Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir áliti 2. minni hluta sem ritari í mínu nafni í allsherjar- og menntamálanefnd og vil ég þakka framsögumanni sem og formanni nefndarinnar, hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, Berglindi Ósk Guðmundsdóttur og öðrum nefndarmönnum fyrir ágætissamvinnu í tengslum við þetta mál. Ég ætla ekkert að draga dul á það að rætur mínar í því að taka afstöðu til hinna ýmsu pólitísku viðfangsefna liggja ekki síst í fortíð minni í stúdentapólitíkinni. Ég er Röskvukona fram í fingurgóma og því er mér, ég segi ekki ljúft en það er mér skylt að taka á því helsta sem mér þykir mega betur fara eða finnst þurfa á gagnrýni að halda í þessu frumvarpi.
Við ræddum það aðeins í kringum 1. umræðu málsins að kominn væri reynslutími á lögin, við hefðum þurft að leyfa þessum lögum að lifa í ákveðinn tíma til að við fengjum að sjá raunveruleg áhrif af þeim. Það höfum við svo sannarlega gert. Það kemur reyndar fram í greinargerð með því frumvarpi sem liggur fyrir að verið sé að bregðast við helstu annmörkum sem hafa komið fram á framkvæmd laganna frá 2020. Ég sem 2. minni hluti nefndarinnar get ekki fallist á að sú sé raunin hér. Í títtnefndri skýrslu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins sem var gefin út í desember 2023 um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna koma fram mjög yfirgripsmiklar athugasemdir og vankantar eru reifaðir. En þessar breytingar duga mjög skammt til að bæta úr þeim helstu áskorunum sem mæta íslenskum námsmönnum og íslenskum stúdentum í þeirra daglega lífi. Það er auðvitað grundvallarspurningin hvert hlutverk stuðningskerfis námsmanna á að vera. Hvar eiga þeir að reiða sig á stuðning í kerfinu? Á það að vera á heimavelli, heima fyrir, séu þau forréttindi á annað borð til staðar? Eiga námsmenn að reiða sig á atvinnumarkaðinn sem á að geta skaffað þeim hlutastörf við hæfi svo að þau geti náð endum saman eða eiga þau að eiga þess kost að njóta raunverulegs fjárhagslegs stuðnings í formi fjárfestingar af hálfu hins opinbera í menntun þeirra, sem sætir vandaðri pólitískri stefnumótun að erlendri fyrirmynd?
Við fengum auðvitað margar góðar umsagnir með þessu máli. Bandalag háskólamanna og Landssamtök íslenskra stúdenta taka nokkuð djúpt í árinni og furða sig á takmörkuðu umfangi þeirra aðgerða sem eru boðaðar í frumvarpinu. Í því samhengi er hægt að taka undir með þeim að aðdragandinn að frumvarpinu hafi verið býsna langur. Segir þar m.a., með leyfi forseta:
„Ljóst er að tilefni er til mun viðameiri aðgerða og ekki síst í ljósi þeirra áskorana sem fram undan eru í kjarasamningum háskólamenntaðra á opinbera markaðnum.“
Þar er auðvitað verið að vísa til þeirrar kjarabaráttu sem ekki sér fyrir endann á. Ekki var tekið sérstaklega tillit til BHM og LÍS við frumvarpsdrögin og BHM bendir jafnframt á takmarkað samráð við þau. Þetta er auðvitað umdeilt. Ég veit að hæstv. ráðherra háskólamála hefur haft samráð við þennan hóp fólks að vissu marki, ég geri mér grein fyrir því, en við erum hins vegar á þeim stað að samráð er ekki bara fundur. Það er nauðsynlegt að einhvers konar ummerki séu um að tekið hafi verið mark á athugasemdum og ef ekki er tekið mark á þeim, þetta er eiginlega mikilvægara, verðum við að fá einhvers konar yfirferð yfir það hvers vegna það var ekki gert, og þessi svör verða að vera hreinskilin.
Fyrir það fyrsta, sem mér finnst einna mikilvægast án þess að gera lítið úr öðrum þáttum sem við gagnrýnum í þessu fyrirliggjandi frumvarpi og almennt í því umhverfi sem stendur íslenskum námsmönnum til boða, þá verðum við auðvitað að ræða vaxtaáhættuna. Það er mjög mikilvægt því að þetta svarar í rauninni grundvallarspurningunni um það hvernig við lítum á Menntasjóðinn, sem áður var Lánasjóður íslenskra námsmanna. Hann er í grundvallaratriðum jöfnunartæki, mikilvægt jöfnunartæki stjórnvalda sem á að jafna tækifæri fólks óháð efnahag eða félagslegri stöðu að öðru leyti. Það er auðvitað allt of há vaxtabyrði sem felst í gildandi lögum og mun að öðru óbreyttu leiða til verulegrar greiðslubyrði af afborgunum námslána um fyrirsjáanlega framtíð. Við vitum að núgildandi lög nr. 60/2020 gerðu ráð fyrir kjörum sem giltu í nær fordæmalausu lágvaxtaumhverfi sem síðan hefur tekið miklum breytingum og við þurfum ekkert að fjölyrða um það. Ef við tökum t.d. svokölluð H-lán er vaxtaþak af þeim allt of hátt. Þessi þróun sýnir að mun betur hefði farið á því að hafa vaxtaþakið lægra frá upphafi. Of hátt vaxtaþak þjónar ekki tilgangi sínum, og þetta er mikilvægt, vegna þess að það veitir lánþegum ekki þá vernd sem ætlunin er að það veiti, sérstaklega ekki í því háa vaxtaumhverfi sem hér ríkir og sér ekki fyrir endann á. Bara í apríl á síðasta ári voru vextir komnir upp í þak og buðust um tíma mun betri lánakjör hjá hagnaðardrifnum lánastofnunum og bönkum. Slíkt má ekki viðgangast og þarna ber okkur stjórnvöldum að bregðast við.
Í fyrrnefndri skýrslu ráðherra sem fjallaði um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna var sagt eftirfarandi um framangreinda óvissu, með leyfi forseta:
„Lánþegar búa við mikla óvissu um þróun á greiðslubyrði sinni þar sem hún er fljótandi í takt við efnahagsástandið hverju sinni, sem dregur úr gagnsæi námsaðstoðar ríkisins. […] Þrátt fyrir vaxtaþak á lánum er talin þörf fyrir að minnka vaxtaáhættu námsmanna að námi loknu. Endurskoða þarf vaxtaálag í lánveitingum Menntasjóðs með hliðsjón af reynslu og væntum afföllum, ásamt því að skoða hvaða fjármögnunarleiðir væru hagkvæmastar m.t.t. vaxtaáhættu námsmanna.“
Í lífskjararannsókn sem unnin var af BHM fyrr á árinu segjast 42% aðspurðra finna mikið eða verulega fyrir byrði námslána, samanborið við 32% fyrir tveimur árum. Þess vegna á að vera sjálfstætt markmið að stemma stigu við frekari aukningu greiðslubyrði lánanna. Ekki verður séð að fyrirliggjandi frumvarp feli í sér markvissar aðgerðir í þágu þess. Því er einsýnt að það verður ekki brugðist við þessari þróun með öðrum hætti en að lækka vaxtaþakið. Við verðum að koma því mjög skýrt áleiðis. Þetta lýsir þeirri sýn sem ég hef á málaflokkinn. Það hefði farið svo miklu betur á því ef slíkar breytingar hefðu verið í fyrirrúmi í fyrirliggjandi endurskoðun, enda hefur sýnt sig að námslánakerfið þjónar ekki tilgangi sínum fyllilega í óbreyttu ástandi ef við tökum bara tillit til gildistökunnar 2020 og þróun mála síðan þá. Þannig hefði t.d. átt að skoða heimild til handa greiðendum lána til að breyta vaxtaskilmálum, jafnvel úr óverðtryggðum vöxtum yfir í verðtryggða að virtum sérstökum aðstæðum. Umfram allt þarf að koma í veg fyrir að markaðsáhætta og áhætta vegna affalla falli á lántaka. Við þurfum að koma í veg fyrir það að stúdentar beri áhættuna. Við þurfum líka að draga úr óvissunni um lánakjör og bæta aðgengi að menntun. Allt er þetta jafn mikilvægt. Við getum ekki nokkurn tímann tekið undir þau sjónarmið að áhætta af rekstri sjóðsins eigi að falla á hendur námsmanna, sem er rauði þráðurinn í þessu máli hér, því að ríkissjóður á samkvæmt þessu uppleggi ekki að bera skaðann af fjárhagslegri áhættu sem stafar af því að halda úti þessu félagslega jöfnunartæki. Ef það er ekki ríkissjóður sem ber skaðann eða hættuna af því, hverjir eru það þá? Það eru námsmenn. Það eru háskólanemar á Íslandi sem bera þann skaða. Er það forsvaranlegt, er það æskilegt og er það til þess fallið að gera það eftirsóknarvert að sækja sér háskólamenntun á Íslandi? Því að þú veist að íslenska ríkið ætlar ekki að standa með því ef aðstæður í efnahagslífinu breytast, þá ætlar það ekki að standa með þér. Þetta er bara svona.
Það er líka mikilvægt að segja frá því, og þetta vita ekki margir, að ég er ekki að mála einhverja dökka mynd á vegginn. Búið er að mála hana fyrir okkur. Fram kemur í 2. kafla almenns hluta greinargerðar með frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Mikil óvissa felst í því fyrir námsmenn að vaxtastigið komi ekki í ljós fyrr en við útskrift og taki miklum breytingum á skömmum tíma. Ljóst er að þörf [er] á að minnka vaxtaáhættu námsmanna að námi loknu. Ekki eru þó lagðar fram tillögur þess efnis í frumvarpinu, en lagt til að endurskoðun á vaxtakjörum lána fari fram síðar á árinu, í tengslum við heildarendurskoðun á lögunum.“
Framangreint rennir náttúrlega stoðum undir það að betur hefði farið á því að leiðrétta þessa stöðu og leggja til breytingar í því skyni að minnka vaxtaáhættuna. Það vekur í rauninni mjög mikla undrun að slíkt hafi ekki verið forgangsverkefni við þessa endurskoðun og komi ekki til framkvæmda án tafar. Ég veit eiginlega ekki af hverju við leggjum þetta á herðar námsmönnum að bíða enn frekar. Ég held að tíminn sé alls ekki með okkur í liði og við höfum ekkert í höndunum um að treysta því að þessi endurskoðun fari fram síðar á árinu. Klukkan er orðin júní. Frumvarpið sem er hér til umræðu átti að koma á haustþingi 2023 en nú erum við komin inn á vorþing 2024 og ætlum því að vera nokkuð efins um að þetta geti komið til framkvæmda á þeim tíma sem lagt er upp með í almennum hluta greinargerðar, en verði það gert þá þarf það að gerast með afdráttarlausum hætti, ekki seinna en strax. Við munum fylgja því fast eftir. Ég ítreka að 2. minni hluti telur ótækt að námsmenn líði fyrir þessa óvissu og verði fyrir óafturkræfum fjárhagslegum skaða til framtíðar, vegna þess að svona lagað eltir fólk.
Næst langar mig að beina máli mínu að því sem lýtur að endurskoðun á styrkjafyrirkomulagi og framfærslulánum. Við hefðum að sjálfsögðu viljað sjá talsvert vandaðri og ítarlegri endurskoðun á styrkjafyrirkomulaginu. Þó nefnum við það til bóta að breytingin sem liggur fyrir er í rétta átt. Landssamtök íslenskra stúdenta hafa hins vegar bent á í umsögn sinni að hún sé háð of þröngum skilyrðum og það má líka velta því fyrir sér hversu stórum hópi þessi breyting gagnast í raun og veru. Við óskuðum eftir þessum upplýsingum í vinnu okkar í nefndinni og það var ekki hægt að nefna áþreifanlega tölfræði sem hefði getað styrkt okkur í því að styðja þetta, sem hefði vissulega verið okkar vilji, og það bakkað upp með gögnum. Við erum svo sannarlega tilbúin til viðræðna hvað það varðar en það er ekki hægt að stinga bara fingrinum upp í loft og vonast eftir góðri vindátt, við þurfum að vita í þágu hverra þessi fjárhagslega forgangsröðun er.
BHM og LÍS hafa komið því á framfæri að þau telji styrkjakerfið í óbreyttri mynd ekki hafa hvatt til hraðari námsframvindu eins og lagt var upp með við setningu gildandi laga, og náttúrlega vitum við að fíllinn í herberginu er að mun færri nýta sér námsstyrkina, eðlilega, en lagt var upp með í byrjun. Það er auðvitað hvatinn að því að við stöndum frammi fyrir þessari endurskoðun og ég heyri það af hálfu stjórnvalda og ríkisstjórnarflokkanna að þau telja þróunina í ranga átt, sem er í sjálfu sér jákvætt. En það er auðvitað löngu kominn tími á að endurskoða stöðuna og boða enn frekari breytingar á styrkjafyrirkomulaginu, styðja betur við námsmenn og búa til raunverulega hvata til hraðari námsframvindu. Ég vitna aftur í umsögn BHM og LÍS þar sem segir m.a., með leyfi forseta:
„Horfa ætti fremur til styrkjafyrirkomulagsins í Noregi; 25% niðurfellingar á höfuðstól eftir hverja önn og 15% niðurfellingar við námslok.“
Að okkar mati væri slík útfærsla til þess fallin að leiða til hvata í þágu hraðari námsframvindu og fela í sér kjarabætur til námsmanna til framtíðar.
Næst vík ég máli mínu að framfærslulánum sem hafa alla tíð verið of lág hér á landi. Ýmislegt spilar þar inn í. Það er ekki ódýrt að búa hérna. Í alþjóðlegum samanburði eru margir íslenskir námsmenn með hærri framfærslu ef við horfum bara á krónutöluna en við vitum að hér nær fólk ekki endum saman á þeim einum og skerðingarmörkin eru óviðunandi. Það leiðir að atvinnuþátttöku sem þau eru nauðbeygð til að sinna, hvort sem þeim líkar það betur eða verr. Ég vil reyndar taka fram að það er í sjálfu sér margt jákvætt við hæfileg hlutastörf samhliða háskólanámi. Þróunin sýnir okkur að það fer að heyra til algerra undantekninga að fólk sé ekki að skila af sér fleiri aukavinnustundum en sem fara í það að sinna heimanámi jafnt og þétt yfir önnina. Við erum auðvitað að reiða okkur á lífskjarakannanir námsmanna hvað það varðar en maður er óttasleginn þegar maður heyrir það sem maður hefur grun um og það er ýmislegt sem rennir stoðum undir að sá grunur sé á rökum reistur.
Þetta er auðvitað gamalt stef; námslán eru lág. Við erum með lág skerðingarmörk og sjáum mjög háa atvinnuþátttöku sem leiðir af því. Þetta vindur þannig upp á sig að færri líta á námslánakerfið hér á landi sem raunhæfan stuðning og við vitum að atvinnuþátttaka námsmanna er ein sú allra mesta hér á landi á evrópska vísu. Einhverjum finnst þetta til marks um að hér sé atvinnustig með besta móti en það breytir því ekki að þetta hægir verulega á námsframvindu og leiðir til þess að enn færri hafa kost á því að ljúka námi sínu á tilskildum tíma.
Það hefur sýnt sig að lánþegum hefur hríðfækkað. Skólaárið 2012–2013 voru lántakar 12.236 og voru þeir 4.979 2019–2020. Eftir setningu gildandi laga um nýtt styrkjakerfi fjölgaði þeim lítillega áður en þeim fækkaði aftur skólaárið þar á eftir og hefur farið fækkandi síðan. Þetta stefnir því ekki í neitt bættari aðstæður.
Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum var gert ráð fyrir fjölgun lánþega sem gekk ekki eftir. Samkvæmt greinargerðinni sem lá fyrir við samþykkt þeirra laga var áætlað að heildarfjöldi lánþega sem fengju styrk væri 7.000 og að þeim myndi fjölga um 2.800 á tímabilinu. Reyndin er auðvitað sú, og þetta sést í línuriti sem fylgir með nefndaráliti 2. minni hluta, að slíkar áætlanir hafa ekki gengið eftir. Við verðum að grípa inn í og bæta úr, ekki síst til þess að vinna að því markmiði sem var að baki því stuðningskerfi sem komið var á þegar lögin voru sett fyrir fjórum árum síðan, að stuðla að hvatningu til nemenda, námsmanna og stúdenta á Íslandi að ljúka námi sínu fyrr.
Við þurfum líka að skoða rýmri námsframvindukröfur þegar kemur að framfærslulánum að virtum vissum skilyrðum, að norskri fyrirmynd. Námsmenn hefðu þannig möguleika á útlánum þrátt fyrir að standast ekki námsframvindukröfur. Þannig yrði tryggður ákveðinn stuðningur við námsmenn sem yrði greiddur til baka, en skortur á tilskilinni námsframvindukröfu myndi einungis hafa áhrif á styrkjahlutann. Um þetta vísast til norskrar fyrirmyndar sem m.a. er bent á í umsögn Landssamtaka íslenskra stúdenta. Við teljum að það sé mjög margt að finna í því kerfi, sem auðvitað var leynt og ljóst fyrirmynd að því kerfi sem ætlað var að koma á fót með setningu laga nr. 60/2020, gildandi laga um Menntasjóðinn. Við vitum hins vegar að þegar við sækjum okkur erlendar fyrirmyndir þurfum við að taka tillit til allra aðstæðna og þeirra forsendna sem liggja að baki því kerfi sem þar er. Þá erum við öðru fremur að tala um að það skorti mögulega verulega upp á þá afstöðu stjórnvalda hér á landi að við séum ekki bara að styrkja fólk og við séum ekki bara að gera fólki kleift að hafa í sig og á meðan það lýkur háskólanámi, heldur erum við að reyna að stýra okkur inn á ákveðnar brautir með því að fjárfesta í menntun fólks, fjárfesta í fólki. Þetta er auðvitað risastórt mál. Ég sakna þess að hér sé til staðar heildarsýn um það hversu mikla áherslu við viljum leggja á tilteknar greinar í háskólanámi framtíðarinnar. Við vitum hins vegar að við höfum séð ákveðna stefnumótun af hálfu hv. ráðherra háskólamála í þær áttir og höfum fengið að kíkja aðeins á þá heildarsýn sem hún hefur í þessum málaflokki. Við tjáðum okkur um það fyrir áramót og það var gefandi, en við sjáum líka að ákveðnar blikur eru á lofti með það hvort við munum sjá skólagjaldaumhverfið breytast verulega á næstu árum. En ég held að á meðan við erum ekki tilbúin til þess að hlífa námsmönnum við þeirri fjárhagslegu áhættu sem fylgir því að halda úti Menntasjóðnum og slíku styrkjakerfi þá sjáum við ekki alveg til sólar í þessu.
Að lokum langar mig til þess að fagna því að við séum að taka afdráttarlaust skref í átt að því að afnema ábyrgðarmannakerfið. Ég ætla þó að taka undir afstöðu Bandalags háskólamanna og LÍS um stöðu ótryggra lántaka og það sem fram hefur komið hérna um stöðu þeirra. Við verðum að standa vörð um grundvallarréttindi fólks til þess að stunda háskólanám án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti. Ef við erum ekki algjörlega með þann fókus í lagi, ef það er ásættanlegt — ef fólk hefur mögulega komið sér úr erfiðum félagslegum aðstæðum, svo líða mörg ár og það er kannski enn þá á vanskilaskrá en nær einhvern veginn að koma sér upp á lappir og lýsir sig reiðubúið að stunda háskólanám, þá á því að bjóðast aðgangur að háskólanámi og opinberum styrkjum án þess að það sé sett í þær aðstæður að vera neitað um það vegna þess að það var á vanskilaskrá eða er að reyna að gera allt sem í valdi þess stendur til að komast af henni. Við ræddum þetta mjög ítarlega í nefndinni og við fögnum því að meiri hlutinn hefur lagt til breytingartillögu þess efnis að okkur sé heimilt að taka tillit til félagslegra aðstæðna að öðru leyti og veita þar af leiðandi einhvers konar undanþágu, en ég held að þetta sé alls ekki nógu skýrt að öðru óbreyttu. Við vitum ekki hvernig þessar úthlutunarreglur munu líta út eða hvernig Menntasjóðurinn mun útfæra þessar breytingar í reynd.
Aftur kem ég að tölfræðinni en það er mjög vont að vita ekki hversu stóran hóp fólks þetta mun hafa áhrif á. Við vitum að einstaklingum getur reynst mjög erfitt að vinna bug á skertu lánshæfismati. Við ættum ekki að eftirláta Menntasjóði námsmanna of víðtækt mat á því hvort aðstæður námsmanna séu þess eðlis að þær réttlæti lántöku hverju sinni. Mér finnst þetta ekki að öllu leyti skref í rétta átt, þó svo að ég fagni vissulega afnámi ábyrgðarmannakerfisins og ég vil að það sé alveg kýrskýrt. Ég vísa til meginreglna íslensks stjórnsýsluréttar um réttmætisregluna og skyldubundið mat stjórnvalda. Það er mjög hætt við að opin lagaákvæði leiði af sér talsverða réttaróvissu að þessu leyti.
Að lokum og með vísan til framangreinds sem ég hef rakið hér í kvöld, þá teljum við að hér hafi ríkisstjórnin látið hjá líða að taka á helstu annmörkum sem fram hafa komið við framkvæmd laganna, sér í lagi hvað varðar fyrirkomulag styrkja, óvissu vegna vaxtaumhverfis, hækkun framfærslu og tryggan rétt allra hópa til námslána, óháð félagslegri stöðu. Ég tel ærið tilefni til þess að skoða alvarlega hvers vegna lánþegum hefur fækkað svo gríðarlega. Þá þurfum við að líta nokkuð alvarlega í eigin barm. Það má leiða líkur að því að það sé einfaldlega vegna þess að sjóðurinn hefur ekki haft og hefur ekki tök á að sinna félagslegu jöfnunarhlutverki sínu í þágu íslenskra námsmanna. Okkur stjórnvöldum ber að grípa til tafarlausra aðgerða. Það er afdráttarlaus afstaða okkar að slíkar aðgerðir þoli ekki frekari bið.
Virðulegi forseti. Ég ítreka það sem ég segi: Það er kominn tími til að skerpa verulega á félagslegu hlutverki sjóðsins, Menntasjóðs námsmanna. Það er óásættanlegt og ekki bara óæskilegt heldur óskynsamlegt að íslenskir námsmenn sitji uppi með þá áhættu sem leiðir af óvissu í vaxtaumhverfi, sem leiðir af efnahagsstjórn þessa lands. Íslenskir námsmenn eru að fjárfesta í íslensku samfélagi alveg eins og í sjálfum sér. Við erum ekki að dekra við vanþakklátan hóp fólks. Þetta er spurning um stefnumótun stjórnvalda. Ég mun með glöðu geði taka þátt í öllum þeim skrefum sem lúta að því að bæta kjör stúdenta, þvert á allar flokkslínur. Því hvet ég stjórnvöld til að gefa hressilega í að tryggja félagslegt jafnrétti til náms.