154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[21:21]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Eva Dögg Davíðsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands. Nefndin hefur fjallað ítarlega um málið og fengið til sín umsagnir og gesti en gögnin eru aðgengileg á vef Alþingis.

Með frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót sjálfstæðri mannréttindastofnun á vegum Alþingis sem uppfyllir svokölluð Parísarviðmið sem eru viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um mannréttindastofnanir. Með tilkomu Mannréttindastofnunar Íslands er stefnt að aukinni eflingu um vernd mannréttinda hér á landi. Komið verður til móts við tilmæli alþjóðlegra aðila og síðast en ekki síst verður unnt að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Fyrir nefndinni var því velt upp hvort ekki mætti fela Mannréttindaskrifstofu Íslands eða stofnun á vegum framkvæmdarvaldsins að sinna þeim verkefnum sem Mannréttindastofnun Íslands er ætlað að sinna. Parísarviðmiðin mæla ekki fyrir um að skipulag mannréttindastofnana sé með ákveðnum hætti heldur mæla þau fyrir um almenn skilyrði sem slíkar stofnanir þurfa að uppfylla. Má þar nefna að kveða þarf á um hlutverk stofnana í lögum eða stjórnskipunarlögum og tryggja þarf bæði fjárhagslegt og stofnanabundið sjálfstæði hennar. Því er ljóst að Mannréttindaskrifstofa Íslands uppfyllir ekki að óbreyttu Parísarviðmiðin. Varðandi það hvort stofnunin skuli tilheyra framkvæmdarvaldinu telur nefndin að betur fari á því að hún starfi á vegum Alþingis.

Mannréttindastofnun Íslands er ætlað að sinna víðtæku eftirliti með stöðu mannréttinda hér á landi. Það eftirlit mun í ríkum mæli snúa að verkum framkvæmdarvaldsins. Með störfum sínum mun stofnunin veita stjórnvöldum mikilsvert aðhald í því skyni að vernda og efla mannréttindi. Þá verður að horfa til þess að Alþingi hefur mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að vernd mannréttinda og mun tilkoma Mannréttindastofnunar Íslands sem stofnunar Alþingis því skjóta styrkum stoðum undir eftirlit Alþingis með mannréttindum en þingið mun með skilvirkum hætti fá óháðar upplýsingar um stöðu mannréttinda hér á landi. Nefndin leggur því ríka áherslu á að stofnuninni verði tryggt nægilegt fjármagn til að hún geti sinnt hlutverki sínu með árangursríkum og skilvirkum hætti.

Forseti. Nefndin fjallaði jafnframt um framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands og þá þekkingu og reynslu sem framkvæmdastjóri skal búa yfir. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að við skipun framkvæmdastjóra þurfi, auk reglna stjórnsýsluréttar, að huga sérstaklega að Parísarviðmiðunum við mat á hæfni umsækjenda og tryggja að sá aðili sem skipaður sé sé ekki svo tengdur opinberum aðilum að það stefni sjálfstæði stofnunarinnar í hættu. Með þessu er undirstrikað mikilvægi þess að framkvæmdastjóri sinni ekki launuðum eða ólaunuðum verkefnum samhliða starfi sínu sem geta stefnt sjálfstæði stofnunarinnar í hættu. Nefndin vill árétta að með þessu er ekki verið að útiloka einstaklinga sem áður hafa sinnt störfum eða ábyrgðarhlutverkum hjá hinu opinbera frá því að gegna starfi framkvæmdastjóra. Við mat á því hvaða störf eru samrýmanleg starfi framkvæmdastjóra þarf að horfa til kröfu Parísarviðmiðanna um sjálfstæði. Mikilvægt er að framkvæmdastjóri sé sjálfstæður og óháður öðrum aðilum svo að hann geti sinnt því víðtæka hlutverki sem stofnuninni er ætlað á óhlutdrægan hátt. Það er svo stjórnar stofnunarinnar að meta hvort önnur verkefni séu talin samrýmast starfi framkvæmdastjóra eða ekki.

Fyrir nefndinni voru jafnframt reifuð sjónarmið um að heimild Mannréttindastofnunar Íslands til upplýsingaöflunar væri mjög víðtæk en allar stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök verða skyldug til að veita mannréttindastofnun allar þær upplýsingar og skýringar sem hún telur nauðsynlegar til að sinna hlutverki sínu. Nefndin vill því undirstrika að verkefni stofnunarinnar verða víðtæk og í samræmi við það mikilvæga hlutverk sem mannréttindastofnunum ber að fara með mæla Parísarviðmiðin fyrir um að þær skuli hafa víðtækan rétt til upplýsinga. Nefndin vekur þó athygli á því að sá réttur er ekki án takmarkana. Skýrt er tekið fram að upplýsingaréttur stofnunar er háður því að upplýsingarnar séu nauðsynlegar og þá ber henni að gæta meðalhófs við beitingu heimildarinnar.

Í tengslum við upplýsingaréttinn voru reifaðar áhyggjur af fyrirvara sem gerður er við upplýsingaréttinn sem felur í sér að Mannréttindastofnun Íslands mun ekki geta krafist upplýsinga sem varða öryggi ríkisins eða utanríkismál sem leynt skulu fara, nema með leyfi þess ráðherra sem á í hlut. Áhyggjurnar sneru að því hvort málefni löggæslu yrðu felld undir þennan fyrirvara en eins og kemur fram í minnisblaði forsætisráðuneytisins er hér um að ræða sambærilegan fyrirvara og mælt er fyrir um í lögum um umboðsmann Alþingis og lögum um umboðsmann barna. Að mati nefndarinnar má því gera ráð fyrir því að heimild Mannréttindastofnunar Íslands verið túlkuð með sambærilegum hætti og að Mannréttindastofnun Íslands geti almennt óskað eftir upplýsingum sem varða löggæslu. Þá má einnig hafa í huga að ekki komi upp vandkvæði við beitingu heimildarinnar. Það má gera ráð fyrir því að Mannréttindastofnun Íslands muni upplýsa þingið um það, t.d. í ársskýrslu sem henni ber að senda stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.

Forseti. Mannréttindasjónarmiða gætir með einum eða öðrum hætti í flestum verkefnum hins opinbera og fara ýmsar stofnanir með mannréttindaeftirlit hver á sínu sviði. Í umsögn Persónuverndar kemur fram að þau verkefni sem Mannréttindastofnun Íslands hefur geti í einhverjum tilvikum skarast á við verkefni annarra stofnana þó að tilkoma mannréttindastofnunar hrófli ekki við þeim lögbundnu verkefnum sem þeim er falið að sinna. Í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir að verkefni stofnunarinnar geti í einhverjum tilfellum skarast á við verkefni annarra stofnana en gert er ráð fyrir að það geti haft einhver áhrif í för með sér, m.a. í formi samstarfs og samráðs milli stofnana. Nefndin gerir ekki ráð fyrir að þetta muni skapa vandamál í framkvæmd þótt það kunni í ákveðnum tilvikum að kalla á samtal stofnana. Eitt af hlutverkum Mannréttindastofnunar Íslands sé að stuðla að samhæfingu milli ólíkra aðila sem vinna á sviði mannréttinda sem getur t.d. falist í því að hvetja til samstarfs milli viðeigandi opinberra aðila og annarra aðila sem vinna að mannréttindamálum. Nefndin vill þó árétta að frumvarpinu er ekki ætlað að hrófla við þeim verkefnum sem öðrum stofnunum eru falin með lögum.

Forseti. Eftir umfjöllun sína leggur nefndin til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Má þar nefna að lögð er til orðalagsbreyting þess efnis að það sé skýrt að Mannréttindastofnun á ekki að taka til umfjöllunar mál einstakra aðila. Hins vegar er mikilvægt að árétta að stofnuninni ber að veita öllum sem til hennar leita ráðgjöf, leiðbeiningar og aðstoð. Þá leggur nefndin til að í stað þess að a.m.k. einn lögfræðingur með sérþekkingu á mannréttindum sitji í stjórn þá séu það a.m.k. þrír lögfræðingar. Er það gert til að styrkja faglega þekkingu stjórnarinnar. Jafnframt leggur nefndin til að sérstaklega verði mælt fyrir um að framkvæmdastjóri taki áfram ákvarðanir fyrir hönd stofnunarinnar en skuli bera meiri háttar efnislegar eða stefnumótandi ákvarðanir undir stjórn. Nefndin gerir ráð fyrir að stjórnin setji verklagsreglur um hvaða ákvarðanir geti talist falla undir það að vera meiri háttar ákvarðanir. Þá leggur nefndin til að Geðhjálp og umboðsmaður Alþingis fái fast sæti í ráðgjafarnefnd Mannréttindastofnunar Íslands.

Stærstu breytingarnar sem nefndin leggur til að gerðar séu á frumvarpinu varða réttindagæslumenn fatlaðs fólks. Með frumvarpinu er lagt til að réttindagæslumenn fatlaðs fólks heyri undir Mannréttindastofnun Íslands en um réttindagæslu fyrir fatlað fólk gilda lög nr. 88/2011. Þá leggur frumvarpið einnig til að nokkur verkefni réttindagæslumanna færist yfir til sýslumanns. Við umfjöllun málsins fjallaði nefndin um þá tillögu að færa réttindagæslumenn fatlaðs fólks undir stofnun á vegum Alþingis. Réttindagæslumenn taka ekki ákvarðanir sem varða réttindi og skyldur einstaklinga heldur er það hlutverk þeirra að hafa eftirlit með réttindum fatlaðs fólks. Réttindagæslumenn sinna þannig ekki hefðbundnum verkefnum framkvæmdarvaldsins eða verkefnum sem fela í sér ábyrgð á framkvæmd réttinda heldur ber þeim að vera fötluðu fólki innan handar og veita leiðbeiningar og aðstoð eftir þörfum og eiga að bregðast við ef þeir telja brotið á réttindum fatlaðs fólks.

Að mati nefndarinnar fellur þetta hlutverk réttindagæslumanna fatlaðs fólks vel að verkefnum Mannréttindastofnunar Íslands. Hins vegar eru enn nokkur verkefni sem betur færi á að væru á hendi framkvæmdarvaldsins og leggur nefndin því til nokkrar breytingar til að skilgreina betur hlutverk réttindagæslumanna og til að leggja áherslu á eftirlitshlutverk þeirra. Leggur nefndin því til að fatlaður einstaklingur skuli hafa samráð við sýslumann en ekki réttindagæslumann um val á persónulegum talsmanni og að það verði hlutverk sýslumanns að aðstoða fatlaðan einstakling við að afturkalla umboð persónulegs talsmanns óski hann eftir því. Framangreind hlutverk falla betur að hlutverki sýslumanns en réttindagæslumanna þar sem sýslumaður mun sinna eftirliti með persónulegum talsmönnum að öðru leyti, auk þess sem sýslumaður er yfirlögráðandi samkvæmt lögræðislögum.

Þá leggur nefndin jafnframt til nokkrar breytingar til að samræma efni frumvarpsins við frumvarp til laga um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, sbr. 922. mál. Í ljósi þess að öll starfsemi réttindagæslu fyrir fatlað fólk færist frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu til Mannréttindastofnunar Íslands annars vegar og sýslumanns hins vegar, auk fleiri verkefna, og að lögð er aukin áhersla á eftirlitshlutverk réttindagæslumanna þegar verkefni færast frá framkvæmdarvaldinu til löggjafarvaldsins, er það mat nefndarinnar að endurskipuleggja þurfi starfsemi réttindagæslu fyrir fatlað fólk að fullu. Nefndin leggur því til að störf réttindagæslumanna og annars starfsfólks réttindagæslu fyrir fatlað fólk sem er með ráðningarsamband við félags- og vinnumarkaðsráðuneyti verði lögð niður frá 1. janúar 2025. Þó verði stefnt að því að auglýsa störf hjá nýrri stofnun og sýslumanni fyrir þann tíma, en nefndin leggur til að bætt verði við ákvæði til bráðabirgða þess efnis að við samþykkt laganna skuli hefja undirbúning við stofnun Mannréttindastofnunar Íslands þó að lögin taki að öðru leyti ekki gildi fyrr en 1. janúar 2025. Verður þá hægt að undirbúa og ganga til kosninga nýrrar stjórnar ásamt því að ráðast í frekari undirbúningsaðgerðir.

Að þessu virtu leggur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til. Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Þórunn Sveinbjarnardóttir, Sigmar Guðmundsson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Elín Íris Fanndal, Halla Signý Kristjánsdóttir, Hildur Sverrisdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.

Forseti. Í dag stöndum við á mikilvægum tímamótum í sögu mannréttinda á Íslandi. Ég vil þakka nefndinni fyrir hennar góða starf og þá vinnu sem hefur verið lögð í þetta frumvarp. Mér þykir það mikið fagnaðarefni og Alþingi til sóma að allir nefndarmenn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar séu með á málinu.