brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Háskólanum á Akureyri. Nefndinni bárust fimm umsagnir sem aðgengilegar eru á síðu málsins á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lagt til að fella brott lög um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997, frá og með 1. janúar 2025. Skv. 2. gr. frumvarpsins verður stofnunin lögð niður frá sama tíma ásamt embætti forstöðumanns hennar og tekur Háskólinn á Akureyri við eignum og skuldbindingum stofnunarinnar. Sameiningin á rætur að rekja til verkefnis sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti árið 2022 og snýr að einföldun á stofnanakerfinu. Um efni frumvarpsins að öðru leyti vísast til greinargerðar með því.
Þá að umfjöllun nefndarinnar. Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram að gert væri ráð fyrir að Stofnun Vilhjálms Stefánssonar verði áfram sérstök rannsóknastofnun og komið fyrir innan skipulags háskólans, sbr. heimild í lögum um opinbera háskóla. Fram kom hjá fulltrúum Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og Háskólans á Akureyri að ýmis tækifæri gætu verið falin í sameiningunni. Stefnt sé að því að hún festi rannsóknir þeirra á norðurslóðum enn frekar í sessi, með nýrri stofnun í akademísku rannsóknarumhverfi. Hin nýja rannsóknastofnun verði vettvangur rannsókna á norðurslóðum með áherslu á þverfagleg mannvísindi og muni starfa í alþjóðlegu vísindaumhverfi. Aukið rannsóknastarf innan Háskólans á Akureyri gæti styrkt ímynd háskólans enn frekar í norðurslóðarannsóknum. Til að það gengi eftir væri hins vegar mikilvægt að fjárheimildir héldu sér.
Í 5. gr. laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða er kveðið á um að hlutverk nefndarinnar sé að leitast við að treysta og efla samstarf hlutaðeigandi aðila um rannsóknir á norðurslóðum og málefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar. Samkvæmt ákvæðinu skal ráðherra skipa nefndina aðilum sem tilnefndir eru af stofnunum og samtökum sem hafa með höndum verkefni er tengjast norðurslóðarannsóknum, sbr. reglugerð nr. 554/2005. Umhverfisstofnun, sem hefur undanfarin ár átt fulltrúa í samvinnunefndinni, bendir í umsögn sinni á mikilvægi þess að áfram verði til vettvangur til að tengja saman þá aðila innan stjórnsýslunnar og á rannsóknastofnunum sem komi að málefnum norðurslóða, þ.m.t. stefnumótun, rannsóknum og vöktun á norðurslóðum, líkt og verið hefur í nefndinni. Hún hafi verið nauðsynlegur vettvangur til að fá yfirlit yfir rannsóknir á norðurslóðum, miðla þekkingu og reynslu og stuðla að frekari samvinnu og tengslum aðila á norðurslóðum.
Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram að þótt lög um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefndina falli brott þurfi það ekki að þýða endalok þess mikilvæga samvinnuvettvangs sem nefndin hefur verið. Háskólinn á Akureyri sem og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar hafi átt mikið og gott samstarf við Norðurslóðanet Íslands sem sé ekki síður mikilvægur samvinnuvettvangur um málefni norðurslóða. Verið sé að sinna norðurslóðaverkefnum um allt land á þeim vettvangi og innan hans starfi nú þegar þeir aðilar sem hafi skipað samvinnunefndina. Nefndin telur mikilvægt að til staðar sé samvinnuvettvangur innlendra og erlendra aðila sem hér starfa og fjalla um málefni norðurslóða. Þótt mögulega þurfi að endurmeta samstarfsmöguleika við aðra norðurslóðaaðila þá telur nefndin Norðurslóðanetið góðan vettvang til þess að tryggja þetta mikilvæga samtal þrátt fyrir að samvinnunefnd um norðurslóðamál verði aflögð eins og lagt er til í frumvarpinu.
Þá aðeins um fjárheimildir Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og mikilvægi þess að þær skili sér til nýrrar rannsóknarstofnanir innan Háskólans á Akureyri. Það kemur fram í áliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar að verði frumvarp þetta samþykkt er gert ráð fyrir að Stofnun Vilhjálms Stefánssonar verði sérstök rannsóknarstofnun innan vébanda Háskólans á Akureyri sem heyri undir háskóladeild eða háskólaráð Háskólans á Akureyri samkvæmt lögum um opinbera háskóla. Af því leiðir að gera má ráð fyrir að starfsemin færist undir málefnasvið 21, Háskólastig/21.10 Háskólar og rannsóknastarfsemi, á fjárlögum. Samkvæmt fjárlögum 2024 nemur fjárheimild Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar 85,9 millj. kr. Starfsemi stofnunarinnar fellur undir málefnasvið 17 og málaflokk 17.50. Árið 2025 er áætluð fjárheimild stofnunarinnar 85,3 millj. kr. og árið 2026 er áætluð fjárheimild 84,7 millj. kr.
Nefndin telur mikilvægt að þrátt fyrir brottfall laganna afmarkist þær fjárheimildir sem hér eru taldar áfram við þá starfsemi sem Stofnun Vilhjálms Stefánssonar hefur sinnt enda sé einungis um tilfærslu á starfseminni að ræða með því að færa hana formlega undir Háskólann á Akureyri. Í minnisblaði frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, sem nefndin óskaði eftir vegna þessa, er rakið að ráðuneytið hafi við undirbúning málsins lýst þeirri fjárhagslegu forsendu fyrir sameiningu Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og Háskólans á Akureyri að heildarframlag hins opinbera samkvæmt fjárlögum og aukafjárveitingu til stofnunarinnar eins og það var 2022 og áætlað 2023 þyrfti að vera tryggt áfram.
Verði frumvarpið að lögum muni ráðuneytið beita sér fyrir því að fjárheimild Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar færist til Háskólans á Akureyri, sem er undir málaflokki 21.10 á fjárlögum. Úthlutun til Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar muni hins vegar fara eftir svokölluðu deililíkani sem notað er til skiptingar fjárveitinga innan Háskólans á Akureyri. Nýjar reglur um framlög til háskóla verði gefnar út á þessu ári og í kjölfarið megi búast við að Háskólinn á Akureyri uppfæri deililíkanið, sem muni segja til um úthlutun til Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar . Vísað er til þess að sami háttur sé hafður á við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, þ.e. að fjárveiting til hennar fari nú í gegnum deililíkan Háskóla Íslands, frá og með fjárlögum 2023, eftir ábendingu frá Ríkisendurskoðun.
Nefndin ítrekar, með vísan til framangreinds, og leggur áherslu á að þær fjárheimildir sem Stofnun Vilhjálms Stefánssonar hefur fengið og henni eru ætlaðar afmarkist áfram við starfsemi nýrrar rannsóknastofnunar innan Háskólans á Akureyri að sameiningu lokinni og að þeim fjárheimildum verði skýrt haldið til haga við gerð fylgirita með fjárlögum ár hvert.
Með vísan til framangreinds leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Vilhjálmur Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins og ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Undir álitið rita aðrir nefndarmenn í hv. umhverfis- og samgöngunefnd; sá sem hér stendur, Njáll Trausti Friðbertsson, framsögumaður, Bjarni Jónsson, formaður, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Vilhjálmur Árnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Orri Páll Jóhannsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Það er kannski rétt að árétta sérstaklega í þinglegri meðferð málsins og frá nefndinni allri, held ég að sé óhætt að segja, mikilvægi þess sem kemur fram í nefndarálitinu og snýr að fjárveitingum, að þær sannarlega skili sér áfram í þessu breytta hlutverki og þeirri skipan sem hefur verið komið á með þessari sameiningu. Það er mikil áhersla frá hv. umhverfis- og samgöngunefnd að það sé gert með markvissum hætti.
Svona persónulega frá mér sem hef fylgst með þessari stofnun í langan tíma, hátt í 30, vil ég segja að það hafa sannarlega verið miklar og góðar rannsóknir stundaðar við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar á þessu áratugum og mikið og gott starf þar undir. Ég vil reyndar benda á þá eftirtektarverðu staðreynd að um langt árabil hefur meiri hluta tekna stofnunarinnar verið af sértekjum og því verið gríðarlega vel sinnt að sækja rannsóknarfé. Ég óska bara rétt að lokum þakka forstöðumanni stofnunarinnar, Níels Einarssyni, fyrir gott starf í þágu hennar. Ég er viss um að starfið haldi áfram og mikil áhersla verði áfram á þessi norðurslóðamál, enda er að nokkru sérhæfing Háskólans á Akureyri í dag norðurslóðamálin, það hefur verið mikil áhersla lögð á þau á undanförnum a.m.k. 20, 25 árum. Ég vildi að þetta kæmi fram svona rétt í lokin. — Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.