námsstyrkir.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá allsherjar- og menntamálanefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum um námsstyrki, nr. 79/2003, nemendur með alþjóðlega vernd. Með frumvarpinu er lagt til að nemendur sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eigi rétt á námsstyrkjum, að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum, líkt og aðrir nemendur sem taldir eru upp í 1. tölulið 1. mgr. 2. gr. laga um námsstyrki, nr. 79/2003. Jafnframt er lögð til minni háttar orðalagsbreyting sem endurspeglar breytingar sem urðu á lagaumhverfi námslána við setningu laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill nefndin árétta sérstaklega að nefndin tekur undir mikilvægi þess að tryggja farsæla móttöku og inngildingu innflytjenda. Liður í því er að tryggja einstaklingum sem hljóta alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða aðgang að styrkjum sem almennt ganga undir heitinu jöfnunarstyrkir og er ætlað að jafna aðstöðu til náms óháð búsetu. Við þekkjum þessi styrki líka, virðulegi forseti, undir heitinu dreifbýlisstyrkir og það eru framhaldsskólanemar sem geta sótt um þessa styrki.
Markmið laga um námsstyrki, nr. 79/2003, er að jafna fjárhagslegan aðstöðumun nemenda í framhaldsskólum og háskólum að því leyti sem búseta veldur þeim misþungum fjárhagsbyrðum eða efnaleysi torveldar þeim nám. Samkvæmt 2. gr. laganna er tilgreint hvaða nemendur geti átt rétt til námsstyrkja en nemendum sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hefur hingað til verið synjað um námsstyrki á grundvelli laganna. Með frumvarpinu er lagt til að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða geti öðlast rétt til námsstyrks uppfylli þeir skilyrði laganna að öðru leyti.
Í umsögnum Rauða krossins á Íslandi og Mannréttindaskrifstofu Íslands kemur fram að þau telji málið mjög til hagsbóta fyrir viðkomandi hóp og að með því sé stigið mikilvægt skref í þá átt að auðvelda inngildingu þeirra í samfélagið. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að árlega sé styrkbeiðnum framhaldsskólanema úr hópi flóttafólks hafnað á grundvelli núgildandi laga. Þá var þess getið að þegar tekið hefur verið á móti kvótaflóttafólki í byggðarlögum þar sem ekki er rekinn framhaldsskóli þá hafi nemendur úr þeim hópum ekki átt rétt til að njóta þessara styrkja. Frumvarpið sé því mikilvægt fyrir flóttafólk sem sest að í dreifðari byggðum landsins.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Eyjólfur Ármannsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Halldóra Mogensen og Jódís Skúladóttir.