154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[16:57]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Herra forseti. Mig langaði bara til að koma hér upp og fagna þessu frumvarpi, sem er tímabært að komi fram. Það er ánægjulegt til þess að vita að allir nefndarmenn efnahags- og viðskiptanefndar samþykktu þetta mál í nefndinni. Það hefur verið kallað eftir auknu fjármagni inn á leigumarkað, eða til þess að byggja leiguhúsnæði og reka, en lífeyrissjóðirnir hafa verið nokkuð fríir frá því að taka þátt í því, hafa kannski frekar verið lánveitendur banka og ríkis hvað aðra hluti varðar. En þarna gefst lífeyrissjóðunum þá tækifæri til að koma inn á þennan markað með fjármuni sem geta verið umtalsverðir.

Það er til síða á netinu sem heitir lífeyrismál.is. Þar er m.a. verið að sýna eignir lífeyrissjóðanna sem eru umtalsverðar, margföld fjárlög íslenska ríkisins. Við erum t.d., samkvæmt stöplariti fyrir árið 2023, með eignir lífeyrissjóða upp á 7.286 milljarða. Þetta eru ótrúlegir fjármunir ef maður veltir þessu fyrir sér. Þar af eru um 800 milljarðar inni í séreign landsmanna. Síðan eru í samtryggingunni einhverjir 6.500 milljarðar. Ef maður reiknar 5% af samtryggingunni væru það 325 milljarðar sem lífeyrissjóðirnir hefðu heimild til að fjárfesta, eins og segir í frumvarpinu, í óskráðum bréfum eða fyrirtækjum; ekki endilega að kaupa bara í hlutabréfum í Kauphöllinni, í skráðum bréfum, þessi fasteignafélög eru nú ekki endilega skráð í kauphöll. Þarna eru því umtalsverðir fjármunir sem gætu farið í það að byggja húsnæði sem yrði þá nýtt til leigu. Maður veltir fyrir sér 325 milljarðar í þetta — það hafa þá væntanlega aldrei komið svona miklir fjármunir á einu bretti inn í svona, ef lífeyrissjóðirnir ákveða að færa til fjármuni úr þeim fjárfestingum sem þeir eru í núna. Væntanlega eru þeir núna með tæplega 3.000 milljónir í erlendum hlutabréfum og hinn helmingurinn liggur þá mest í skuldabréfum og ekki nema 1.000 milljarðar í hlutabréfum. Þetta gæti þá breyst, að lífeyrissjóðirnir færu þá meira að horfa á innanlandsmarkað í framhaldinu, og það myndi þá auðvelda þeim að fjárfesta. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt fyrir lífeyrissjóði sem taka við umtalsverðum fjármunum á hverju einasta ári, það er enn þá verið að safna í sjóði, fólk er enn að ávinna sér lífeyrisréttindi sem mun svo auðvitað breytast þegar fram í sækir. En núna þurfa lífeyrissjóðir örugga fjárfestingarkosti og það að fjárfesta innan lands, í félögum sem eru að leigja og eiga húsnæði, er að mínu mati bara af hinu góða. Enda voru umsagnir um frumvarpið á þann veginn að það voru allir sem fögnuðu þessu. Ég held að allar umsagnir hafi verið á þann veg. Það er auðvitað bara ánægjulegt að sjá að Alþýðusambandið tekur undir þetta, Landssamtök lífeyrissjóðanna taka undir þetta, að fjölga fjárfestingarkostum. Öryrkjabandalagið tekur undir þetta þannig að þetta getur ekki verið nema af hinu góða.

Mér finnst líka vera annar vinkill á þessu, ekki bara það að fjölga fjárfestingarkostum lífeyrissjóðanna heldur gæti þetta líka haft í för með sér breytingar á húsnæðismarkaði á Íslandi, verulegar breytingar á húsnæðismarkaði. Gamla félagslega húsnæðiskerfið var á sínum tíma lagt niður. Það kom ekkert annað í staðinn fyrr en Alþýðusambandið stofnaði Bjarg á sínum tíma, á 100 ára afmæli Alþýðusambandsins, og fékk BSRB til liðs við sig til að ná því í gegn. Enginn aðili sýndi því áhuga að fara í að reka fasteignafélag á félagslegum grunni þrátt fyrir að búið væri að tryggja það í kjarasamningum að það kæmu framlög frá ríkinu til að borga með fjárfestingunni svo að hægt væri að halda húsaleigu í lægri kantinum. En Alþýðusambandið fór í þetta og við sjáum að Bjarg hefur heldur betur náð fótfestu á markaði og það hefur verið mjög eftirsótt að leigja þar. Það að Alþýðusambandið skyldi hafa ráðist í þetta metnaðarfulla verkefni á sínum tíma var auðvitað bara frábært og í framhaldinu voru samþykkt lög hér á Alþingi um almennar íbúðir sem hefur verið unnið eftir síðan. Þetta hefur skipt marga máli, sérstaklega fólk sem er með lægri tekjur.

Það sem við erum að gera hér gæti líka stutt við það sem Bjarg hefur verið að gera hingað til. Það að fjölga íbúðum á markaði myndi auðvitað, bara miðað við framboð og eftirspurn, geta haldið húsnæðisverði í skefjum ef lífeyrissjóðirnir fara í það í gegnum þessi byggingarfélög að byggja, fjölga kostum og leigja. Og þá er kannski hitt málið eftir, sem er hvaða ávöxtun lífeyrissjóðirnir telja sig þurfa til þess að láta þetta ganga. Ég ætla að leyfa mér að vona að lífeyrissjóðirnir horfi þá á þetta sem dótturverkefni Bjargs, að þarna sé verið að horfa á þetta á félagslegum grunni því að auðvitað á fólkið í landinu lífeyrissjóðina, við verðum auðvitað að tryggja lífeyri til framtíðar. Það er búið að reikna út einhverja grunnfjárfestingarþörf lífeyrissjóðanna eða ávöxtunarþörf og ef þetta væri yfir henni ættu lífeyrissjóðirnir að geta verið ánægðir með það, en menn séu ekki alltaf að reyna að ná í hámarksávöxtun út úr hverju því verkefni sem þeir fara í heldur einhverja tryggingu á ávöxtun til lengri tíma sem myndi duga til að viðhalda þeim skyldum sem lífeyrissjóðirnir hafa hvað varðar greiðslu elli- og örorkulífeyris.

Virðulegur forseti. Það er frábært mál að sjá þetta gerast. Vonandi bregðast lífeyrissjóðirnir hratt við og taka við sér um leið og við samþykkjum þetta frumvarp og fara þá í að leita til sveitarfélaganna eftir lóðum til þess að fara að byggja — þeir eru nú þegar komnir inn í Heimstaden, eins og ég held að það heiti — og gætu þá aukið verulega við sig í framhaldinu. Það skiptir máli að við séum ekki alltaf með þennan frumskóg fyrir framan okkur og fólk sé farið að leigja 80–90 fermetra íbúðir fyrir 400.000 kr. á mánuði. Það bara gengur ekki. Það er ekki hægt fyrir fólk sem hefur ekki efni á að kaupa sér húsnæði og neyðist til að vera á leigumarkaði, að það sé verið að svína á því endalaust. Þessu þarf að breyta og vonandi fáum við lífeyrissjóðina í lið með okkur til þess að gera það.