réttindagæsla fyrir fatlað fólk.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk sem miða að því að skýra ákvæði um réttindagæslumenn og persónulega talsmenn hvað varðar hlutverk þeirra og heimildir ásamt því að kveða nánar á um samninga og eftirlit með samningum um persónulega talsmenn. Þá er frumvarpinu m.a. ætlað að styðja við fyrirhugaðan flutning réttindagæslumanna til nýrrar Mannréttindastofnunar Íslands.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Nánar má kynna sér það undir málinu á vef Alþingis en ég ætla ekki að rekja það frekar hér í ræðu.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta eftirfarandi sérstaklega:
Fyrst aðeins um hlutverk réttindagæslumanna. Nefndin fjallaði um hlutverk réttindagæslumanna. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á þeirra hlutverki, annars vegar um að réttindagæslumenn taki ekki til meðferðar ágreining milli einstaklinga og hins vegar um að réttindagæslumenn endurskoði ekki ákvarðanir stjórnvalda í einstökum málum. Er það til áréttingar á því hlutverki réttindagæslunnar að veita fötluðu fólki viðeigandi stuðning við gæslu réttinda sinna gagnvart stjórnvöldum og einkaaðilum.
Í umsögnum voru gerðar athugasemdir við þessa breytingu.??Í fyrsta lagi voru reifuð sjónarmið um að mikilvægt sé að ákvæðin séu ekki þannig orðuð að þau komi í veg fyrir að réttindagæslumenn geti brugðist við misbeitingu gagnvart réttindum fatlaðs einstaklings, til að mynda fjárdrætti. Með frumvarpinu er lagt til að réttindagæslumaður taki ekki til meðferðar eða sinni persónulegum ágreiningsmálum milli einstaklinga, svo sem í deilum hins fatlaða einstaklings og fjölskyldumeðlima hans eða annarra einstaklinga. Ekki er átt við mál þar sem grunur leikur á að brotið hafi verið gegn fötluðum einstaklingi. Þar sem grunur leikur á lögbroti, t.d. fjárdrætti, skal réttindagæslumaður leiðbeina viðkomandi um að leita til lögreglu. Það er mikilvægt að þetta sé skýrt.
Í öðru lagi voru reifuð sjónarmið um að ekki sé þörf á að kveða sérstaklega á um að réttindagæslumaður endurskoði ekki ákvarðanir stjórnvalda í einstökum málum. Við þessu vill meiri hlutinn segja að markmið ákvæðisins er að taka sérstaklega fram að réttindagæslumaður endurskoði ekki ákvarðanir stjórnvalda og taka þar með af öll tvímæli um að réttindagæslumaður sé ekki úrskurðaraðili. Meiri hlutinn leggur áherslu á að réttindagæslumenn taka ekki ákvarðanir sem varða réttindi og skyldur einstaklinga heldur er það hlutverk þeirra að hafa eftirlit með réttindum fatlaðs fólks og veita því viðeigandi stuðning eftir því sem við á.
Þá ætla ég að koma að eftirliti sýslumanns, m.a. endurgreiðslu vegna útlagðs kostnaðar. Nefndin fjallaði um eftirlit sýslumanns með endurgreiðslu útlagðs kostnaðar. Með frumvarpinu er lagt til að útlagður kostnaður skuli að jafnaði greiddur af hinum fatlaða einstaklingi. Sýslumaður geti þó ákveðið að hann skuli greiddur úr ríkissjóði ef eignir hins fatlaða einstaklings eru litlar eða aðrar sérstakar ástæður mæla fyrir því.
Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir því að um endurgreiðslur fari eftir nánari útfærslu í reglugerð, svo sem viðmiðum um hvað fáist endurgreitt. Er þó gert ráð fyrir að endurgreiðslur fari í gegnum sýslumann, hvort sem þær eru greiddar af hinum fatlaða einstaklingi eða sýslumanni. Meiri hlutinn leggur áherslu á að reglugerðin verði sett sem fyrst, en með henni hefðu sýslumenn þá viðmið sem farið yrði eftir og gætu þannig gætt jafnræðis og viðhaft eftirlit með endurgreiðslunum.
Þá leggur meiri hlutinn til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er þar um að ræða breytingar sem tryggja eiga samræmi við frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands, sem er á dagskrá síðar á þessum þingfundi.
Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar kæru- og kvörtunarleiðir. Í frumvarpinu var lagt til að réttindagæslumaður skyldi, í þeim tilvikum sem ekki er orðið við ábendingum hans, leiðbeina og eftir atvikum aðstoða fatlaðan einstakling við að kæra mál til úrskurðarnefndar velferðarmála eða Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Við umfjöllun málsins kom fram að ekki væri rétt að afmarka leiðbeiningarskylduna við þessa tvo aðila. Meiri hlutinn er því sammála og leggur því til að verði ekki orðið við ábendingum réttindagæslumanna skuli réttindagæslumaður eftir atvikum leiðbeina um innlendar og alþjóðlegar kvörtunar- og kæruleiðir og veita hinum fatlaða einstaklingi viðeigandi stuðning eftir þörfum. Þarna er sem sagt verið að útvíkka réttarvernd hins fatlaða einstaklings í gegnum réttindagæslumenn.
Þá er í þriðja lagi lögð til breyting er varðar eftirlit með persónulegum talsmönnum og vinnslu persónuupplýsinga. Í umsögn Persónuverndar voru gerðar athugasemdir við það fyrirkomulag að persónulegur talsmaður skuli ár hvert gefa sýslumanni skýrslu um framkvæmd samkomulags milli persónulegs talsmanns og fatlaðs einstaklings en Persónuvernd telur að upplýsingar um nauðsyn og tilgang vinnslu upplýsinga þurfi að vera ítarlegri. Nefndin kallaði eftir viðbrögðum ráðuneytisins við þessari athugasemd og taldi ráðuneytið að ákvæðið uppfyllti þær kröfur sem persónuverndarlöggjöfin kveður á um. Tilgangur vinnslunnar sé skýr í ákvæðinu auk þess sem nánar er fjallað um hann í greinargerð með frumvarpinu. Vinnsla persónuupplýsinga fari eftir því í hverju samkomulag á milli fatlaðs einstaklings og persónulegs talsmanns felst. Í 9. gr. laganna er fjallað um hvers konar aðstoð persónulegur talsmaður getur veitt fötluðum einstaklingi á grundvelli samkomulags en það er ekki tæmandi talið og getur verið mismunandi í hverju tilviki fyrir sig. Það sé því vart raunhæft að tiltaka nákvæmlega alla þá þjónustu sem persónulegur talsmaður kann að aðstoða einstakling við að fá.
Meiri hlutinn tekur undir það mat ráðuneytisins að það yrði erfiðleikum háð að tiltaka nákvæmlega alla þá þjónustu sem persónulegur talsmaður kann að aðstoða einstakling við að fá. Tilgangur ákvæðisins er að stuðla að aukinni réttarvernd fatlaðs fólks sem nýtur stuðnings við beitingu löghæfis síns. Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er gerð krafa um að allar ráðstafanir varðandi nýtingu löghæfis feli í sér viðeigandi og árangursríka vernd til þess að koma í veg fyrir misnotkun í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög. Meiri hlutinn leggur hins vegar áherslu á mikilvægi þess að miðlun persónuupplýsinga í tengslum við eftirlit sýslumanns uppfylli þær kröfur sem persónuverndarlöggjöfin gerir til hennar. Í viðbótarumsögn Persónuverndar er lagt til að með því að bæta við ákvæðið málsgrein þess efnis að þjóðskjalavörður skuli taka ákvörðun um grisjun þeirra gagna sem verða til við eftirlit sýslumanns með persónulegum talsmönnum í samræmi við lög um opinber skjalasöfn sé unnt að tryggja þá hagsmuni sem hafðir voru í huga í fyrri umsögn Persónuverndar. Að höfðu samráði við félags- og vinnumarkaðsráðuneyti leggur meiri hlutinn því til breytingu þess efnis.
Að lokum er í fjórða lagi lögð til breyting er varðar aðstoð við ráðstöfun fjármuna vegna daglegra útgjalda. Í?umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu kemur fram að ákvæði frumvarpsins um ráðstöfun fjármuna vegna daglegra útgjalda sé ekki nægilega skýrt. Í umsögninni segir að á grundvelli núgildandi ákvæðis hafi persónulegur talsmaður ekki verið talinn hafa heimild til þess að fá aðgang að netbanka hins fatlaða einstaklings og hafi því hvorki sýn á stöðu reikningsins sem hann hefur heimild til að greiða út af né sýn á ógreidda reikninga sem hinn fatlaði einstaklingur þarf að standa skil á og eftir atvikum rafræn skjöl sem eru birt í netbanka. Í dag birtast flestir reikningar eingöngu í netbönkum en eru ekki lengur sendir með bréfpósti á lögheimili skuldara. Það sem hafi valdið töluverðum vanda í framkvæmd er að reikningar sem berast hinum fatlaða einstaklingi í netbanka, t.d. reikningar vegna húsnæðis, áskrifta og félagsgjalda, teljast samkvæmt framangreindu ekki falla undir dagleg útgjöld sem persónulegur talsmaður hefur heimild til að greiða. Þá hefur ákvæðið ekki verið talið ná til þess að heimila persónulegum talsmanni skoðunaraðgang að ógreiddum reikningum og eftir atvikum rafrænum skjölum sem berast hinum fatlaða einstaklingi í netbanka.
??Í samræmi við framangreint leggur meiri hlutinn til breytingar til að koma til móts við þau sjónarmið sem reifuð eru í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Með breytingunni verði gert skýrara hvaða heimildir persónulegur talsmaður getur fengið til þess að veita fötluðum einstaklingi aðstoð við daglega umsýslu með fjármálum. Bæði fatlað fólk og einstaklingar sem glíma við afleiðingar viðvarandi sjúkdóms eða slyss eiga tilkall til þess að njóta slíkrar aðstoðar. Markmið aðstoðar við fjárhagslega umsýslu er m.a. að stuðla að því að reikningar séu greiddir á réttum tíma og að persónulegur talsmaður geti hjálpað viðkomandi að hafa yfirsýn yfir dagleg fjármál.
Um það hvernig samninga eigi að gera um þetta er nánar fjallað bæði í nefndaráliti og svo í lögunum sjálfum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
Þá eru lagðar til minni háttar lagabreytingar sem eru lagatæknilegs eðlis og þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar hér. Að öðru leyti vísast til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögurnar í áliti meiri hlutans.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir hér.
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Óli Björn Kárason og Guðmundur Ingi Kristinsson.
Herra forseti. Ég hef hér lokið máli mínu og vona að þetta þarfa og brýna mál verði gert að lögum hér sem allra fyrst. Ég ítreka það sem ég sagði í upphafi máls míns að hér hafa verið gerðar breytingar og passað vel upp á það að allt sé í samræmi við breytingar sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er að leggja til um frumvarp um stofnun Mannréttindastofnun Íslands, svo að allt passar þetta nú saman og það skiptir máli.