154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa.

904. mál
[18:51]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Til áréttingar þá langar mig einmitt að spyrja: Er það rétt skilið hjá mér að breytingin kemur til á Alþingi en ekki frá ráðuneytinu? Þá langar mig að spyrja: Við hvaða aðila var haft samband og með hvaða hætti var þeim gefið færi á að koma með athugasemdir? Ég veit ekki til þess að bæst hafi við skriflegar umsagnir, en kannski fyrst og fremst: Hvaða aðilar eru það og liggur það fyrir að þessir aðilar hafi lagt blessun sína yfir þessa breytingartillögu?