154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

689. mál
[20:00]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég kem hér upp í örstutt andsvar til að leiðrétta þann misskilning sem hefur orðið við skjalavinnslu, að ég sé settur á meirihlutaálitið af því að ég er mjög einbeitt ekki á áliti meiri hluta í þessu máli. Þetta er í þriðja sinn sem Alþingi grípur inn í þessa löggjöf til að reyna að innleiða Evrópuregluverk um niðurdælingu koltvísýrings og mér fannst vandræðagangurinn bara orðinn svo mikill að mér datt ekki í hug að snerta á þessu meirihlutaáliti, ekki einu sinni með töngum. Hér hafa því orðið mistök sem ég er búinn að biðja þingfundadeild um að skoða hvort hægt sé að leiðrétta og vil bara að það komi fram hér í ræðustóli líka.