154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

aðgerðir gegn peningaþvætti o.fl.

927. mál
[17:16]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, um áhættumat o.fl..

8Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á áhættumati að því er varðar fjármögnun gereyðingarvopna sem fela í sér viðbætur við ákvæði laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, en auk þess leiða þær til breytinga á lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023. Þá er mælt fyrir um breytingar á umgjörð varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í starfsemi tilkynningarskyldra aðila og úrræðum eftirlitsaðila til beitingar sekta. Þá er í frumvarpinu að finna breytingar á öðrum ákvæðum sem komið hefur í ljós við beitingu að þörf sé á að bæta úr.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti. Nefndarálitið liggur frammi.

Nefndin fjallaði um heimild til beitinga stjórnvaldssekta, en í 9. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 46. gr. laga nr. 140/2018. Meðal annars er lagt til að heimild eftirlitsaðila verði útvíkkuð og skýrt sé að sambærileg háttsemi gagnvart skrifstofu fjármálagreininga lögreglu varði áþekkum viðurlögum. Í umsögn Seðlabanka Íslands var þessum ákvæðum mótmælt. Bent var á að Seðlabankinn væri sjálfstæð stofnum og verkefni hans og stjórnskipulag ákveðið í lögum um Seðlabanka Íslands og áhyggjur voru uppi um að bankinn yrði settur í þá stöðu að taka við fyrirmælum frá þriðja aðila um beitingu þeirra valdheimilda sem bankanum hefðu verið veittar í þeim tilgangi að sinna lögbundnum verkefnum sínum. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins var áréttað að eftirlitsaðilar hafa nú heimild til að beita sektum ef ekki er farið að ákvæðum um upplýsingaskyldu og banni við miðlun upplýsinga.

Nefndin tekur undir svör ráðuneytisins, m.a. varðandi það að tillaga frumvarpsins gerir ráð fyrir því að sambærileg háttsemi gagnvart skrifstofu fjármálagreininga lögreglu og eftirlitsaðilum varði áþekk viðurlög sem eftirlitsaðilar hafi heimild til að taka ákvörðun um. Útvíkkun sektarheimilda sem ákvæðið felur í sér sé ekki annars eðlis en þær sektarheimildir sem þegar eru til staðar og beinast að áþekkum hagsmunum skrifstofu fjármálagreininga lögreglu. Að þessu gættu er ekki hægt að telja að heimildirnar muni á einhvern hátt hafa áhrif á sjálfstæði eftirlitsaðila, enda sé ekki gert ráð fyrir að skrifstofa fjármálagreininga lögreglu gefi eftirlitsaðilum fyrirmæli um farveg ætlaðra brota á lögunum. Mat á því hvort brotið hafi verið gegn ákvæðum laganna sé alfarið hjá eftirlitsaðilum en sem fyrr, á grundvelli málsmeðferðarreglna stjórnsýslulaga.

Þá fjallaði nefndin um gildistöku 11. gr. frumvarpsins, en þar kemur m.a. fram að tilkynningarskyldir aðilar skulu bera kennsl á og meta hættu á fjármögnun gereyðingavopna í starfsemi sinni, samningssamböndum og einstökum viðskiptum í áhættumati. Í gildistökuákvæði frumvarpsins segir að lög þessi öðlist gildi 1. september 2024. Aftur á móti skal 1. mgr. 11. gr. koma til framkvæmda 1. janúar 2025. Í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu kom fram að eðlilegt væri að gefa tilkynningarskyldum aðila í það minnsta fjóra mánuði til þess að framkvæma áhættumatið eftir að ríkislögreglustjóri hefur gefið út sitt áhættumat.

Nefndin bendir á að í athugasemdum við 12. gr. kemur fram um gildistökuna að gert sé ráð fyrir að áhættumat stjórnvalda í tengslum við hættu á fjármögnun gereyðingarvopna hafi verið gefið út og að tilkynningarskyldir aðilar geti tekið mið af því. Af því leiðir að áhættumat tilkynningarskyldra aðila getur ekki komið til framkvæmda fyrr en eftir að áhættumat stjórnvalda hefur litið dagsins ljós. Tillaga samtakanna er því efnislega sambærileg við það sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu.

Nefndin fjallaði að auki um að í 7. gr. frumvarpsins er lagðar til breytingar á 34. gr. laga nr. 140/2018, sem varða útvíkkun á umgjörð aðgerða hjá tilkynningarskyldum aðilum. Í skýringum með ákvæðinu segir að 34. gr. fjalli að meginstefnu til um hlutverk ábyrgðarmanns. Með breytingunni er gert ráð fyrir að í ákveðnum tilvikum sé tilnefndur regluvörður til viðbótar við ábyrgðarmann, sem beri ábyrgð á tilteknum verkefnum sem annars væru á hendi ábyrgðarmanns. Þá segir í greinargerð að Evrópska bankaeftirlitsstofnunin hafi gefið út viðmiðunarreglur um stefnu og verklag í tengslum við stjórnun, regluvörslu og hlutverk og skyldur regluvarðar vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í þeim er sérstaklega fjallað um framkvæmd og túlkun fjórðu peningaþvættistilskipunarinnar er varðar stefnu, stýringar og verkferla hjá tilkynningarskyldum aðilum og hlutverk og skyldur ábyrgðarmanns úr hópi stjórnenda. Í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu er tekið fram að samtökin styðji breytingu á 34. gr. laganna í samræmi við framangreinda viðmiðunarreglu. Þeim þyki þó varhugavert að innleiða hér á landi ákvæði sem enn eru eingöngu tillögur að breyttri löggjöf hjá Evrópusambandinu og kunni að taka breytingum í meðförum Evrópusambandsins.

Þessu er svarað í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins sem áréttar að leitast sé við að útfæra efnisreglur frumvarpsins í samræmi við breytt tilmæli alþjóðlega fjármálaaðgerðarhópsins, FATF, um áhættumat og gildandi túlkun ákvæða fjórðu peningaþvættistilskipunarinnar sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn. Þá kemur fram að gildandi löggjöf byggist á evrópsku regluverki sem fyrirséð er að taki breytingum innan tíðar, en þær breytingartillögur voru hafðar til hliðsjónar við gerð frumvarpsins.

Nefndin bendir jafnframt á að tilefni og nauðsyn lagasetningar sé m.a. væntanleg úttekt FATF á vörnum Íslands í málaflokknum á árinu 2025. Kemur þá til skoðunar hvernig tekist hefur til frá síðustu úttekt FATF við innleiðingu breyttra tilmæla í íslenska löggjöf og hversu skilvirkar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er í raun hér á landi.

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu komu jafnframt með aðrar ábendingar, m.a. nefndu þau dæmi þar sem þau telja að íslensk lög hafi gengið lengra en tilskipanir Evrópusambandsins með íþyngjandi afleiðingum fyrir tilkynningarskylda aðila, svokallaða gullhúðun eða blýhúðun. Nefndin beinir því til stjórnvalda að taka ábendingarnar til skoðunar og meta heildstætt hvort tilefni sé til að bregðast við þeim.

Nefndin leggur til breytingar á frumvarpinu: Í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu er gerð athugasemd við 2. mgr. 7. gr. frumvarpsins, en þar segir að tilkynningarskyldir aðilar skuli hafa sérstakan ábyrgðarmann, tilnefndan úr hópi stjórnanda. Að mati samtakanna mætti taka skýrt fram að ábyrgðarmaður sé tilnefndur af stjórn, rétt eins og regluvörður. Í minnisblaði ráðuneytisins er ekki gert athugasemd við tillöguna, en þó áréttað að skýrt sé tekið fram að ábyrgðarmaður komi jafnframt úr hópi stjórnenda. Nefndin tekur undir umrædda tillögu Samtaka fyrirtæka í fjármálaþjónustu og leggur til breytingu þess efnis.

Þá eru lagðar til minni háttar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, Teitur Björn Einarsson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Elín Íris Fanndal, Guðbrandur Einarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Oddný G. Harðardóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.