154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[16:41]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er mikilvægt mál en samt lítið skref. Staðan er einfaldlega sú að lífeyrissjóðirnir eru í þessu leyfilega hámarki sem þeir eru með vegna óskráðra hlutabréfa o.s.frv., þannig að það verður að rýmka til til þess að þeir geti farið og bætt við fjárfestingu í óhagnaðardrifnum leigufélögum. Gott og blessað. Það má alveg deila um hvaða hlutföll eru heppileg o.s.frv., hvort lífeyrissjóðirnir geti nýtt sér svigrúm eða hafi svigrúm til að fara í þessar fjárfestingar og hversu hratt og þess háttar. En það sem mér finnst eiginlega alvarlegra eru kannski afleiðingarnar af þessu máli til lengri tíma. Ég held að það sé ekki nægilega góð langtímahugsun hvað varðar húsnæðismarkað á Íslandi, það er eitthvað sem við verðum að pæla í. Það er einmitt samhengi húsnæðismála og lífeyriskerfisins. Staðan er sú að lífeyrissjóðakerfið og séreignarstefnan — þó að hún sé ekki byggð á lögum o.s.frv. þá er samt gert ráð fyrir henni — eru samofin kerfi. Annað kerfið er formlegt, bundið í lög, lífeyrissjóðakerfið, en hitt kerfið, séreignarstefnan, er ekki bundið í lög. Þetta virkar í rauninni á þann hátt að gert er ráð fyrir því að fólk sé með tvo þriðju, þrjá fjórðu af ævitekjum í lífeyrissjóðstekjur þegar það fer af vinnumarkaði. Almennt er það svo að gert er ráð fyrir því að kostnaður vegna húsnæðis sé um þriðjungur til fjórðungur af ráðstöfunartekjum. Þetta er svona þumalputtareglan. Það þýðir að þegar fólk fer á ellilífeyri þá missir það þriðjung til fjórðung af tekjum sínum. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að það á að vera komið í skuldlaust húsnæði og á þá ekki að þurfa að borga þennan þriðjung til fjórðung af ráðstöfunartekjum sínum, lífeyristekjum sínum, í húsnæðiskostnað. Þannig gengur málið upp.

En ef staðan er hins vegar sú að fólk er ekki enn komið í skuldlaust húsnæði þegar það fer á lífeyri eða er í leiguhúsnæði þar sem það þarf að borga af ráðstöfunartekjum ellilífeyrisins þá er það tekið af þessum þremur fjórðu, tveimur þriðju af launum. Það er sem sagt gengið á ráðstöfunartekjur fólks sem eiga að duga til þess að það hafi ofan í sig og á, sem áttu að vera fyrir eitthvað annað en húsnæðiskostnað. Ef við erum að fara að vinna í því að koma upp einhverjum almennum leigumarkaði og í rauninni hverfa frá séreignarstefnunni og við fáum þá eftir einhvern einn eða tvo áratugi, eitthvað svoleiðis, stóran hóp leigjenda, sem hafa bara alltaf verið leigjendur, inn á ellilífeyri og eiga að greiða leigu af þeim ellilífeyri þá verður sá hópur einfaldlega í mjög miklum vanda. Þetta er einfalt reikningsdæmi, mjög einfalt reikningsdæmi.

Mér finnst skorta þessa langtímahugsun: Hvað gerist, bara hagkerfislega, ef við komum upp almennum leigumarkaði án þess að pæla í því hvaða áhrif það hefur á lífeyriskerfið? Hvernig ætlum við að koma til móts við leigjendur sem eru á lífeyristekjum eftir mörg ár? Húsnæðisbæturnar eins og þær eru í núverandi kerfi eru ekki beint ætlaðar til þess að grípa svona hóp, ekki séns. Það vantar heildarhugsunina um það hvernig svona hagkerfi virkar, hvernig við förum frá því að vera með atvinnutekjur yfir í það að vera með lífeyristekjur og hvernig við annaðhvort eignumst húsnæði sem við þurfum ekki að nota lífeyrissjóðsgreiðslurnar okkar til að greiða af eða verðum í leiguhúsnæði, myndum ekki neina eign og höldum áfram að þurfa að greiða húsnæðiskostnað af lífeyrissjóðstekjunum okkar. Það er grundvallarmunur í rauninni á þessum tveimur hópum, annars vegar þeim sem hefur tekist að eignast húsnæði og losna þar af leiðandi við kostnaðinn á efri árum og hinum hópnum, leigjendunum sem koma til með að þurfa áfram að borga húsnæðiskostnað þegar þeir komast á ellilífeyri.

Ég tel að ef við náum ekki utan um þennan vanda sem fyrst, ef við erum að byggja upp almennan leigumarkað, þá verðum við komin út í svona svipað húsnæðisvandamálshorn og við erum að horfa fram á núna, ákveðinn skort á húsnæði o.s.frv. Það mun hafa áhrif á þennan hóp sem kemur inn í ellilífeyriskerfið án þess að vera með séreign. Ég vildi bara koma því að í þessari umræðu því að þetta mál er eitt af fyrstu skrefunum í þá átt að búa til svoleiðis húsnæðismarkað, félagslegan húsnæðismarkað, vissulega, en sem tekur samt ekki tillit til almannatryggingakerfisins og hvernig það virkar og lífeyrissjóðakerfisins sem slíks. Ég myndi vilja sjá hvernig komið verður til móts við þann hóp, hvernig hann passar inn í þetta nýja fyrirkomulag sem er verið að reyna að setja hér upp.