ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
Forseti. Eins og ég sagði er vel hægt að kvitta upp á einstaka aðgerðir sem slíkar. Hvort þær nái síðan árangri er önnur spurning og brúin þar á milli er ekki eitthvað sem ég sé raungerast í því sem er verið að gera. Þegar nú er samdráttur í ferðaþjónustunni er komið og sagt: Samdráttur er slæmur, en markmiðið var samt að fækka. Ekki fer saman hljóð og mynd hvað það markmið varðar. Þegar sagt er að við ætlum að dreifa ferðamönnum út um allt land og risavaxin stækkun er á flugstöðinni í Keflavík, þá skil ég ekki hvernig það getur farið saman. Ég skil vel og hef séð hvernig þingið hefur komið og sett nokkrar milljónir hingað og þangað í einhverjar áfangastaðastofur, náttúrustofur eða hvað sem það er. Ég veit alveg hvernig það virkar, efling í orði frekar en á borði þegar allt kemur til alls. Þetta er ekki í hendi enn þá (Forseti hringir.) og fjármögnunin er síðan næsta vandamál þegar allt kemur til alls. Ég sé ekki trúverðugt ferli þarna á milli, á milli þess sem er sagt, gert og skrifað.