154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

689. mál
[19:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ingibjörg Isaksen) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Nefndin fjallaði um tilefni lagasetningarinnar sem rekja má til ábendinga og athugasemda frá Eftirlitsstofnun EFTA í tengslum við innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um geymslu koltvísýrings í jörðu.

Fram kom fyrir nefndinni að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti hafi borist ábendingar og athugasemdir frá ESA um að skýra þyrfti betur gildissvið laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Einnig þyrfti að setja skýrari mörk milli umfjöllunar um könnunarleyfi og starfsleyfi í lögunum. Þá var bent á að lagfæra þyrfti orðalag sem fjallar um flutning ábyrgðar á geymslusvæði eftir að því hefur verið lokað, sem og að skýra betur skilyrði fyrir aðgangi þriðja aðila að flutningskerfi og geymslusvæði auk fleiri atriða.

Frumvarpi þessu er því ætlað að bregðast við athugasemdum ESA með því að leggja til þær breytingar sem teljast nauðsynlegar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir svo að sem mest samræmi verði á milli tilskipunar um geymslu koltvísýrings í jörðu og íslenskra laga. Það sé m.a. mikilvægt svo ekki leiki vafi á því að rekstraraðilar sem taka þátt í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir geti nýtt Carbfix-tæknina við geymslu koldíoxíðs til frádráttar frá losun sinni.

Meiri hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar 9. gr. frumvarpsins um samstarf yfir landamæri og að lögbær yfirvöld hlutaðeigandi ríkja skuli í sameiningu uppfylla kröfur laganna og annarrar viðeigandi löggjafar. Meiri hluti nefndarinnar leggur til breytingu á ákvæðinu með það að markmiði að samræma orðalag þess við ákvæði 24. gr. tilskipunar um geymslu koltvísýrings í jörðu. Breytingin lýtur að því að skýra vísun ákvæðisins um aðra viðeigandi löggjöf. Meiri hlutinn bendir í þessu samhengi á að sambærilegt orðalag er einnig í 22. gr. reglugerðar nr. 1430/2022, um geymslu koldíoxíðs í jörðu.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar samræmingu orðalags við tilskipun um geymslu koldíoxíðs í jörðu. Við umfjöllun málsins fyrir nefndinni barst minnisblað frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Þar kom fram að Eftirlitsstofnun EFTA hefði gert athugasemdir við ósamræmi á milli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og fyrrnefndrar tilskipunar. Ráðuneytið leggur í minnisblaði sínu til breytingar á frumvarpinu sem meiri hlutinn tekur undir og leggur til breytingar því til samræmis. Um efni breytinganna að öðru leyti vísast til minnisblaðs ráðuneytisins og vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.

Að framansögðu virtu leggur meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta nefndarinnar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Vilhjálmur Árnason, Andrés Ingi Jónsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Orri Páll Jóhannsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Virðulegi forseti. Við meðferð málsins hjá nefndinni bárust einnig athugasemdir varðandi lög um stjórn vatnamála og innleiðingu 11. gr. vatnatilskipunar frá Evrópusambandinu. Með CCS-tilskipuninni, sem sett var árið 2009, var ákvæði bætt við vatnatilskipun sem heimilar niðurdælingu koldíoxíðs á forsendum CCS-tilskipunarinnar. Frumvarp um breytingu á lögum um stjórn vatnamála sem m.a. er ætlað að innleiða efni 11. gr. vatnatilskipunarinnar var á þingmálaskrá ráðherra en hefur sætt töfum. Landsvirkjun hefur ítrekað nauðsyn þess að frumvarpið verði lagt fram og afgreitt á Alþingi eins fljótt og mögulegt er en Landsvirkjun er í biðstöðu um umsóknir um stækkun Þeistareykjastöðvar sökum lagalegrar óvissu þessu tengt. Útfæra þarf innleiðingu umræddrar 11. gr. og eftir uppbyggilegt samtal hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í undirbúningi vinnuhóp innan ráðuneytisins, studdan fagstofnunum, sem hefur m.a. það verkefni að útfæra þá innleiðingu með ábendingum Landsvirkjun og annarra hagaðila til hliðsjónar.

Mikilvægt er að sá hópur ráðist í þá vinnu sem fyrst enda er um að ræða mikilvægt hagsmunamál fyrir innlenda orkuframleiðslu á tímum orkuskorts og styður við okkar áherslur í umhverfis- og loftslagsmálum. Það er mikilvægt að stjórnvöld standi vörð um samkeppnishæfni jarðhitans og tryggi að lagaleg óvissa standi ekki frekari uppbyggingu hans fyrir þrifum því jarðhitinn er ein verðmætasta auðlind Íslendinga. Ég bind vonir við það að ráðuneyti skipi þennan hóp sem allra fyrst svo hægt sé að ráðast í þessa vinnu.