skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Forseti. Já, ég fjallaði aðeins um þetta í tengslum við fjármálaáætlun og fjárlög. Ég held að kaupleigufyrirkomulagið sé í rauninni lausnin í þessu. Húsnæðiskostnaður er í rauninni þriðjungur til fjórðungur af lífeyri fólks þegar allt kemur til alls og það er ekkert ósniðugt að lífeyrissjóðir fjárfesti í húsnæði sem er í rauninni ákveðin framtíðarlífeyrissjóðsgreiðsla sem slík. Það að lífeyrisþegar hafi aðgang að svona lífeyrissjóðshúsnæði er í rauninni trygging á kannski þriðjungi af lífeyristekjum fólks. Fyrirkomulagið gæti verið þannig að þau sem koma sér inn í lífeyrissjóðshúsnæðiskerfið greiða kaupleigu og eignast húsnæðið smám saman, klára í rauninni sína ævi í því kerfi, þetta er svona Búsetadæmi eða þvíumlíkt, og á þessum líftíma hefur lífeyrissjóðurinn fengið húsnæðið greitt aftur eða íbúðina plús kannski venjulegt álag fyrir viðhaldi og vöxtum og þessu klassíska og hefur þá fjármagn til að fjármagna kaup á næstu íbúð. Þannig gæti þetta undið upp á sig og verið sjálfbært. Það fer vissulega eftir því hvernig fólksfjöldi breytist en grunnurinn er alla vega settur þarna í því hvernig við viðhöldum í rauninni húsnæði og lífeyrisréttindum fólks á sama tíma og við tryggjum því þak yfir höfuðið.