154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa.

904. mál
[18:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og sömuleiðis fyrir gott samstarf í nefndinni um þetta mál. Það er skilningur framsögumanns að í rauninni sé þetta lagatæknilegt atriði. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá er talið að þetta leiði af lögunum en að skýrara sé að tilgreina þetta með þessum hætti og þess vegna fær þetta ekki sérstaka umfjöllun í nefndaráliti með vísan til þessarar tilteknu greinar. Þessi breytingartillaga kom út úr lögfræðilegum yfirlestri nefndasviðs en var þó borin undir fleiri en nefndasvið Alþingis, einmitt vegna þeirra spurninga sem vöknuðu hjá framsögumanni sem hér stendur. Það er mjög mikilvægt að vekja athygli á þessu og fjalla um það akkúrat hér að svona er þetta til komið.