ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
Forseti. Takk kærlega fyrir þessa spurningu. Eins og ég sagði þá eru ýmsar aðgerðir í þessari stefnu bara mjög fínar og það er ekkert hægt að setja út á einstaka aðgerðir sem slíkar, mjög nauðsynlegar. En það sem ég hef verið að benda á eru pólitískar yfirlýsingar um það hvað á að gera með dreifingu ferðamanna og þess háttar. Ég sé ekki hvernig þessi aðgerðaáætlun mun láta það raungerast miðað við t.d. framkvæmdir sem eru í gangi í Keflavík. Það var svona uppleggið sem ég notaði sem dæmi um það hvað er að gerast á borði, miðað við síðan pólitískar yfirlýsingar um það hvar við eigum að enda með ferðaþjónustuna, með t.d. færri og verðmætari ferðamenn. Það er svona stóra og yfirlýsta markmiðið sem hefur komið frá Samtökum ferðaþjónustunnar og ríkisstjórnin hefur hermt eftir. Það er mjög óljóst hvernig því markmiði er náð. Mér finnst ekki nóg að segja í rauninni að við verðum að safna meiri gögnum til að geta svarað þeirri spurningu síðar. Þá er í raun óábyrgt að segja að það sé markmið til að byrja með, ef hv. þingmaður áttar sig á hvað ég á við með því. Hvernig getum við gefið það út sem stefnu ef gögnin koma síðan til með að segja okkur að það sé í rauninni betra að gera eitthvað annað? Maður getur ekki bæði haldið og sleppt. Dæmin sem ég er að taka eru um það hvernig yfirlýst stefna og markmið er eitt og uppbyggingin sem er að gerast annað. Þetta tvennt fer ekki saman og það er það sem ég er að kvarta undan hvað þessa stefnu varðar.