sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa yfirferð. Mig langar að spyrja: Er þetta ekki örugglega til komið að frumkvæði evrópskra kollega okkar í Brussel? Er þetta ekki innleiðing á tilskipun þaðan? Mér sýnist málið svona í fljótu bragði vera af hinu góða, að hagsmunir sjúklinga skuli vera í fyrirrúmi og þeirra saga liggi fyrir ef þeir bjóða upp á það. En miðlægur gagnagrunnur — getur verið gallagrunnur, eins og ég sagði óvart — er almennt mjög dýr fjárfesting og það er talað um styrki frá Evrópu. Er búið að sækja um slíkan styrk eða eru fyrirheit um slíkan styrk? Hvað felst mikil fjárfesting í þessu skrefi af Íslands hálfu, því að ekki getur þetta orðið okkur að kostnaðarlausu frekar en aðrar tilskipanir?