154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[18:20]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir sín viðbrögð. Ég er sammála honum um það að kannski eru skemmtiferðaskip ekki akkúrat áherslumál fyrir okkur. Þau eru hins vegar dýrmæt sveitarfélögunum sem þau sækja víða um land. Þá koma ferðamenn í land og versla eitthvað örlítið. Yfirleitt er þetta fólk að gista í skemmtiferðaskipunum og snæða þar. Mín reynsla úr miðborg Reykjavíkur var að þetta væru kannski ekki stærstu kúnnarnir í verslununum eða þjónustunni. Við erum að tala um áherslu á ferðamenn sem skilja sem mest eftir sig. Maður upplifir það stundum að það koma skemmtiferðaskip hér og þetta verða eins og fiskitorfur, þetta tekur öll sæti kannski á kaffihúsunum og verður ansi fyrirferðarmikið. En er hv. þingmaður sammála mér um það að við þurfum að bæta verulega markaðssetningu gagnvart þeim markhópum sem við vitum (Forseti hringir.) að eiga erindi hingað og við viljum fá hingað? 1.500 millj. kr. á ári var talan sem ég nefndi áðan, var samþykkt hér árið 2018. Er það ekki málið?