154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[18:15]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir sína góðu yfirferð og vangaveltur. Maður getur alltaf treyst því að sá góði þingmaður Pírata sjái fleti sem kannski við hin sjáum ekki svo glögglega og bendi á hluti sem aðrir benda síður á. En sannarlega hefur það mikið verið rætt hér í samfélaginu að við þurfum ekki endilega að fjölga hausum heldur fjölga, skulum við segja, ferðamönnum sem skilja eitthvað eftir sig. Þar erum við kannski ekki nægilega langt komin í uppbyggingu innviða hvað varðar þessa velmegandi ferðamenn sem vilja fimm stjörnu hótel og það besta í heiminum, við höfum stigið tiltölulega fá skref í átt að því að mæta væntingum þeirra. Þó eigum við Edition hótel, við eigum Depla og við höfum Bláa lónið og svo eru einhver verkefni í uppbyggingu. Það hefur sýnt sig að ef þú býður upp á valkosti af þessum toga þá kemur fólkið en það þarf líka að markaðssetja fyrir það fólk, ekki satt? Það er auðvitað ánægjuefni að hingað skuli vera beint flug erlendis frá á fleiri staði en bara Keflavík eins og hér var rætt áðan. Það er reyndar kannski ekki síður þjónusta við innlenda ferðamenn sem vilja komast til útlanda að þurfa ekki að keyra alla leið til Reykjavíkur eða fljúga frá Norðurlandi, Austurlandi, Vesturlandi eða hvaðan sem er. En er hv. þingmaður mér sammála um það að við þyrftum að markaðssetja okkur sérstaklega fyrir þann hóp sem við ræðum um að ná hingað en kannski setjum ekki nógu skýrlega í letur í þeirri stefnu sem hér er til umræðu?