ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
Forseti. Það voru áhugaverðar umræður á Sprengisandi núna síðasta sunnudag einmitt um markaðssetningu Íslandsstofu, hún hafi kannski ekki verið rosalega markviss endilega hvað mismunandi hópa varðar. Hugsum samt aðeins um hvað við erum að bjóða upp á og hvernig. Nú eru t.d. skemmtiferðaskip orðin ansi algeng hérna og valda ákveðnu álagi þegar þau koma. Hversu góðir ferðamenn eru þetta? Hversu mikillar innviðauppbyggingar krefst það í rauninni að veita góða þjónustu til skemmtiferðaskipa sem leggjast nokkur að landi í nokkrum smáum höfnum og þurfa jafnvel að raftengjast? Þetta er þá kostnaður sem við værum að leggja í, að byggja þetta upp, og er kannski gott fyrir höfnina almennt en það er ekkert smáræði að stinga stóru skemmtiferðaskipi í samband. Er það ferðaþjónusta sem við almennt séð ættum að bjóða upp á? Mér finnst við ekki spyrja okkur þessara spurninga og, ef við svörum þeim spurningum játandi eða neitandi, að mæta því svari með einhverri uppbyggingu eða tekjuáætlun, gjaldaáætlun eða einhverju þvílíku til þess að sýna fram á að svarið við t.d. spurningunni um það hvort við viljum skemmtiferðaskip leiði til sjálfbærni hvað þann hóp varðar. Við erum svona hvalrekahagkerfi, vil ég kalla það. Síldin kom hingað og við veiðum hana, hval rekur upp í fjöru og við gleypum hann, við erum rosalega skammsýn hvað svona gróðatækifæri varðar. Bankahrunið eða bankaæðið var eitt svoleiðis. Við bara dýfðum okkur á kaf í græðginni, því miður.