sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sín viðbrögð og svör. Inni í þessu hlýtur að felast þýðingarkostnaður, þ.e. að þýða íslenskar sjúkraskrár yfir á alþjóðleg tungumál. Ef læknar í öðrum löndum eiga að geta orðið að liði í sjúkdómstilfellum Íslendinga á erlendri grundu skyldi maður ætla að það þurfi að þýða og eitthvað mun það væntanlega kosta. Að byggja miðlægan gagnagrunn getur hlaupið á tugum, jafnvel hundruðum, milljóna og mig langaði bara að óska eftir upplýsingum eins og okkur ber að leita eftir í nefndunum. Það eru tiltölulega nýleg fyrirmæli að við skulum kostnaðarmeta hvert nýtt frumvarp, hvert nýtt skref sem við tökum og hengjum um hálsinn á þegnunum í landinu. Þó að ekki liggi nákvæmar upplýsingar fyrir um það myndi ég óska eftir að hv. þingmaður giskaði á það hve mikil fjárhagsleg skuldbinding felst í þessari annars ágætu hugmynd og þá einnig hvort þetta sé í hópi þeirra fjölmörgu innleiðinga og frumvarpa sem hljóta svokallaða gullhúðun af Íslands hálfu. Skyldi það þá vera 12, 18 eða jafnvel 24 karata gullhúðun sem hér er á ferðinni?