ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Fyrir um áratug síðan var stofnað til svokallaðs Flugþróunarsjóðs, sem hefur reyndar verið að sýna mjög mikinn árangur núna, einkum á allra síðustu árum, kannski sérstaklega í vetur þegar Easyjet fór að fljúga til Akureyrar frá London Gatwick, og síðan var flugfélagið að tilkynna að bætt yrði við flugi til Manchester næsta vetur frá Akureyri. Það er einmitt tilgangur Flugþróunarsjóðs og markmið að styðja við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þannig að það megi koma á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Með því er verið að stuðla að dreifingu ferðamanna um landið, bæta nýtingu innviða og bæta búsetuskilyrði og lífsgæði heimamanna. Það er sem sagt hugmyndin á bak við þetta. Síðan hefur náttúrlega líka verið og er að fara af stað af fullum krafti uppbygging — það er búið að byggja upp Akureyrarflugvöll þannig að hann geti tekið við mun fleiri þotum og stækka flugstöðina. Þannig að það er allt önnur aðstaða sem er að skapast þar og verður hún tekin að fullu í notkun núna innan fárra mánaða. Varaflugvallargjaldið er náttúrlega að nýtast til að byggja upp alþjóðaflugvelli landsins, þessa þrjá velli utan Keflavíkur sem ríkið á og rekur.
Ég vildi rétt koma hér upp til að sýna að það hefur þó verið viðleitni til þess að byggja upp þessa aðstöðu með markvissum hætti sérstaklega núna síðasta áratuginn og margt verið gert og er greinilega að nást góður árangur. En ég held að stóra málið sé einmitt þetta, að dreifa ferðamönnum betur um landið og nýta þá innviði landsins yfir allt árið: Allt Ísland allt árið.