154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.

1036. mál
[18:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir svarið. Aftur er ég ósammála honum. Mér þykir þetta ná vel yfir margar af þeim spurningum. Það er pólitísk áhersla að við dreifum ferðamönnunum. Hv. þingmaður segir að það komi ekki fyrir í þessari stefnu eða illa fram. Mér þykir t.d. heill kafli, C-kaflinn, ná alfarið utan um það að styrkja áfangastaðastofurnar, um að skýra ábyrgð umsjónaraðila áfangastaða, að styrkja umgjörð um áfangastaði um allt land, af því að við viljum dreifa þeim um allt land. Spurningin er bara hversu mikið álag á að vera á hverjum og einum stað. Það er eitt af því sem við þurfum að rannsaka. Varðandi tekjur af ferðamönnum og annað og hvernig ferðamenn við viljum nákvæmlega þá er það einmitt eitt af því sem þarf að rannsaka betur, en hvað varðar dreifinguna þá finnst mér það koma fullkomlega fram í þessari stefnu.