ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
Forseti. Slattagóð stefna hérna að mestu leyti nema það er smá svona umræða í kringum ferðamannaiðnaðinn þar sem ekki fer saman hljóð og mynd. Það er alltaf rosalega gaman að fá Samtök ferðaþjónustunnar í heimsókn til fjárlaganefndar. Þar fjalla þau um hvernig markmiðið, hjá þeim alla vega, að eigin sögn, er að fá í rauninni færri en verðmætari ferðamenn til landsins. Það er markmiðið hjá þeim. Samt sjáum við alltaf í spám að það sé gert ráð fyrir fleiri og fleiri ferðamönnum. Núna þegar þeim er að fækka þá koma þau skilaboð að samdráttur sé slæmur þannig að maður klórar sér aðeins í hausnum. Jú, samdráttur kemur kannski niður á ýmsum landsvæðum sem eru kannski lengra frá þessum hefðbundnu áfangastöðum, sem er vissulega slæmt, en það er dreifingarvandamál. Mér finnst ekki nægilega skýrt hvernig það er í rauninni komið til móts við þann vanda að dreifa þá alla vega þeim ferðamönnum sem vonast er til að komi hingað, þessum færri en verðmætari, út um allt land. Það er eitthvað um að flugferðum til Akureyrar sé að fjölga, gott og blessað, en það er engin sérstök markviss stefna sem er ætluð til þess að ýta undir að það verði eitthvað sem hönd er á festandi, uppbygging annars alþjóðaflugvallar einhvers staðar, kannski á norðausturhorninu eða eitthvað því um líkt, sem varaflugvallar, almennilegs varaflugvallar sem er ekki þá bara með hlutverk sem varaflugvöllur heldur líka bara sem annar áfangastaður, hinn hringurinn með Ásbyrgi og Mývatn og þess háttar sem væri mjög áhugavert að markaðssetja líka.
Maður sér alltaf togstreitu á milli þess að ná markmiðinu um færri og verðmætari og þess að það sé svo auðvelt að fara í auglýsingaherferð og ná fleiri, ná massanum og ná þannig verðmætunum, sem veldur hins vegar kostnaðinum hvað varðar ágengnina og traðkið. Afleiðingin af því hversu margir koma þýðir að álagið verður meira og það er staðan sem við erum að glíma við og höfum verið að glíma við núna eftir að ferðamannaiðnaðurinn fór upp hérna á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Álagið og fjöldinn, sem var í rauninni þvert gegn þeirri stefnu að fá færri og verðmætari ferðamann, hefur búið til ákveðið samfélagslegt vandamál með því að þau sem koma og sinna ferðaþjónustunni eru að miklu leyti til erlendir starfsmenn, starfsmenn sem koma hingað, flytja hingað og vinna við ferðaþjónustuna.
Ég veit eiginlega ekki hvernig maður á að lesa þessa heildstæðu sýn úr þessari aðgerðaáætlun, hvernig hún mun skila okkur samfélagi þar sem við erum með heilbrigða, sjálfbæra ferðaþjónustu úti um allt land án þess að það valdi því álagi sem við erum að sjá núna, því að það er undirliggjandi í öllum aðgerðunum að það er einmitt ekki verið að taka tillit til þessa stóra markmiðs, færri en verðmætari. Það er í rauninni helsta athugasemd mín við þessa ferðamálastefnu og þessa aðgerðaáætlun að það stóra markmið, meira að segja samkvæmt ferðaþjónustunni — ég hef einnig heyrt þetta hvað stjórnvöld varðar, ég hef ekki séð þetta raungerast í fjármálaáætluninni — að það sé í rauninni farin styttri leiðin, auðveldari leiðin að því að ná ágóða út úr ferðaþjónustunni. Það er farið í massann. Það er auðveldari leið en uppbyggingarleiðin sem nær þá kannski til færri og verðmætari ferðamanna.
Það er ekki farið í markvissa uppbyggingu til dreifingar eins og við sjáum á þeim uppbyggingaráformum sem eru í Keflavík. Þar er viðskiptamódelið í rauninni byggt utan um Icelandair. Alveg gegnumgangandi á flugstöðin að vera hönnuð þannig að hún geti tekið á móti þeim fjölda sem hentar inn í flugáætlanir Icelandair. Þess á milli er hún tiltölulega tóm en ef hún væri í notkun allan daginn þá væri í rauninni betra rennsli og fleiri sem gætu svo sem komið, sem er ekkert endilega markmiðið. Þannig að það að fara í stækkunaráformin segir okkur að það eigi að koma fleiri ferðamenn í gegnum Keflavík, ekki færri og verðmætari. En það er ekki að segja okkur að þeir séu að fara út um allt land, þannig að ég sé ekki hljóð og mynd fara saman. Það er eitt sem er sagt, annað sem er sett í prent og svo eitthvað allt annað sem er gert. Það finnst mér frekar óþægilegt.
Það er svo sem ágætt að hafa einhverja aðgerðaáætlun en ég held að hún muni ekki ná þessum markmiðum. Þegar allt kemur til alls þá er það svo sem arfleifð þessarar ríkisstjórnar að setja fullt af stefnum á blað en þær eru einhvern veginn mjög sundurlausar. Hvað gerist í kjölfarið eða hvernig lítur samfélagið út eftir að búið er að klára þessar stefnur? Munu þær ná þessum árangri eða eru þetta í rauninni bara handahófskenndar aðgerðir? Hver um sig lítur svo sem ágætlega út en þegar við púslum þeim saman, hvað þá? Þá verðum við komin með risastóra flugstöð í Keflavík. Við verðum ekki komin með alþjóðaflugvöll einhvers staðar annars staðar á landinu til að hjálpa til við dreifingu ferðamanna og þar við situr einhvern veginn. Þetta er svo sem ágætistilraun, en mér finnst hún ekki nógu góð.