154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[18:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Þetta eru mjög góðar spurningar sem hv. þingmaður spyr og ég sé ekki fjármálastefnuna svara þessum spurningum. Hversu mikla flugumferð viljum við einmitt sjá þarna á mismunandi svæðum á landinu? Hvernig erum við að hugsa dreifinguna þegar allt kemur til alls þó að það sé í rauninni bara sett á blað og kannski hægt að sjá hvernig aðgerðaáætlunin vinnur að því markmiði? Hvort það tekst síðan eða ekki er bara allt annað mál, en að maður sjái a.m.k. að verið sé að reyna. Ég sé ekki að það sé verið að reyna og ég sé ekki að þessi aðgerðaáætlun skili sér á þann stað sem pólitískt séð hefur verið sagt að hún eigi að gera. Það er kannski vandamálið sem ég sé við framsetninguna á þessu.