ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
Frú forseti. Hversu mikið flug viljum við inn á ákveðin svæði, það er líka það sem þarf að taka svolítið tillit til. Ég er ekkert endilega viss um að Norður- og Austurland myndu vilja hafa þau umsvif sem eru í Keflavík inn á það svæði, bara svona út frá samfélaginu, að viðhalda því. En þetta hefur klárlega verið mikill styrkur fyrir svæðið í svo mörgu tilliti að fá þetta beina flug inn. Hver vél sem kemur inn á Akureyri, Egilsstaði, er bara með ferðamenn fyrir það svæði. Við þekkjum náttúrlega muninn varðandi Keflavík, eins og hv. þingmaður kemur inn á, að þetta er tengimiðstöð og síðustu ár hafa tengifarþegar verið öðrum megin við 50%. Þeir hafa raunverulega fyrst og fremst verið að fara yfir hafið þannig að það hefur verið tilgangurinn þar. En ég held að stóra málið okkar sé einmitt þetta, að byggja upp þessar dreifileiðir. Það sem er kannski í þessu með ferðamálastefnuna, það er mikilvægara — það ætti kannski meira að vera um bílaleigubílana og hversu hátt hlutfall bílaleigubílar eru á Íslandi varðandi dreifinguna (Forseti hringir.) vegna þess að það er hin stóra dreifileið í dag vítt og breitt um landið. En það væri hægt að halda lengi áfram með þessa umræðu.