sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur fyrir seinna andsvar. Nú eru orðnar þrjár eða fjórar vikur síðan við afgreiddum þetta mál úr nefnd þannig að ég er aðeins að reyna að rifja upp, en ég veit það fyrir víst, og þori að fullyrða það hér, að þetta var borið undir ráðuneytið og leitað var til baka í greinargerðir með frumvarpinu sem vísað er til, greinarinnar sem vísað er til. Ég þori ekki að fullyrða að það hafi verið borið undir fleiri. Mér finnst samt að nefndarritari hafi gert það en vil ekki fullyrða það.
Mig langar að vitna aðeins í greinargerð með frumvarpinu vegna fyrra andsvars hv. þm. Jakobs Frímanns Magnússonar, en þar kemur fram:
„Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem kallar á fjárfestingu í miðlægum gagnagrunnum. Þrátt fyrir það er ekki gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi nein fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð þar sem verkefnið er fjármagnað með veitingu styrks af hálfu Evrópusambandsins til embættis landlæknis en styrkveitingin er liður í því samevrópska verkefni að koma á stafrænni heilbrigðisþjónustu þvert á landamæri Evrópska efnahagssvæðisins. Með þátttöku í verkefninu mun Ísland skipa sér meðal fremstu landa …“
Þarna kemur þetta fram og það er sem sagt verið að byggja á sjúkraskránni og búa til þessa miðlun á milli. Það er gagnagrunnurinn sem verður til, sameiginlegur.