154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

opinber skjalasöfn.

938. mál
[21:07]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, gjaldskrá, rafræn skil. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða einkum að því að endurskoða ákvæði laganna um gjaldtökuheimildir opinberra skjalasafna, jafnt Þjóðskjalasafns Íslands sem og héraðsskjalasafna, með það fyrir sjónum að auka skýrleika laganna og stuðla að jafnræði sveitarfélaga. Þá er með frumvarpinu stigið skref í þá átt að skil afhendingarskyldra skjala til opinberra skjalasafna verði að meginreglu til rafræn.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og umsagnir bárust. Þá barst minnisblað frá menningar- og viðskiptaráðuneyti en greint er frá þessu í nefndaráliti sem liggur frammi á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega nokkur atriði. Í fyrsta lagi fjallaði nefndin um sjónarmið um jafnræði milli sveitarfélaga. Eitt af markmiðum laga um opinber skjalasöfn er að tryggja jafnræði milli sveitarfélaga varðandi kostnað vegna lögbundinnar vörslu og meðferðar opinberra skjala þar sem sveitarfélög ýmist greiði kostnað vegna reksturs héraðsskjalasafns eða vegna skila á afhendingarskyldum gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands. Áform Reykjavíkurborgar og í kjölfarið Kópavogsbæjar um að hætta að starfrækja héraðsskjalasafn gáfu menningar- og viðskiptaráðuneyti tilefni til að skoða þau ákvæði laga um opinber skjalasöfn sem á reynir í slíku tilviki og leiddi sú skoðun í ljós að gildandi lög eru óskýr. Frumvarpið miðar að því að endurskoða ákvæði laganna um gjaldtökuheimildir opinberra skjalasafna, jafnt Þjóðskjalasafns Íslands sem og héraðsskjalasafna, með það fyrir augum að auka skýrleika laganna og stuðla að jafnræði milli sveitarfélaga.

Að mati meiri hlutans er mikilvægt að þau sveitarfélög sem ákveða að sinna langtímavörslu skjala með rekstri eigin héraðsskjalasafns eða aðkomu að slíkum rekstri standi ekki hallari fæti en þau sem gera það ekki. Skýrari heimildir fyrir því að Þjóðskjalasafn Íslands innheimti gjald af sveitarfélögum sem ekki reka héraðsskjalasafn hefðu jákvæð áhrif á jafnræði sveitarfélaga. Að mati meiri hlutans stuðla tillögur frumvarpsins að því að tryggja betur að sveitarfélög, sem ekki starfrækja eigið héraðsskjalasafn, greiði fyrir þá starfsemi sem Þjóðskjalasafn Íslands sinnir fyrir þeirra hönd.

Þá fjallaði nefndin í öðru lagi um afhendingu skjala á rafrænu formi. Í a-lið 3. gr. frumvarpsins er lögð til orðalagsbreyting á 1. mgr. 15. gr. laganna en markmið þess ákvæðis er að auka veg rafrænnar skjalavörslu hjá hinu opinbera. Lagt er til að kveðið verði á um þá meginreglu að gögnum skuli skilað á því formi sem þau urðu til á, enda verður yfirgnæfandi meiri hluti gagna í nútímastjórnsýslu til með rafrænum hætti, sem þýðir að með breytingunni er í raun lögfest meginregla um rafræn skil skjala. Skil á pappírsformi verði því undantekning. Er það í samræmi við stefnu stjórnvalda en í ríkisstjórnarsáttmála er kveðið á um stefnu um rafræna langtímavörslu skjala og endurnýjun rafrænna innviða opinberrar skjalavörslu. Þá er í umsögn Þjóðskjalasafns Íslands lögð sérstök áhersla á mikilvægi þessarar breytingar en með henni sé stutt við stafræna vegferð hins opinbera og þá verði varðveisla opinberra upplýsinga betur tryggð en með útprentun á rafrænum gögnum á pappír.

Þá fjallaði nefndin í þriðja lagi um breytingu gjaldskrárheimilda Fyrir nefndinni var m.a. bent á að ef gjaldskrá væri ekki í samræmi við raunkostnað gætu skapast rangir hvatar við uppbyggingu skjalasafna. Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu er gjaldtöku fyrir vörslu skjala sveitarfélaga ætlað að tryggja jafnræði milli sveitarfélaga varðandi kostnað vegna lögbundinnar vörslu og meðferðar opinberra skjala óháð því hvort þau standi að rekstri héraðsskjalasafns eða skili afhendingarskyldum gögnum til Þjóðskjalasafns. Í minnisblaði ráðuneytisins er bent á að verði frumvarpið að lögum verði gjaldtökuheimildir skýrari, þær afmarkast við ákveðna þætti og skulu, sbr. 4. mgr. 6. gr. frumvarpsins, ekki vera hærri en raunkostnaður af þeim kostnaðarliðum sem þeim er ætlað að standa undir. Gagnsæi og fyrirsjáanleiki um kostnað sveitarfélaga muni því aukast verði frumvarpið að lögum.

Meiri hlutinn undirstrikar að lögbundið verður að gjöld samkvæmt gjaldskrám opinberra skjalasafna verði ekki hærri en raunkostnaður af þeim kostnaðarliðum sem þeim er ætlað að standa undir að teknu tilliti til tilgreindra útgjalda. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess svo að tekjur Þjóðskjalasafns aukist ekki umfram kostnað af því að taka við skjölum sveitarfélags og sveitarfélög beri sannanlega þann kostnað sem hlýst af lögbundnum verkefnum þeirra við skjalavörslu.

Þá fjallaði nefndin í fjórða lagi um lögbundna afgreiðslu eða þjónustu og aukna rannsóknarvinnu. Með 5. gr. frumvarpsins er lögð til sú viðbót við 3. mgr. 44. gr. laganna að heimilt verði að taka gjald fyrir svokallaða aukna rannsóknarvinnu við aðgang að gögnum í vörslu opinbers skjalasafns, komi fram ósk um slíka viðbótarþjónustu. Í umsögn Reykjavíkurborgar kemur fram að afar áríðandi sé að gerð séu greinargóð skil á milli lögbundinnar afgreiðslu og þjónustu og aukinnar rannsóknarvinnu.

Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að skýrlega sé greint þar á milli en bendir á að í greinargerð með frumvarpinu séu skil á milli lögbundinnar afgreiðslu og þjónustu og umbeðinna rannsóknarverkefna og aukinnar rannsóknarvinnu útskýrð nánar. Þar kemur fram að lögbundin grunnþjónusta felist m.a. í veitingu aðgangs að safnkosti í samræmi við lögin og með hliðsjón af leiðbeiningarskyldu stjórnvalda. Þannig er eðlilegt að notanda sé veittur aðgangur að skjölum, t.d. á lestrarsal skjalasafns, og honum leiðbeint um hvar í safnkostinum hann kunni að finna þær upplýsingar sem hann leitar. Með aukinni rannsóknarvinnu sé átt við aðstoð sem sérfræðingur opinbers skjalasafns getur veitt umfram lögbundna grunnþjónustu, svo sem við ítarleit að tilteknum upplýsingum eða rannsókn vegna tiltekinnar fyrirspurnar. Slík vinna er eðli málsins samkvæmt tímafrek og getur því fallið utan þeirrar þjónustu sem opinberu skjalasafni ber lagaskylda til að veita. Að mati meiri hlutans er eðlilegt að skjalasafn hafi heimild til að innheimta gjald fyrir þess háttar þjónustu sé eftir henni óskað.

Loks fjallaði nefndin í fimmta lagi um hlutverk og ábyrgð héraðsskjalasafna. Meiri hlutinn leggur áherslu á að héraðsskjalasöfn gegni veigamiklu hlutverki í skjalavörslu í landinu og mikilvægt sé að hún fari fram víða um land. Héraðsskjalasöfn geyma verðmæt skjöl sem varðveita gögn er lúta að réttindum borgaranna og ákvörðunum stjórnvalda ásamt því að vera liður í mikilvægu menningarstarfi um land allt. Þá áréttar meiri hlutinn nauðsyn þess að virkt samstarf og samráð eigi sér stað á milli héraðsskjalasafna, Þjóðskjalasafns og ráðuneytis. Mikilvægt er að á þeim vettvangi fari fram samstarf um mörg og ólík verkefni, þar á meðal um setningu gjaldskrár Þjóðskjalasafns sem skal svo staðfest af ráðherra.

Meiri hlutinn ítrekar einnig þann skilning sem fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins um að lög um opinber skjalasöfn geri ráð fyrir að ábyrgð á vörslu opinberra skjala sé verkefni ríkis og sveitarfélaga og að fjárhagsleg ábyrgð haldist í hendur við það. Meiri hlutinn beinir því jafnframt til ráðuneytisins að það verði skoðað hvort þörf sé fyrir frekari endurskoðun laganna eða aðra vinnu af hálfu ráðuneytisins á þessu sviði.

Nefndin leggur til breytingu er varðar 6. gr. frumvarpsins en með henni er lagt til að heildstæðu gjaldskrárákvæði verði bætt við lögin, þar sem taldir verði upp þeir gjaldtökuliðir sem opinberum skjalasöfnum er heimilt að byggja gjaldskrá á. Í 4. gr. frumvarpsins er lagt til að við 20. gr. laga um opinber skjalasöfn bætist heimild fyrir Þjóðskjalasafn Íslands til að innheimta gjald vegna opinberrar miðlunar efnis frá sveitarfélagi, sem ekki starfrækir héraðsskjalasafn í samræmi við ákvæðið. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að láðst hafi að taka þann gjaldtökulið fram í gjaldskrárákvæði 6. gr. frumvarpsins. Leggur meiri hlutinn því til breytingu til leiðréttingar, auk annarrar breytingar tæknilegs eðlis.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Jódís Skúladóttir.