154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[18:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það kom margt fram í ræðu hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar og ég þakka honum fyrir þá ræðu. Ég vil koma með athugasemd er varðar það að það vanti heildarsýnina í þessa stefnu. Ég er ekki sammála því. Ég tel að þetta sé afskaplega vel unnin stefna. Mikið samráð var haft. Ég sjálf mætti á einn fund í Borgarnesi þar sem ferðaþjónustuaðilar voru allir fengnir að borðinu og þeim öllum boðið og haldnir voru svona fundir um allt land. Mjög margir komu að þessu og þetta hefði í raun getað verið þrefalt stærra plagg. En margar af þeim spurningum sem komu fram í ræðu hv. þingmanns eru spurningar sem við einfaldlega getum ekki svarað strax vegna þess að við höfum ekki gögnin. Það hefur margoft komið fram í máli þingmanna, hjá ráðherrum og í nefndarálitum hér að okkur vanti frekari gögn um ferðaþjónustuna. Þess vegna er heill kafli um rannsóknir og gögn í þessari stefnu. Til þess að nefna nokkur dæmi þá er það fyrsta sem hér kemur grunninnviðir fyrir rannsóknir, greiningu og stefnumótun í ferðaþjónustu, þar sem ætlunin er að styrkja enn betur heildstætt kerfi upplýsinga hér á landi. Næst á eftir er vinnsla upplýsinga um heildaráhrif og samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu, aukið samstarf stofnana um eflingu rannsókna á sviði ferðamála; það er fjöldi aðgerða hér sem stefna að því að geta svarað þessari spurningu. Þess vegna á að endurskoða aðgerðaáætlunina á tveggja ára fresti. Þetta eru í rauninni litlu hlutirnir en mér þykir sýnin, heildarsýnin vera mjög skýr í þessari stefnu. Telur hv. þingmaður að þessi kafli nái ekki yfir margar af þeim spurningum sem komu fram í máli hans?