sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar. Hér er ekki um að ræða innleiðingu, hér er um að ræða samstarfsverkefni. Kostnaður af samstarfinu er greiddur úr sameiginlegum sjóðum. Það er ekki verið að búa til nýjan gagnagrunn eða skrá, það er verið að búa til kerfi fyrir miðlun upplýsinga og stöðlun upplýsinga inn í það kerfi. Ég kann ekki að rekja það þar sem ég er ekki forritari en ég hef þó einhverja innsýn í forritun. Þarna mætist það sem við eigum nú í sjúkraskránni og svo það sem við notum — talnakerfið á bak við forritin — til þess að miðla upplýsingum. Ef einstaklingur hefur t.d. verið greindur með ákveðinn sjúkdóm þá er ekki verið að þýða það í þeim skilningi, eins og þegar við notum gervigreindina, heldur er verið að miðla upplýsingum með kóðun upplýsinga sem segja þá þeim sem tekur við upplýsingunum hinum megin hvaða sjúkdóm um ræðir. Þannig að forritunin, stöðlunin og kóðunin eru lykillinn í þessu. Með þátttöku í samstarfinu er líka verið að auka stöðlunina í skráningunni hér á landi á þessum lykilupplýsingum. Þá verður miðlunin innan lands um leið auðveldari og krefst þá kannski minni lestrar af því að við erum að skrá samkvæmt nýju kerfi sem verður forritað þarna á bak við. (JFM: En kostnaðurinn við þetta?)