáum að fasteignaverð hefur hækkað alveg gríðarlega sem svo kyndir undir verðbólguna. Ég hef sagt að eina leiðin í þessu, bæði til að koma þaki yfir höfuðið á íbúum þessa lands og til þess að ná tökum á verðbólgunni, sé að byggja mikið meira.