ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
Herra forseti. Þegar við höfum svarað þessum spurningum um hvaða hópum við erum að sækjast eftir og hvað við höfum upp á að bjóða, þá þurfum við að sinna því á virkan hátt og uppfylla það pláss sem við höfum upp á að bjóða. Það er dágóð vinna, það er stöðug vinna. Við getum ekki bara farið í eitt átak og þar með er málið leyst. Hvernig nákvæmlega við fjármögnum það og hversu há upphæð það er er dýnamísk spurning. Það þarf stundum að fara einmitt í átak en það þarf alltaf svona grunnvinnuna. Það þarf alltaf að sinna viðhaldinu sem slíku, það þarf alltaf að fara og ná í fréttamenn erlendis, fara og hitta ferðaþjónustufyrirtækin erlendis o.s.frv., og svo er farið í átak af og til sem kostar meira, en það hvar grunnupphæðin liggur er breytilegt. Hvenær er átak og hversu mikið er það? Það er líka breytilegt eftir aðstæðum. Þannig að svarið við spurningunni er já, en nákvæmlega hversu mikið, ég veit það ekki.