154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[18:11]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Já, það er alveg hárrétt að það er búið að vera að setja klink í þetta af og til á þessum áratug. Orðin hafa verið miklu stærri en efndirnar þegar allt kemur til alls og að áratug liðnum er kannski búið að byggja eitthvað upp. En mér finnst vanta á að þetta sé tekið af þeirri alvöru sem pólitískar yfirlýsingar hafa verið um. Það sem fólk hefur verið að segja á pólitískum vettvangi um það hversu mikilvægt þetta er, rímar ekki alveg jafn vel þegar maður ber það síðan saman við efndirnar eða hvað er verið að gera. Það eru meiri pælingar og rannsóknir og uppbyggingarplön, hvernig sem fólk lítur svo á það, varðandi uppbyggingu í Hvassahrauni heldur en varðandi annan alþjóðaflugvöll á landinu, sem mér finnst vera dálítið skrýtin forgangsröðun þegar allt kemur til alls ef það á að vera alvara á bak við það að dreifa ferðamönnum um landið. Þannig að jú, jú, það er búið að setja krónur í þetta hingað og þangað og það hefur vissulega borið árangur en ekki af þeirri stærðargráðu sem við erum að sjá gerast núna t.d. í Keflavík. Þar er alvörustækkun á flugvellinum sem hefur skekkingaráhrif í rauninni gagnvart dreifingu ferðamanna. Það hlýtur bara að vera því að annars værum við að sjá þá uppbyggingu einhvers staðar annars staðar líka. Þess vegna sé ég ekki að það fari saman hljóð og mynd hvað þetta varðar.