154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[19:49]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, er varðar samfélagsþjónustu og reynslulausn.

Helstu atriði þessa frumvarps eru að með því er lagt til að framlengd verði tímabundin ákvæði um samfélagsþjónustu sem fullnustuúrræði. Lagt er til að ákvæði til bráðabirgða IV og V í lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, sem lúta að reynslulausn og heimild til fullnustu með samfélagsþjónustu, verði framlengd til 1. júlí 2027. Að öðrum kosti myndi þetta ákvæði falla úr lögum núna í sumar.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega að árið 2021 voru lagðar til tímabundnar breytingar á lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, varðandi samfélagsþjónustu sem fullnustuúrræði. Var Fangelsismálastofnun þá heimilað að fullnusta allt að 24 mánaða óskilorðsbundið fangelsi með samfélagsþjónustu, mæltu almannahagsmunir ekki gegn því. Einnig var kveðið á um að það sama ætti við ef um refsingu samkvæmt fleiri en einum dómi væri að ræða þannig að samanlögð refsing gæti verið allt að 24 mánuðir. Var með því brugðist við tillögum um úrbætur sem fram komu í skýrslu starfshóps dómsmálaráðherra um aðgerðir sem ættu að stytta boðunarlista til afplánunar refsinga.

Í umsögn Afstöðu, félags fanga, um fyrirliggjandi frumvarp kemur fram að félagið telji málið jákvætt og að úrræðið hafi reynst vel. Jafnframt er þó áréttað mikilvægi þess að farið verði í heildarendurskoðun enda þurfi að huga að mörgum fleiri þáttum til að bæta ástandið í málaflokknum.

Meiri hlutinn telur brýnt að farið verði í fyrirhugaða heildarendurskoðun fullnustukerfisins þar sem verði m.a. tekin afstaða til fyrirkomulags og umfangs samfélagsþjónustu. Meiri hlutinn tekur undir nauðsyn þess að á meðan sú vinna standi yfir þurfi að framlengja þær heimildir sem frumvarpið kveður á um, m.a. í ljósi þess fjölda sem nú er á boðunarlista Fangelsismálastofnunar. Meiri hlutinn beinir því jafnframt til ráðuneytisins að taka til nánari skoðunar þær ábendingar sem bárust í umsögnum um málið frá Afstöðu, félagi fanga, og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu sem varða málaflokkinn og breytingar á lögum um fullnustu refsinga, en eru þó ekki efni fyrirliggjandi frumvarps.

Að framansögðu virtu telur meiri hlutinn mikilvægt að málið nái fram að ganga og leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jódís Skúladóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir.

Virðulegur forseti. Ég vil leggja áherslu á það að við í meiri hlutanum teljum mikilvægt að þetta úrræði sé til staðar en ítrekum jafnframt mikilvægi þess að ráðist verði í þessa heildarendurskoðun. Við fengum til fundar við okkur fangelsismálastjóra og áttum ágætissamtal við hann um stöðuna í fangelsum landsins og það er alveg ljóst að staðan þar er ekki nægilega góð og því miður er það svo að oft á tíðum er langur biðtími eftir því að fullnusta refsingu. Það úrræði sem hér um ræðir, sem er samfélagsþjónustan, hefur nýst vel að mati Fangelsismálastofnunar og, eins og hér kom fram, einnig að mati Afstöðu, félagi fanga, þannig að ég held að það sé til mikilla bóta. Það breytir því ekki að við framlengjum þetta ákvæði nú í takmarkaðan tíma. En það er mjög nauðsynlegt að ráðast í heildarendurskoðun á þessu og fastsetja það úrræði er lýtur að samfélagsþjónustu.

Þá er ástæða til að geta þess að það var töluverð umræða í nefndinni um hvort það væri rétt að Fangelsismálastofnun væri með þessa ákvörðun í sinni hendi eða hvort það væri dómara að dæma í samfélagsþjónustu. Samkvæmt okkar lagabálki þá varðar þetta úrræði fullnustu refsinga og þar hefur Fangelsismálastofnun þau völd til að beita því innan þess ramma sem lögin ákveða, hvort sem það sé t.d. ökklaband eða samfélagsþjónusta. En ég bara ítreka aftur mikilvægi þessa máls sem hér liggur fyrir, sem er auðvitað mjög einfalt í grunninn og lýtur að því að breyta dagsetningu og framlengja þetta úrræði til 1. júlí 2027.