154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[16:39]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Ég er alveg sammála því, ég myndi aldrei vera sammála því að það eigi að byggja og framkvæma lóðauppbyggingu án þess að allur kostnaður sé reiknaður inn í dæmið. En auðvitað er munur á því og síðan þeim félögum sem eru að byggja til þess að græða. Við verðum líka að horfa á það að byggingarstefnan — það hefur alltaf verið stefnt að því að byggja þetta margar íbúðir á næstu árum og þetta stenst aldrei. Þar held ég að bæði sveitarfélög og ríki þurfi að fara að bretta upp ermarnar og reyna að finna það út að það er lóðaskortur til staðar. Það er ekki nóg framboð af lóðum, ekki hagkvæmum lóðum til að byggja hagkvæmar íbúðir, heldur erum við að reyna að troða óhagkvæmum lóðum inn sem eru dýrar. Það kostar mikið að þurfa fyrst að fjarlægja þær byggingar sem fyrir eru og síðan að byggja, það er margfalt dýrara í okkar samfélagi og endar auðvitað í verðinu. Það hjálpar ekki þeim sem mest þurfa á hjálp að halda. Ég segi ekkert annað en það að ég vona heitt og innilega að þetta verði fyrsta skrefið í því að farið verði að hugsa út í það að forgangsraða rétt. Við þurfum að forgangsraða núna gagnvart þeim sem verst hafa það í okkar samfélagi og það eru þeir sem eru á lægstu launum og almannatryggingum, að þeir geti haft einhverja von um að geta annaðhvort fengið hagkvæmt húsnæði á leigu, sem fólk ræður við, til að geta lifað mannsæmandi lífi eða að geta keypt íbúð sem væri að mörgu leyti betra. Það er auðvitað skrýtið ef þú getur leigt fyrir 320.000 kr. á mánuði en mátt kannski ekki kaupa fyrir 200.000 kr. afborgun á mánuði. Það er stórfurðulegt.