skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið, ég er algerlega innilega sammála honum. En svo megum við ekki gleyma því að þessar lífeyrissjóðsgreiðslur lífeyrissjóðanna eru greiðslur frá fólkinu sjálfu. Þetta eru þeirra peningar. Það er eiginlega verið að láta viðkomandi einstaklinga vinna tvöfalt fyrir þá. Þetta á ekki að vera neitt vandamál. En ég held að vandamálið liggi bæði í hugsanaganginum hjá hverri ríkisstjórn hvers tíma og hjá sveitarfélögunum sem einhverra hluta vegna hafa ekki haft metnað til að sjá til þess að það sé hægt að útvega lóðir á skikkanlegu verði. Segja bara: Þessi lóð kostar þetta, það er bara lágmarkskostnaður við byggingarframkvæmdir og annað en það er tryggt að allt er inni í dæminu, enginn óþarfi, enginn lúxus, bara íbúð á skikkanlegu verði. Það sé séð til þess að þessir einstaklingar sem þurfa á þessu að halda geti bara keypt íbúðina, búið í henni og eignast í henni. Ef maður horfir á þennan leigumarkað þá náttúrlega furðar maður sig á þessu. Ég get tekið sem dæmi að ég var tímabundið á leigumarkaði og ég komst að því að ég gat leigt íbúð, sama hversu há leigan var, það var ekkert vandamál, en þegar ég benti á það að ég ætlaði að kaupa íbúð og afborgunin var helmingi ódýrari en leigan, helmingi minni afborgun heldur en nokkurn tímann leigan þá var sagt: Nei, þú mátt það ekki. Það er auðvitað galið ef það er hægt að segja við þig að þú getir farið í bankann og fengið tryggingu fyrir því að leigja á helmingi meira en ef þú ætlar að fara í bankann og fá lán til að kaupa íbúð og borga helmingi minna en leigan er, þá máttu það ekki. Það hlýtur að vera eitthvað brenglað í kerfinu sem þarf að breyta.