154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[16:48]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir hans ræðu og ég tel þetta mjög áhugaverðar pælingar. Kannski er einhver lausn á þessu máli kaupleiga þannig að þú myndir eignast húsnæðið á 40 árum. Síðan eru þetta pælingar um að þú sért með nákvæmlega sömu tekjur og þú ert með fyrir 67 ára aldur og eftir það, þegar þú ert kominn á eftirlaun. Hvernig getum við tryggt það? Ég held að vandamálið liggi í kerfinu í dag, gamla kerfið er þannig í lífeyrissjóðunum að þú mátt reikna með því að eftir 40 ár af inngreiðslum sértu með 56% af þeim launum sem þú ert með þegar þú ferð á eftirlaun. Það segir auðvitað að þarna ertu að lækka um nærri helming í launum og það segir sig sjálft að ef þú lækkar um helming í launum þá geturðu ekki staðið undir þeim skuldbindingum sem þú ert með. Að vísu er kannski aðeins betri staða hjá þeim sem eru í almannatryggingakerfinu. En það þýðir bara að þeir eiga að hokra áfram í sömu fátæktinni eftir að þeir verða 67 ára og þeir voru í fyrir. Við höfum mörg dæmi um það að sumir af þeim sem eru á örorku og fara yfir í ellilífeyriskerfið lækka í launum vegna þess að þá eru þeir orðnir heilbrigðir í boði ríkisins, eru ekki lengur öryrkjar heldur heilbrigð gamalmenni, sem er auðvitað arfavitlaus nálgun.

Ég held að eina leiðin sé bara að tryggja það hreinlega að annaðhvort erum við með kaupleiguíbúðir eða við tryggjum það að þegar þú ferð á eftirlaun þá færðu aldrei minna en það sem þú ert með fyrir, þannig að þú sért jafn vel stæður með þína leigu og þínar skuldbindingar eftir að þú ferð á ellilífeyri og þú varst fyrir.